Fara í efni
Pistlar

Koss

Koss er skemmtilegt umfjöllunarefni og ótrúlega „heitt“ læknisfræðilegt fyrirbæri þegar maður skoðar það vel.

Varirnar eru eitt næmasta svæði líkamans. Þar er þétt net snertinema. Taugaboð um snertinguna berast með Þrendartauginni (e. trigeminal nerve) og Andlitstauginni (e. facial nerve) sem eru stórar taugar og beintengdar heilanum. Heilinn fær þannig mjög nákvæma hágæða snertiupplifun því unnið er hratt úr upplýsingum sem berast og þær eru strax sendar djúpheilanum og fjölmörg áhrifarík boðefni og hormón losna. Þetta skýrir hvers vegna koss getur verið bæði svo sterkt líkamlegt og tilfinningalegt áreiti.

Kossinn virkjar vellíðunar og verðlaunakerfin. Dópamín eykur vellíðan og Oxýtósín styrkir tengslamyndun á meðan Serótónín bætir skap og jafnvægi.

Endorfínin gefa síðan róandi og verkjastillandi áhrif.

Í raun er kossinn líkastur „efnahernaðarlegri árás“ með þeim tilgangi að vekja vellíðan og mynda tengsl.

Og krossinn hefur mikil líkamleg áhrif eins og þið þekkið. Hjartsláttur verður hraðari, blóðþrýstingur hækkar og öndun verður grunn og ör. Svona eins og létt æfing í ræktinni.

Kossinn hefur líka mikilvæg áhrif á ónæmiskerfið en ég ætla að sleppa því að fjalla um það hér í bili svo ég taki ekki alla rómantík úr kossum ykkar yfir helgina.

Ólafur Þór Ævarsson er geðlæknir

Tegundir birkiættkvíslarinnar

Sigurður Arnarson skrifar
07. október 2026 | kl. 14:30

Ljósi varpað á leyndardóma heilans

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
07. október 2026 | kl. 14:00

Af hverju getur verið svona erfitt að slaka á?

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
06. október 2026 | kl. 06:00

Eigum við að borga brúsann?

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
03. október 2026 | kl. 06:00

Nánasta fjölskylda birkis

Sigurður Arnarson skrifar
30. september 2026 | kl. 12:30

Hús dagsins: Norðurgata 16

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
29. september 2026 | kl. 20:00