Opnað fyrir orlofshúsaumsóknir og Orlof að eigin vali

Í dag, 13. mars 2024, kl. 10 verður opnað fyrir umsóknir vegna úthlutunar orlofshúsa og íbúða félagsins næsta sumar sem og Orlofs að eigin vali. Félagsmenn þurfa að sækja um sumarvikur og orlof að eigin vali á rafrænan hátt í gegnum Orlofsvef félagsins  þar sem jafnframt má finna upplýsingar um hvað er í boði. Það þarf að skrá sig inn til að komast í umsóknarferlið.

Síðasti skiladagur umsókna er þriðjudagurinn 2. apríl, úthlutun fer fram daginn eftir.

Verðskrá

  • Þeir sem fá úthlutað þurfa að ganga frá greiðslu í síðasta lagi 15. apríl 2024.
  • 17. apríl 2024 kl. 10:00 verður opnað á netinu fyrir það sem enn verður laust. Þá gildir fyrstur kemur, fyrstur fær. Einnig verður hægt að hafa samband við skrifstofur félagsins til að fá upplýsingar um lausar vikur. 

Punktakerfi
Til þess að gæta sem mestrar sanngirni við úthlutun orlofshúsa og orlofsíbúða notar félagið punktakerfi sem þykir hafa reynst vel. Hver félagsmaður vinnur sér inn einn punkt fyrir hvern mánuð sem hann greiðir til félagsins. Engu máli skiptir hve há upphæð félagsgjaldsins er í hverjum mánuði. Þeir sem síðan hafa safnað flestum punktum þegar kemur að úthlutun ganga fyrir þegar mikil ásókn er í húsin. Þegar félagsmaður fær úthlutað tíma í orlofshúsi dregst tiltekinn punktafjöldi frá inneign viðkomandi þannig að tryggt er að þeir sem fá úthlutað dvöl í orlofshúsi eru ekki áfram efstir á blaði, en halda þó auðvitað áfram að safna sér punktum fram að úthlutun næsta árs með því að greiða félagsgjöld.

Frádráttur orlofspunkta er mismunandi eftir tímabilum. Ekki eru dregnir frá punktar að vetri til.

  • 18 punktar í frádrátt:
    • Fyrir Orlof að eigin vali.
  • 24 punktar í frádrátt:
    • Fyrir fyrstu tvær og síðustu sumarvikuna.
  • 36 punktar í frádrátt:
    • Fyrir aðrar sumarvikur