Fara í efni
Pistlar

Ber í skógi

TRÉ VIKUNNAR - 187

Pistill í röðinni Tré vikunnar birtist vikulega á vef Skógræktarfélags Eyfirðinga, alla miðvikudaga. Akureyri.net birtir brot úr hverjum pistli til að vekja athygli á skrifunum og hvetur fólk til að lesa meira á vefsíðu félagsins.
_ _ _

Dagur nakta garðyrkjumannsins er haldinn árlega fyrsta laugardag í maí. Enn á eftir að ákveða hvenær dagar nakta skógræktarmannsins og nakta skógargestsins eru haldnir. Þrátt fyrir heiti pistilsins viljum við flest vera sæmilega til fara í skóginum eða að minnsta kosti með tilhlýðanlegan fjölda flíka á kroppnum nema ef til vil í undantekningartilfellum. Þess vegna verður ekki frekar fjallað um fatnað, eða skort á honum, í þessum pistli. Hann fjallar um ber í skógi en ekki um að vera ber í skógi.

Við sem hrífumst af skógum njótum þeirra með ýmsu móti. Eitt sem mörg okkar sækjast eftir er að tína ber, sveppi og annað matarkyns sem finna má í skóglendi. Í þessum pistli skoðum við berin sérstaklega. Einkum þau sem hæf eru til manneldis.

Gróskumikill skógarbotn í Kjarnaskógi. Ætli það sé ekki eitthvað ætilegt þarna? Mynd: Sig.A.
Gróskumikill skógarbotn í Kjarnaskógi. Ætli það sé ekki eitthvað ætilegt þarna? Mynd: Sig.A.

Böl eða blessun

Stundum er því haldið fram að skóglendi sé til mikillar bölvunar fyrir þá sem sækjast eftir því að tína ber í náttúru Íslands. Það er vissulega rétt að sumar tegundir berjalyngs, einkum krækiber, Empetrum nigrum, þrífast ekki í miklum skugga. Aðrar tegundir, svo sem, bláber, Vaccinium uliginosum, aðalbláber, V. myrtillus, hrútaber, Rubus saxatilis, jarðarber, Fragaria spp., og margar rifstegundir, Ribes spp., ásamt ýmsum öðrum tegundum geta vaxið prýðilega í skógum sem ekki eru of þéttir og varpa því ekki of miklum skugga. Þar geta þessar tegundir myndað gómsæt ber. Þetta þekkja mörg okkar sem séð hafa ber í erlendum skógum jafnt sem á Íslandi.

Allar ofangreindar tegundir má finna í íslenskum skógum. Enn eru ónefndar tegundir eins og reynir, Sorbus spp., yllir, Sambucus spp., rósir, Rosa spp. og misplar, Cotoneaster spp., sem vissulega geta vaxið í skógum og myndað ber. Þau ber metta þó frekar fugla en menn þótt á því séu undantekningar. Það má eiginlega segja að hægt sé að borða öll ber í íslenskum skógum en sum bara einu sinni. Þau teljast óæt. Raunin er sú að fjöldi berjategunda vex í skógum og tegundum fer fjölgandi en stundum þarf að hjálpa þeim að nema land.

Í Hjallaskógi ofan Neskaupstaðar eru þéttar breiður af aðalbláberjalyngi undir nokkuð þéttum, ógrisjuðum skermi af stafafuru. Innan um lyngið vex meðal annars blágresi og reyniviður. Aðalbláberjalyngið er mun þéttara og gróskumeira undir furunni en á berangri í kring. Mynd og upplýsingar: Aðalsteinn Sigurgeirsson.
Í Hjallaskógi ofan Neskaupstaðar eru þéttar breiður af aðalbláberjalyngi undir nokkuð þéttum, ógrisjuðum skermi af stafafuru. Innan um lyngið vex meðal annars blágresi og reyniviður. Aðalbláberjalyngið er mun þéttara og gróskumeira undir furunni en á berangri í kring. Mynd og upplýsingar: Aðalsteinn Sigurgeirsson.

Um ber í skógi

Þetta er þriðji pistill okkar þar sem við beinum sjónum okkar fyrst og fremst að skógarbotninum en hér má lesa fyrri pistla okkar um hann. Ef og þegar við birtum fleiri pistla um efnið má sjá þá á sama stað. Þetta er jafnframt fyrsti pistillinn sem fjallar sérstaklega um ber í skógarbotninum en við lofum að þeir verða fleiri ef áhugi er fyrir hendi. Hann metum við út frá því hversu oft pistillinn er opnaður af lesendum okkar.

Við getum upplýst að við vorum í dálitlum vandræðum með það hvernig best væri að skrifa þessa pistla um berjaskóga því efnið er víðfemt. Niðurstaðan varð sú að skipta efninu fyrst og fremst eftir ættum eða ættkvíslum svo hver pistill verði ekki of langur. Þessi pistill er eins konar inngangspistill en næst skoðum við lyngættina sérstaklega og þau ber sem hún myndar og þrifist geta í skógum. Seinna fjöllum við um annars konar ber ef þetta fellur í kramið hjá lesendum okkar.

Þar sem þetta er fyrsti pistillinn um ber í skógi byrjum við á að skoða hvaða forsendur þurfa að vera fyrir hendi til að ber fái þrifist í skóglendi.

Í Fannardal í Norðfirði er uppvaxandi eikarskógur. Í honum má meðal annars finna eini í tilvonandi skógarbotni. Ber einis má nota sem krydd eins og þekkt er. Þarna er líka bláberjalyng að taka á sig haustliti. Bláber geta vel vaxið í skógum. Mynd: Einar Gunnarsson.
Í Fannardal í Norðfirði er uppvaxandi eikarskógur. Í honum má meðal annars finna eini í tilvonandi skógarbotni. Ber einis má nota sem krydd eins og þekkt er. Þarna er líka bláberjalyng að taka á sig haustliti. Bláber geta vel vaxið í skógum. Mynd: Einar Gunnarsson. 

Sigurður Arnarson er í stjórn Skógræktarfélags Eyfirðinga.

Smellið hér til að sjá allan pistilinn: Ber í skógi

Nokkur ráð til að líða betur í skammdeginu

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
20. október 2026 | kl. 12:00

Skáldkonan á Ljósavatni

Jóhann Árelíuz skrifar
18. október 2026 | kl. 10:00

Að vera góður (með sig)

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
17. október 2026 | kl. 11:00

Samanburður broddhlyns og garðahlyns

Sigurður Arnarson skrifar
14. október 2026 | kl. 10:45

Lífið í búningsklefanum

Pétur Guðjónsson skrifar
12. október 2026 | kl. 13:30

Vænting

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
11. október 2026 | kl. 06:00