Fara í efni
Pistlar

Ljósi varpað á leyndardóma heilans

Nóbelsverðlaunin í læknisfræði árið 2026 féllu í hlut vísindamannanna Peters Hegemann, Georgs Nagel og Karls Deisseroth fyrir uppgötvanir sem hafa opnað nýja leið til að rannsaka heilann. Upphafið var eins og oft áður forvitni. Löngun til að skilja hvernig einfrumuþörungur skynjar og finnur leið sína að lífsnauðsynlegu ljósinu.

Hegemann og Nagel uppgötvuðu ljósnæmt prótein í þörungnum. Þegar ljós fellur á það opnast göng fyrir flæði rafhlaðinna agna inn í frumuna, sem breyta rafspennu frumuhimnunnar. Þetta er hliðstætt við grunnstarfsemi heilafrumna því breytingar í rafspennu frumuhimnunnar virkar eins og rofi, kveikir eða slekkur á starfsemi frumunnar. Deisseroth og samstarfsfólk hans sáu möguleikann á að nýta þetta til að rannsaka taugafrumur á alveg nýjan hátt.

Þær eru ekki næmar fyrir ljósi frá náttúrunnar hendi en þarna var búið að finna aðferð til að gera þær ljósnæmar. Vísindamennirnir gátu nýtt sér erfðatæknina og flutt erfðavísinn sem gaf uppskrift að framleiðslu á ljósnæmu próteini úr þörungnum, inn í taugafrumu sem fór þá sjálf að framleiða próteinið. Próteinið sest í frumuhimnuna og gerir frumuna ljósnæma. Erfðavísirinn bregst ekki sjálfur við ljósinu heldur er það próteinið sem taugafruman framleiðir eftir honum sem gerir það.

Þannig varð til þessi nýja aðferð, ljóserfðatækni, (e. optogenetics), sem sameinar erfðatækni og áhrif ljóss. Erfðatæknin undirbýr frumuna og ljósið stýrir síðan virkni hennar. Með mismunandi ljósnæmum próteinum má bæði örva eða hamla taugaboðum. Kveikja og slökkva á frumunum, kortleggja starfsemi þeirra. Einnig má hefja próteinframleiðsluna í ákveðnum frumuhópum og rannsaka hlutverk þeirra með mikilli nákvæmni.

Þetta er stórt skref í rannsóknum á heilanum. Að sjá að frumur verða virkar samhliða ákveðinni hegðun sannar ekki að þær valdi henni en með því að geta í framtíðinni, með þessari nýju tækni, breyta virkni þeirra og fylgjast með afleiðingunum má prófa orsakasambandið. Þannig geta vísindamenn kannað hvernig tilteknar taugabrautir taka þátt í minni, tilfinningum og hegðun.

Vonast er til að í framtíðinni verði þróaðar aðferðir til að hafa áhrif á starfsemi heilu taugabrautanna og heilastöðvanna.

Fyrir geðlækningar opnar þetta möguleika á dýpri skilningi á starfsemi heilans. Þó að aðferðin sé þó enn þá fyrst og fremst rannsóknartæki, einkum í dýratilraunum, binda menn vonir við að þessi nýja aðferð auki skilning á sjúkdómum í heila og leiði vonandi til nýjunga í meðferð gegn geðsjúkdómum.

Sagan minnir okkur jafnframt á gildi grunnrannsókna í ævinrýraheimi vísindanna. Við getum ekki alltaf séð fyrir hvaða spurningar leiða að mikilvægustu uppgötvunum. Forvitni um lítinn þörung varð að nýrri leið til að skilja heilastarfsemina betur.

Ólafur Þór Ævarsson er geðlæknir

Heimildir: Greinar frá Stanford University og Karolínska Institute

Tegundir birkiættkvíslarinnar

Sigurður Arnarson skrifar
07. október 2026 | kl. 14:30

Af hverju getur verið svona erfitt að slaka á?

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
06. október 2026 | kl. 06:00

Eigum við að borga brúsann?

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
03. október 2026 | kl. 06:00

Nánasta fjölskylda birkis

Sigurður Arnarson skrifar
30. september 2026 | kl. 12:30

Hús dagsins: Norðurgata 16

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
29. september 2026 | kl. 20:00

Að hverfa til einfaldleikans

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
26. september 2026 | kl. 06:00