Fara í efni
Pistlar

Hús dagsins: Norðurgata 33

100 ÁRA HÚS V

Við höldum áfram að kynna okkur hús Sveinbjarnar Jónsson hér í bæ, sem eiga aldarafmæli í ár. Þrjú þeirra standa við Norðurgötu. Eitt er við Hríseyjargötu og annað við Hafnarstræti, eitt af helstu kennileitum bæjarins. Við skiljum þó ekki endanlega við Norðurgötu, því auk húsa Sveinbjarnar standa þar þrjú hús, sem eru 100 ára í ár. Eitt þeirra stendur á suðurhorni Norðurgötu og Fjólugötu, Norðurgata 33.

Það var þann 22. mars árið 1926 að bygginganefnd Akureyrar bókaði eftirfarandi: Framlagt erindi frá Sigurði Björnssyni frá Hrísey dags. 6. þ.m. þar sem hann biður um leyfi til að byggja steinsteypt íbúðarhús við væntanleg gatnamót norðaustur af húsi no. 31 í Norðurgötu. Húsið á að vera að stærð 7x7 mtr. tvílyft á lágum grunni með lágu risi (Bygg.nefnd. Ak. 1926: nr. 582). Væntanleg gatnamót eru þá gatnamót Norðurgötu og Fjólugötu, en húsið stendur þar á horninu og aðkoman að því raunar frá Fjólugötu. Húsið mun Sigurður hafa byggt ásamt Birni (Sigurbirni) syni sínum, í félagi við Kristján Jakobsson. Sú gata tók þó ekki að byggjast fyrr en eftir 1930. Þegar Norðurgata 33 var húsið það ysta af íbúðarhúsum Oddeyrar. Ekki hafði það þó „vinninginn“ í norðlægri legu fyrir bæinn allan; við Brekkugötu höfðu íbúðarhús risið norðar. Það sem gerir þessa bókun nokkuð sérstæða er, að þarna er nefnt númer næsta húss, en á þessum tíma, og raunar áratugi á eftir, voru hús og lóðir undantekningalítið aðeins kenndar við eigendur í bókunum bygginganefndar. Svo skemmtilega vill til, að upprunalegar teikningar Sveinbjörns Jónssonar af húsinu hafa varðveist og eru það hvítar teikningar á bláu blaði, bókstaflega „blueprints“ sem kallað er á ensku.

Norðurgata 33 er tvílyft steinhús með lágu risi. Á norðurstafni er inngönguskúr, jafnhár húsinu með steyptum tröppum á aðra hæð. Veggir eru múrsléttaðir, krosspóstar í flestum gluggum og bárujárn á þaki. Helsta sérkenni hússins eru bogadregnir mænistoppar á stöfnum en að öðru leyti er húsið nokkuð látlaust. Á map.is mælist grunnflötur hússins um 8x8m og inngönguskúr á norðurstafni 1,9x3,6m. Svo skemmtilega vill til, að upprunalegar teikningar Sveinbjörns Jónssonar af húsinu hafa varðveist og eru það hvítar teikningar á bláu blaði, bókstaflega „blueprints“ sem kallað er á ensku. Þar er ekki gert ráð fyrir mænisbogunum og forstofubyggingin að norðanverðu heldur ekki að sjá. Þar er gengið inn að vestan á neðri hæð, komið inn í forstofu með tröppum upp á efri hæð. Þar eru „borðstofueldhús“ suðvestan megin, herbergi inn af því norðanmegin, geymsla suðaustan megin en norðvestan megin þvottahús, sem einnig þjónar sem kyndiklefi, salerni og kolageymslur. Á efri hæð eru eldhús, þrjú svefnherbergi og dagstofa. Enda þótt byggingarleyfi hafi verið afgreitt snemma árs 1926 er ekki flutt inn í húsið þegar manntal er tekið um haustið.

Árið 1927 eru hins vegar skráðir hér til heimilis 10 manns í 2-3 íbúðarrýmum og eigendur þeir Kristján Jakobsson mótoristi (vélstjóri) og Sigurbjörn Sigurðsson sjómaður. Kristján var innfæddur Oddeyringur, líkast til fæddur í Lundargötu 4, þar sem foreldrar hans eru skráðir til heimilis árið sem hann fæddist (1901). Í manntali ári síðar er Kristján reyndar sagður fæddur á Gautstöðum í Svalbarðsstrandarhreppi. Hann var kvæntur Soffíu Jóhannesdóttur, húsfrú frá Jarðbrúargerði í Svarfaðardal en þau höfðu áður verið bændur á Syðra-Hvarfi í Skíðadal (reyndar situr Syðra-Hvarf nokkurn veginn á mörkum Svarfaðardals og Skíðadals, séð á korti. Um það hvoru megin hryggjar Syðra- Hvarf telst verða Svarfdælingar eða Skíðdælingar að skera úr um, greinarhöfundur ætlar a.m.k. ekki að fullyrða neitt sem heimamenn kunna að vera ósammála um). Þar sem og elsti sonur þeirra, Jóhannes, fæðst þar árið 1921 en yngri börnin Guðrún og Ásgeir fædd á Akureyri 1923 og ´25. Jóhannes og Ásgeir byggðu síðar um miðja 20. öld húsið Eyrarveg 33. Sigurbjörn Sigurðsson bjó hér ásamt foreldrum sínum, Sigurði Björnssyni og Kristínu Sigurðardóttur. Þau höfðu áður búið í Hrísey, sem fyrr segir, en voru úr Skíðadal; Sigurður var fæddur á téðu Syðra-Hvarfi og Kristín í Sælu. Höfðu þau áður verið bændur í Sælu, og þar var Sigurbjörn fæddur. Auk þeirra var búsett tvítug vetrarstúlka, Jósefína Þorleifsdóttir úr Garðakoti í Svarfaðardal. Auk framangreinds fólks er hér skráð, að því er virðist í sér íbúðarrými, Elísabet Bjarnadóttir. Hvorki kemur fram hvar né hvenær hún er fædd, eða getið stöðu eða tengsla við aðra fjölskyldumeðlimi. Elísabetu er heldur ekki að sjá í manntölum næstu ára. Árið 1927 hefur húsið ekki fengið númer en árin 1928 og ´29 er það sagt númer 32. Núverandi númer fékk húsið árið 1930, en þá var Norðurgata 32 risið. Eftir 1929 virðist íbúðarrýmum nokkuð fjölga, það ár eru 15 manns skráð hér í fjórum íbúðum; auk þeirra Kristjáns og Soffíu og Sigurbjörns og foreldra hans, þrjú systkin austan úr Þingeyjarsýslu, Sigrún daglaunakona, Aðalbjörg verkakona og Benedikt verkamaður, Benediktsbörn auk tveggja ungra barna, Ragnar Mar, sonur Sigrúnar og óskírð dóttir Aðalbjargar (sem síðar hlaut nafnið Helga, og var Þórisdóttir). Sigrún var fædd á Stóru-Tjörnum, Aðalbjörg í Leifshúsum og Benedikt í Garðsvíkurgerði. Þá eru og búsett hér, árið 1929, Ragnar G. Jónsson sjómaður frá Ketu í Rípurhreppi og Guðrún Benediktsdóttir, húsfrú. Nú velta eflaust einhverjir fyrir sér, hvort Guðrún hafi verið fjórða systkinið hér til húsa, úr Þingeyjarsýslu, en svo var ekki, hún var fædd og uppalin á Sauðárkróki. Sigurður Björnsson og fjölskylda munu hafa búið á efri hæð hússins og Kristján og Soffía á þeirri neðri (þetta ræður höfundur af manntali sem tekið er löngu síðar, þar sem dóttir og tengdasonur Sigurðar eru skráð eigendur efri hæðar).

Þann 4. júlí 1927 héldu Bandaríkjamenn upp á þjóðhátíðardaginn með pompi og prakt, eins og þeim er lagið. E.t.v. hafa einhverjir brugðið sér hátíðarskottúr á eða jafnvel langferð Ford T eða álíka drossíum eftir hinum nýlagða og valinkunna Þjóðvegi 66 en hann var tekinn í notkun fáeinum mánuðum áður. En á Akureyri brugðu matsmenn Brunabótafélagsins skottúr í hús þeirra Kristjáns Jakobssonar og Sigurðar Björnssonar sem, líkt og Þjóðvegur 66, var nýlega lokið. Lýstu þeir húsinu eftirfarandi: Íbúðarhús 2 hæðir með lágu risi á lágum grunni. Á neðri hæð borðstofa, eldhús og geymsla, sams konar innrétting á efri hæð. 1 reykháfur, raf- og vatnsleiðslur. Lengd: 7,5m, Breidd: 7,5m, Hæð 5,5m, 12 gluggar, veggir úr steinsteypu og þak úr timbri, pappaklætt. 2 eldavélar, 2 ofnar, miðstöð á efri hæð (Brunabótafélag Íslands 1927: nr. 251).

Árið 1933 er Sigurbjörn Björnsson fluttur héðan en systir hans, Hallfríður Engilráð, búsett hér ásamt manni sínum, Jörundi Guðmundssyni, sjómanni úr Hrísey og sonum þeirra, Guðmundi og Herði. Kristján og Soffía flytjast úr húsinu 1942 (eða síðla árs 1941) og hingað flytjast þau Þórir Guðjónsson málarameistari og kennari, fæddur á Espihóli í Eyjafirði og Dýrleif Sigurbjörnsdóttir frá Sveinsstöðum í Grímsey, ásamt tveimur börnum þeirra. Þá eru og búsett þau Brynja Þorgrímsdóttir og Hreinn Ketilsson, 16 og 18 ára nemendur. Brynja var úr Grímsey, systurdóttir Dýrleifar og Hreinn frá Finnastöðum, bróðursonur Þóris. Kristín Sigurðardóttir og Sigurður Björnsson Árið 1947 fluttist hingað ekkja úr Skagafirði, Helga Pétursdóttir, ásamt þremur börnum sínum og föður, Pétri Björnssyni. Hún hafði misst mann sinn, Bjarna Sigurðsson, á sjó í miklu mannskaðaveðri er gekk yfir Skagafjörð þann 14. desember 1935. Þá er einnig búsettur hér Hannes Benediktsson, fráskilinn, skráður eftirlitsmaður. Hannes var einnig Skagfirðingur, hafði áður verið bóndi m.a. á Skefilsstöðum og síðar í Hvammi í Laxárdal og einnig verið póstur á Skaga. Á Akureyri vann Hannes á Gefjun. Yngsta manntal, sem aðgengilegt er á vef Héraðsskjalasafnið er frá 1954 og miðar höfundur jafnan við það, við rýningu í íbúasögu húsanna, sem um er fjallað. Vitaskuld er hægt að rekja manntöl og íbúaskrár fram á vora daga, en það vakir ekki fyrir höfundi, sem fyrst og fremst leggur áherslu á uppruna húsanna og fyrstu áratugi. Ítarlegt íbúa- og eigendatal fyrir 100 ára hús, þar sem kannski mörg hundruð manns hafa búið um lengri eða skemmri tíma myndi fylla sæmilega þykka bók.

Ekki gat höfundur séð, að hér hafi verið starfrækt verkstæði eða verslanir, a.m.k. ekki sem auglýstar voru á prenti. Árið 1967 má sjá íbúðina á efri hæð hússins auglýsta til sölu og árið 1988 er hér auglýstur til húsa, umboðsmaður fyrir legsteinasölu Álfasteins á Borgarfirði eystri og hét sá Þórður Jónsson. Húsið hefur alla tíð verið íbúðarhús með tveimur íbúðum og að mestu óbreytt frá upphaflegri gerð. Þó er inngönguskúr með tröppum á norðurhlið greinilega síðari tíma viðbót, en óvíst hvenær byggð. Húsið er í góðri prýði og til mikillar prýði og lóðin einnig gróskumikil og vel hirt. Í Húsakönnun 2020 hlýtur Norðurgata 33 miðlungs varðveislugildi sem einfalt hús, vel við haldið og fellur inn í umhverfi sitt og hluti varðveisluverðrar götumyndar (sbr. Bjarki Jóhannesson 2021: 105). Meðfylgjandi myndir eru teknar 8. sept. 2026 og 20. júní 2012.

Heimildir:

Brunabótafélag Íslands. 1929. Virðingabók Brunabótafélags Íslands, Akureyrarumboð 1922-1929. Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri, aðgengilegt á vef safnsins: https://issuu.com/heradsskjalasafnakureyri/docs/f117_3_virdingabok_1922_1929?fr=sMTZmNDQzODI5ODU Hskj.Ak. F-117/3.

Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1921-30. Fundur nr. 582, 22. mars 1926. Óprentað, óútgefið; varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri, aðgengilegt á vef safnsins: https://www.herak.is/is/skjalavefur/sveitarfelog/akureyrarbaer-1/gjordabaekur

Friðrik G. Olgeirsson, Halldór Reynisson og Magnús Guðmundsson. 1996. Byggingameistari í stein og stál; Saga Sveinbjarnar Jónssonar í Ofnasmiðjunni. Reykjavík: Fjölvi.

Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson.1995. Oddeyri Húsakönnun. Minjasafnið á Akureyri. Aðgengileg á pdf-formi á slóðinni: Oddeyri. Húsakönnun.

Beitarkóngur á Borgum

Jóhann Árelíuz skrifar
25. október 2026 | kl. 06:00

Ber í skógi

Sigurður Arnarson skrifar
21. október 2026 | kl. 12:00

Nokkur ráð til að líða betur í skammdeginu

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
20. október 2026 | kl. 12:00

Skáldkonan á Ljósavatni

Jóhann Árelíuz skrifar
18. október 2026 | kl. 10:00

Að vera góður (með sig)

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
17. október 2026 | kl. 11:00

Samanburður broddhlyns og garðahlyns

Sigurður Arnarson skrifar
14. október 2026 | kl. 10:45