Fara í efni
Pistlar

Ævispor

Jörðin er talin vera um 4,5 milljarða ára gömul og mannskepnan hefur verið til í um 300.000 ár. Við erum tæplega 40 kynslóðum frá landnámi Íslands. Meðalævi einstaklings er aðeins nokkrir áratugir. Og jörðin sjálf er aðeins örsmár hluti sólkerfisins, sem aftur er eitt af gríðarlegum fjölda sólkerfa í Vetrarbrautinni, sem er aðeins ein af ótal vetrarbrautum hins sýnilega alheims.
 
Ef 80 ára mannslíf væri sett inn á tímakvarða jarðar væri það næstum ósýnilegt.
 
En þá gerist dálítið merkilegt. Í þessari örstuttu stund verður efni alheimsins, sem við erum gerð úr, meðvitað um sjálft sig. Atóm sem urðu til í stjörnum mynda heilann okkar sem getur horft á stjörnurnar og spurt: Hvers konar heimur er þetta?Og hvað er ég? Hvers vegna er ég hér? Hvað á ég að gera við tímann sem ég fæ?
 
Okkur er úthlutað örsmáum bletti í ómælisvídd alheimsins og við fáum aðeins örstutta stund í nær óskiljanlega langri sögu hans.
 
Innan þessa litla rýmis og skamma tíma getum við upplifað heiminn, elskað, skapað, munað og haft áhrif á aðra.
 
Sé maðurinn mældur á mælikvarða alheimsins er hann nánast ekkert. Sé alheimurinn mældur frá sjónarhóli meðvitundarinnar getur ein manneskja rúmað heilan heim.
 
Segja mætti að ævispor sé sú breyting sem verður á heiminum vegna þess að einstaklingur var til. Allir setja sín spor. Og það þarf alls ekki að vera frægt fólk. Foreldri mótar barn, sem mótar annað fólk, sem aftur mótar næstu kynslóð. Kennarar og listafólk eru í aðstöðu til að hafa áhrif á marga. Og þrátt fyrir að víddin sem við lifum í sé mjög takmörkuð þá getum við haft áhrif bæði til góðs og ills. Það er skrítið að hugsa til þess að lífsrými okkar er mjög lítið, flestir lifa og hrærast innan 5-50 ferkílómetra svæðis og umgangast um 150-200 manns og aðeins 10-20 manns náið og yfir 3-4 kynslóðir.
 
En ævisporin dreifast eins og gárur og við vitum sjaldnast hversu langt þær berast.
 
Að fæðast og lifa í heimi þessum gefur okkur upplifun og reynslu sem mótar heilastarfsemina sem kemur fram í meðvitund og sjálfsmynd og þekkingu á heiminum. Það eru jafnvel vísbendingar um að heilinn sjálfur breytist og þetta hefur áhrif á hegðun og hugsun og geti haft mótandi áhrif á heila þeirra sem við hittum, meðvitund þeirra og sjálfsmynd. Áhrifin berast svo áfram, til næstu kynslóðar mann fram af manni.
 
Hver og einn getur þá valið að nota nauman tíma sinn eða örstutta stund í ómælisheimi til að vanda verk sín, samskipti og framkomu.
Ólafur Þór Ævarsson er geðlæknir

Hús dagsins: Háagerði/Syðri-Tjarnir

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
18. ágúst 2026 | kl. 09:30

Stórkostleg hátíð blásara

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
16. ágúst 2026 | kl. 14:30

Með höfuðið í gini ljónsins

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
15. ágúst 2026 | kl. 06:00

Hinn sæti sykurhlynur

Sigurður Arnarson skrifar
12. ágúst 2026 | kl. 15:00

Hverju gefum við pláss?

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
11. ágúst 2026 | kl. 06:00

Byggt á Borgum

Jóhann Árelíuz skrifar
09. ágúst 2026 | kl. 06:00