Fara í efni
Pistlar

Persónuleiki og fíkn

Það eru vísbendingar um að ákveðnir persónuleikar séu í meiri hættu en aðrir að þróa með sér fíkn. Þetta er umdeilt og erfitt að rannsaka. Og slíkt getur stundum legið í ættum. Reynsla geðlæknisins er a.m.k að til sé fólk sem er viðkvæmara og fari hraðar úr félagslegri drykkju í skaðlega áfengisnotkun og svo áfram í fíkn og stjórnlausa heilsuspillandi misnotkun. Samskonar viðkvæmni virðist geta verið til staðar við fíkniefnanotkun og sumir festast í fíkn eftir stutt fikt.
 
Ekkert er eins skaðlegt fyrir geðheilsu og félagslega heilsu og fíkn, ekki síst áfengisfíkn sem er kostnaðarsamasta heilbrigðisvandamál veraldar.
 
Samskipti skemmast, geðheilsa spillist og líkaminn gefur sig. Enn alvarlegra er að persónuleikinn breytist og fyrir rest varanlega, með þverrandi dómgreind, skertri samkennd og skapbrestum sem að lokum leiðir til minnistruflana og jafnvel heilabilunar.
 
Ef þú velur að nota áfengi, farðu þá varlega með það, búðu þér til reglur og notaðu það aðeins við gleðileg tilefni.
 
Ef fleiri en þrír nákomnir ættingjar hafa þurft að fara í meðferð eða hafa misst bílprófið ættir þú að hugleiða að nota ekki áfengi.
 
Ef þér finnst neyslan vera meiri en þú vilt eða hún truflar þig og aðra þá ættir þú að leita þér ráðgjafar, jafnvel meðferðar. Því fyrr, því betra.
 
Gangi þér allt til gæfu.
 
Ólafur Þór Ævarsson er geðlæknir

Að hverfa til einfaldleikans

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
26. september 2026 | kl. 06:00

Notkun og mikilvægi hafþyrnis

Sigurður Arnarson skrifar
23. september 2026 | kl. 11:20

Þurfum við alltaf að vera að verða betri?

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 06:00

Neita að troða nikku í kokið

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
19. september 2026 | kl. 06:00

Takk fyrir mig, Akureyri!

Orri Páll Ormarsson skrifar
18. september 2026 | kl. 12:00

Þröngsýni, sjúkdómur hinna

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
16. september 2026 | kl. 20:00