Mannúðarlánastefna og biksvartur húmor
LEIKHÚS
Fæði, klæði, húsnæði... eru hinar þrjár meginstoðir tilverunnar samkvæmt einhverri tuggu sem bergmálaði í höfði íslensks samfélags hér um árið. Við þurfum þak yfir höfuðið, það er engum blöðum um það að fletta, og þegar þessi grunnþörf manneskju er í hættu - er manneskjan til alls vís.
Í leikverkinu Fasteignamartröðin er þessi manneskja í suðupottinum. Kona, sem er dömpað af kærastanum í upphafi verks og beðin að flytja út vinsamlegast. Heimilislaus. Hún sýnir strax af sér merki þess að vera óstöðug í þessu ástandi, en það sem síðar kemur fer samt fram úr öllum sviðsmyndum sem undirrituð gat gert sér í hugarlund.
Verkið er skrifað af Gabrielé Labanauskaité frá Litháen. Hún hefur getið sér gott orð sem leikskáld í Eystrasaltsríkjunum, en hún er sögð takast á við fjölbreytt viðfagsefni með húmorinn að vopni. Það gerir hún sannarlega hér, en húmorinn er af svartari gerðinni. Hún leikur sér með innra eðli eða tilfinningar sem gjarnan eru ósýnilegar - og sýnir þær bókstaflega ljóslifandi í öllum sínum fáránleika á sviðinu. Gott dæmi er þegar óprúttnir aðilar reyna að „selja“ aðalpersónunni íbúð, þá eru þau bókstaflega sýnd með ófreskjugrímur og eru í hinum klassíska þverröndótta bol í svörtu og hvítu, sem einkennir teiknimyndaútgáfu af innbrotsþjófi.
Það var töluvert af fyndnum uppákomum og atriðum, ég vil sérstaklega nefna þær Vigdísi Höllu Birgisdóttur og Hólmfríði Hafliðadóttur sem fóru á kostum í ýmsum hlutverkum, en þær hafa sýnt það á fjölum Samkomuhússins að þær eru frábærar gamanleikkonur. Aðrir leikarar standa sig líka vel, en mér þótti þó vanta aðeins upp á dýpt persóna. Ég fann mig ekki hafa samúð eða tengingu við tilfinningar þeirra. Kannski er það líka vegna fáránleika aðstæðna, að þegar aðstæður eru óraunverulegar, er erfiðara að finna einhver gatnamót þar sem hægt er að mætast.
Sviðssetningin er skemmtileg, marglaga tjöld breytast í ólíkar íbúðir og staði sem fasteignamartröð heimilislausu konunnar býður henni upp á. Einn af hræðilegustu afkimum fasteignamartraðarinnar er bankinn. Lánafulltrúinn. Þar er mjög skemmtileg lausn í sviðssetningu, þar sem Vigdís Halla í hlutverki lánafulltrúans er bókstaflega inn í glæru búri sem birtist og hverfur á sviðinu. Frábær bókstafleg líking við það að eiga í þessum samskiptum. Eins og fulltrúi bankans sé í einhverjum öðrum og ósnertanlegum heimi. Til að undirstrika upplifun lántaka ennþá frekar, situr hún á allt of stórum stól og dinglar fótum eins og barn.
Svo er einstaklega skondið þegar bankastarfsmaðurinn kallar stefnu bankans 'Mannúðarlánastefnu'. Það er gott orð.
Verkið er vissulega um húsnæðismarkaðinn í Litháen, en passar ágætlega við okkar upplifun af íslenskum húsnæðismarkaði. Örvinglun bæði kaupenda og seljenda er dregin fram á mjög ýktan hátt, í takt við tungumál verksins. Heimsóknir konunnar í íbúðir sem eru til sölu eru mjög óþægilegar og meinfyndnar, en geðheilsa seljenda er jafnvel verr stödd en hennar. Verkið er staðfært til Akureyrar, og Hagahverfið tekur sér stöðu sem heitasta kartaflan í hverfaflóru bæjarins.
Það er hugrekki hjá Leikfélagi Akureyrar að setja óþekkt verk á svið, og það er gaman að sjá að leikhúsmenningin okkar er alltaf að færa út í kvíarnar. Svartur húmor mun alltaf eiga sína áhangendur, og þeir munu ekki verða sviknir af Fasteignamartröðinni.
Athugið að aðeins eru fjórar sýningar eftir, en miðasala er á vef Menningarfélagsins, www.mak.is
Hús dagsins: Norðurgata 33
Beitarkóngur á Borgum
Ber í skógi
Nokkur ráð til að líða betur í skammdeginu