Fara í efni
Pistlar

Brodd-Helga þáttur

EYRARPÚKINN - 78
 
Pétur á Skjaldþingsstöðum vitnaði í Bjart í Sumarhúsum sem greip feginshendi hvern nýjan dag þegar not urðu af beit og sagði mér frá Brodd-Helga þegar hann var í góðu skapi við húsasmíðar því smíðar og áform um smíðar áttu hug Péturs en heyskapur og skepnuhirðing síður.
 
Brodd-Helgi óx úr grasi hjá fóstra sínum Þorsteini hvíta og var bráðþroska og fámáll framan af, ódæll og óvæginn.
 
Þá er það dag einn að fríðarstór griðungur er kominn til nautanna á stöðli en annar tarfur var heima fyrir mikill og ógurlegur.
 
Helgi sér bolana stangast neðan af túni og hallar á heimatuddann.
 
Sótti Helgi þá mannbrodda stóra í skemmu og batt á enni heimagriðungsins og stönguðust þjórarnir þar til heimagriðungurinn gekk frá gesti.
 
Af þessum sökum var Helgi kallaður Brodd-Helgi og þótti afbragð allra manna í Vopnafirði.
 
Mér fannst hér vera svik í tafli og skoraði á Pétur í hraðskák meðan við biðum eftir þeim sólþurrkaða.
 

Jóhann Árelíuz er rithöfundur og skáld.

    • Á sunnudögum síðustu misseri hefur akureyri.net birt kafla úr Eyrarpúkanum, gáskafullu skáldverki Jóhanns Árelíuzar sem gerist á Eyrinni á Akureyri um miðja síðustu öld. Bókin kom út 2003. Brodd-Helga þáttur er kafli úr bókinni Sveskjur í sólarlaginu, síðari bók Jóhanns um Eyrarpúkann en þar segir einkum frá dvöl drengsins á æskuslóðum föður hans í Vopnafirði. Bókin kom út 2010.

Strákur að norðan

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
31. maí 2026 | kl. 11:00

Frá Búastöðum í Borgir

Jóhann Árelíuz skrifar
31. maí 2026 | kl. 06:00

Æskuvinur minn Kunta Kinte

Orri Páll Ormarsson skrifar
29. maí 2026 | kl. 11:30

Um menntakerfið á tímum gervigreindar

Magnús Smári Smárason skrifar
29. maí 2026 | kl. 06:00

Silkitoppa

Sigurður Arnarson skrifar
27. maí 2026 | kl. 09:00

Í aðdraganda kvennakvölds: Með storminn í fangið

Haraldur Ingólfsson skrifar
26. maí 2026 | kl. 15:15