Fara í efni
Pistlar

Kreppuáll, fuglalíf og ástarglóð

EYRARPÚKINN - 91

Metúsalem á Bustarfelli sagðist ætla að sprengja bombu, forystumaður íhaldsins Árni G. Eyland hefði birst á hlaðinu hjá sér og vildi alla bændur feiga.
 
Bakkfirðingar ortu
 
Árni ætlar að byggja brýrnar
og brúa tímans kreppuál,
en okkur vantar kálfa í kýrnar
og kjósum því gamla Pál.
 
 
Betri er einn fugl í hendi en tveir í skógi og hrifust fjármenn í Skeggjastaðaprestakalli lítt af borgarbúanum Árna sem kvað
 
Bankar hækka, hallir rísa, 
hér og þar er gulli stráð.
Þar munu allir eiga vísa
uppskeru í lengd og bráð.
 
Á öðrum fundi hrópar Andólfur Þú ert ekkert nema kerlingin en Bótólfur var kvæntur konu af betra fólki.
 
Segir þú sem sérð bara til annarrar handar og ekki getur getið konu þinni barn svaraði Bótólfur.
 
Ebba í Miðhúsum og Steindóri Hraunfellingi fannst þetta þref lítilmótlegt enda ágætlega náttúraðir og orti Ebbi
 
Morgnarnir á Miðhúsum 
í minningunni geymast.
Fuglalíf við fjöruna
og fjöllin aldrei gleymast.
 
Ekki stóð á Steindóri
 
Fram á sundi öndin óð 
er að þóknast steggnum.
Ennþá lifir ástarglóð
undir Miðhúsveggnum.
 

Jóhann Árelíuz er rithöfundur og skáld.

    • Á sunnudögum um langa hríð birti akureyri.net kafla úr Eyrarpúkanum, gáskafullu skáldverki Jóhanns Árelíuzar sem gerist á Eyrinni á Akureyri um miðja síðustu öld. Bókin kom út 2003. Kreppuáll, fuglalíf og ástarglóð er kafli úr bókinni Sveskjur í sólarlaginu, síðari bók Jóhanns um Eyrarpúkann en þar segir einkum frá dvöl drengsins á æskuslóðum föður hans í Vopnafirði. Bókin kom út 2010.

Eigum við að borga brúsann?

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
03. október 2026 | kl. 06:00

Nánasta fjölskylda birkis

Sigurður Arnarson skrifar
30. september 2026 | kl. 12:30

Hús dagsins: Norðurgata 16

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
29. september 2026 | kl. 20:00

Að hverfa til einfaldleikans

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
26. september 2026 | kl. 06:00

Notkun og mikilvægi hafþyrnis

Sigurður Arnarson skrifar
23. september 2026 | kl. 11:20

Þurfum við alltaf að vera að verða betri?

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 06:00