Fara í efni
Pistlar

Byggt á Borgum

EYRARPÚKINN - 92

Einar Jónsson unni sér hvorki matar né hvíldar í uppbyggingu Borga og þutu viðvaranir mömmu sem þeyr um eyru stritandi stjörnuskinans.
 
Langafi á Þorbrandsstöðum sagði Ef sonurinn byggir ekki þá byggir ekki faðirinn og varð að klára íbúðarhúsið undir veturnætur en þegar Steindór benti bróður sínum á að bæta einu herbergi við teikningar Nýbýlastyrksins eins og þeir gerðu fleiri í sveitinni fór Einar eftir bókinni.
 
Það getur dregið dilk á eftir sér að breyta út af sagði hann og var ekki frekar rætt.
 
Það var ekki bara fjölskyldan sem þurfti þak yfir höfuðið, féð mátti ekki fenna í kaf í fjárhússkorti.
 
Undir þessu fárveiktist pabbi þegar hann hljóp eftir nagla út í Sunnudal á þunnri skyrtu í grimmdarfrosti og uppskar heymæði fyrir og var kannski niðurlag sjúkdómsins á Siglufirði.
 
Lút ei svo við gamla fallna bæinn 
byggðu nýjan, bjartan, hlýjan
brjóttu tóftir hins
 
kveðjur Einar Ben og virti mamma dugnað og áræði bónda sins en fannst ætíð dimmt og drungalegt uppi á Borgum þrátt fyrir góða granna í Sunnudal og tengdamóður inni á Hraunfelli og dreymdi Hvammsgerðishringinn og víðsýnið þaðan.
 

Jóhann Árelíuz er rithöfundur og skáld.

    • Á sunnudögum um langa hríð birti akureyri.net kafla úr Eyrarpúkanum, gáskafullu skáldverki Jóhanns Árelíuzar sem gerist á Eyrinni á Akureyri um miðja síðustu öld. Bókin kom út 2003. Byggt á Borgum er kafli úr bókinni Sveskjur í sólarlaginu, síðari bók Jóhanns um Eyrarpúkann en þar segir einkum frá dvöl drengsins á æskuslóðum föður hans í Vopnafirði. Bókin kom út 2010.

Að endurtaka endurtekna þætti

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
12. september 2026 | kl. 09:00

Ilmbirki heima og erlendis

Sigurður Arnarson skrifar
09. september 2026 | kl. 09:00

Hvernig hefurðu það, í alvöru?

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
08. september 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Knarrarberg

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
07. september 2026 | kl. 02:00

Jól á Borgum

Jóhann Árelíuz skrifar
06. september 2026 | kl. 06:00

Einfaldir karlmenn

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
05. september 2026 | kl. 06:00