Fara í efni
Pistlar

Glímt við Selána

EYRARPÚKINN - 88

Bújarðir lágu ekki á lausu og vélaðist stundum til um þær undir helgisvip Hofskirkju og Kaupfélagsstjóra og voru blýlit skammdegisskýin þegar pabbi kom sér fyrir í Selárkláfnum og ætlaði í Hvammsgerði eftir bæjarleit í dalnum að líta augum vel hirt fé, fá sér í nefið með kaffi og lummum Kristínar og hlæja að skemmtan góðri.
 
Einhver mistök urðu þá þess valdandi að karli föður hvolfdi úr kláfnum og hvarf í kólgugræna ána.
 
Saup Einar hveljur sem hann tróð marvaðann og kom sér vel hvað hann var fatalítill og gleypti mikið af lofti þegar honum skaut upp svo skyti honum upp sem allra fyrst aftur.
 
Seláin skolaði pabba á land þrisvar sinnum en hann tók jafnharðan út aftur uns kominn var út á Hvammsgerðiseyrar.
 
Þar tókst Búastaðabóndanum að klóra sig í fast og birtist rifinn og tættur í bæjargætt tengdaforeldranna.
 
Ég gætti mín eins og verða mátti að reka ekki hnakkann í klettabjörgin sagði pabbi.
 
Þetta var hin þriðja lífshætta Einars Jónssonar Hraunfellings og dæmdi ég af frásögn föður míns að þarna hefði hann komist í'ann krappastan.
 

Jóhann Árelíuz er rithöfundur og skáld.

    • Á sunnudögum um langa hríð birti akureyri.net kafla úr Eyrarpúkanum, gáskafullu skáldverki Jóhanns Árelíuzar sem gerist á Eyrinni á Akureyri um miðja síðustu öld. Bókin kom út 2003. Glímt við Selána er kafli úr bókinni Sveskjur í sólarlaginu, síðari bók Jóhanns um Eyrarpúkann en þar segir einkum frá dvöl drengsins á æskuslóðum föður hans í Vopnafirði. Bókin kom út 2010.

Að hverfa til einfaldleikans

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
26. september 2026 | kl. 06:00

Notkun og mikilvægi hafþyrnis

Sigurður Arnarson skrifar
23. september 2026 | kl. 11:20

Þurfum við alltaf að vera að verða betri?

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 06:00

Neita að troða nikku í kokið

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
19. september 2026 | kl. 06:00

Takk fyrir mig, Akureyri!

Orri Páll Ormarsson skrifar
18. september 2026 | kl. 12:00

Þröngsýni, sjúkdómur hinna

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
16. september 2026 | kl. 20:00