EYRARPÚKINN - 97
Það var dugnaðarmaður Jón Kristjánsson sagði presturinn sem kastaði rekunum á kistulok afa á Hraunfelli.
Amma Þórunn glæsileg kona mikil á velli reið í söðli á reiðpilsi og dökkblárri peysu út á Tanga að herja út kornvöru í Kaupfélaginu handa hungruðum Hraunfellsúlfum.
Að koma upp tólf börnum í þröngum dal var afrakstur linnulausrar vinnu og tók pabbi fast í heimasaumsnálina þegar mamma sagði mér frá frostköldum og æðaberum fótum Jóns Kristjánssonar sem mamma þvoði og nuddaði þegar afi braust til þeirra á Búastöðum í þungri vetrarfærð og fannst mömmu mest um hversu bljúgur Jón var og þakklátur fyrir allt sem fyrir hann var gert.
Eina barn Hraunfellshjóna sem féll fyrir aldur fram var Sigurlaug fædd 1905 en Sigurlaug dó um tvítugt úr skæðum sjúkdómi og þótti einkar lagleg stúlka.
Jóhann Árelíuz er rithöfundur og skáld.
- Á sunnudögum um langa hríð birti akureyri.net kafla úr Eyrarpúkanum, gáskafullu skáldverki Jóhanns Árelíuzar sem gerist á Eyrinni á Akureyri um miðja síðustu öld. Bókin kom út 2003. Afi og amma á Hraunfelli er kafli úr bókinni Sveskjur í sólarlaginu, síðari bók Jóhanns um Eyrarpúkann en þar segir einkum frá dvöl drengsins á æskuslóðum föður hans í Vopnafirði. Bókin kom út 2010.