Timburmenn

Að vera timbraður er orðalag um afleiðingar af notkun áfengis og lýsir fráhvarfi eftir drykkju áfengis í eitt kvöld eða eina helgi. Þetta er líkamlegt ástand, eftir notkun vímuefnis sem í raun hefur eitrunaráhrif og einkennin eru höfuðverkur, roði og heit húð, slen, hraður hjartsláttur, spenna og svefnleysi. En þar sem áfengi er hugbreytandi efni eru einkennin líka andleg með kvíða og depurð, viðkvæmni fyrir hljóðum og ytra áreiti, skapbreytingum, pirringi og skertri ályktunarhæfni og einbeitingu.
Eftir hið efnafræðilega vellíðunarástand vímunnar birtist þynnka fráhvarfsins sem með endurtekningu leiðir til aukinnar löngunar í efnið og vímu þess og vaxandi þols. Þess vegna er afréttarinn þegar hann eða hún fær sér drykk daginn eftir til að milda truflandi einkenni fráhvarfsins eða þegar hann eða hún þarf að drekka hraðar eða meira til þess að geta skemmt sér í boðunu, alvarleg merki um að fíkn sé að myndast.
Áfengisfráhvarf eftir langvarandi fyllerí eða samfellda áfengisnotkun er lífshættulegt ástand. Efnaskipti eru eitruð, innri líffæri eins og lifrin óstarfhæf og óeðlilegt og hættulegt álag verður á hjartað. Heilinn er bilaður og mikill óróleiki og skjálfti gerir vart við sig og að lokum hverfur raunveruleikaskyn og vitræn starfssemi truflast. Hann er með tremma er þá sagt eða hún er komin i deleríum þegar ofskynjanir eða rugl bættist við.
Annað dæmið um alvarlegan skaða af áfengisdrykkju er bráð áfengiseitrun eða áfengisdauði útihátíðarinnar, oft hjá ungu fólki, með meðvitundarleysi og lífshættulegri dempun á stýringu öndunar.
Þriðja dæmið er svo hin áhrifamikla breyting á heilsu, hegðun, hugsun og hamingju sem alkóhólistinn og fjölskylda hans verða fyrir.
Vertu varkár í umgengni þinni við áfengi. Ef þú færð timburmenn eða drekkur illa, eða margir drykkjumenn eru í ættinni þinni, þá ættir þú að hugleiða að nota alls ekki áfengi. Ef þú ert undir álagi, í samskiptaerfiðeikum eða í sorg. Svo ekki sé talað um andleg veikindi eða einbeitingatruflun. Þá ættir þú að fara sérstaklega varlega í áfengisnotkun. Fræddu börnin þín og hvettu þau til að bragða ekki áfengi fyrir tvítugt, á meðan heilinn er enn að þroskast. Ef þú velur að nota áfengi, settu þér þá reglur um notkun þess, notaðu skynsemi, þekkingu og varkárni.
Vertu góð fyrirmynd.
Ólafur Þór Ævarsson er geðlæknir


Reikningur vegna látins manns

Sýprus

Brilljantín

Garðsvík; gamla íbúðarhúsið
