Hús dagsins: Norðurgata 26

Norðurgata 26 er tvílyft steinsteypuhús (gæti mögulega verið hlaðið úr r-steini að einhverju leyti) með háu valmaþaki. Húsið skiptist eftir miðju í tvo eignarhluta og eru margskiptir eldri póstar í vesturhluta en nýlegir krosspóstar austanmegin. Bárujárn er á þaki og veggir múrsléttaðir. Grunnflötur hússins er 8,09x10,09m, skv. teikningum Ingvars Gýgjars Sigurðarsonar. Sveinbjörn Jónsson teiknaði, sem fyrr segir Norðurgötu 26. Það er að mörgu leyti líkt og smækkuð mynd af Norðurgötu 16, tvílyft hús með valmaþaki, sem hann teiknaði sama ár fyrir frændsystkin sín, Jóhann og Þorbjörgu Þórðarbörn og fjölskyldur þeirra. Það eru þó engan veginn nein sérstök höfundareinkenni hans; Sveinbjörn Jónsson teiknaði alls konar hús, mörg hver gjörólík hvert öðru.
Magnús Halldórsson og Jón Sigurðsson voru ættaðir sitt hvoru megin Eyjafjarðar, Magnús fæddur á Þorsteinsstöðum í Grýtubakkahreppi árið 1900 og Jón á Göngustöðum í Svarfaðardal árið 1897. (Í Manntali 1927 er hann reyndar sagður fæddur 1898 en islendingabok.is segir 1897). Magnús stundaði útgerð en Jón var trésmiður. Það er ólíklegt, að þeir hafi nokkurn tíma búið í þessu húsi, ef svo er hefur það verið mjög skamma hríð. Síðar gerðist Magnús útgerðarmaður í Hrísey en Jón húsasmíðameistari á Dalvík og var um tíma bóndi á fyrrgreindum Göngustöðum. Svo vill til, að báðir létust þeir árið 1980.
Fyrstu skráðu íbúar hússins voru sem fyrr segir þeir bræður Óskar og Magnús Gíslasynir. Þeir eru skráðir hér eigendur þegar húsið er metið til brunabóta 26. júní árið 1926. Það vill svo merkilega til, að það er rúmri viku áður en Magnús Halldórsson og Jón Sigurðsson fá byggingaleyfi fyrir húsinu! Ekki finnst byggingarleyfi fyrir Óskar og Magnús Gíslasyni við Norðurgötu á þessum árum, byggingarleyfi Magnúsar og Jóns á greinilega við þetta hús. Hafa þeir e.t.v. ráðist í byggingu húss á þessum stað um vorið, þegar ljóst var að þeir fengju ekki að byggja við Gránufélagsgötuna og síðan nýtt nýja leyfið til þess að byggja neðar við götuna þ.e. hús nr. 10? Og mögulega selt múrurunum hið nýbyggða hús þegar þeir hófust handa við að byggja enn annað? Því verður ekki svarað hér en auðvitað gætu hafa verið gerðir samningar og samkomulög manna á milli sem ekki hafa ratað á pappír eða skjöl og lifa mögulega aðeins í munnlegri geymd afkomenda þessara ágætu manna. En hvað sem skráðum opinberum gögnum líður var Norðurgata 26 risin í júní 1926 og eigendur hennar, bræðurnir Magnús og Óskar Gíslasynir. Ekki kemur fram hvor þeirra á hvorn helming en húsinu lýst svo: Íbúðarhús, tvær hæðir á lágum grunni með lágu risi. Á neðri hæð 3 stofur, forstofa, þvottahús, eldhús, eitt geymsluherbergi, kolakompa og salerni. Efri hæð eins og neðri hæð. 2 reykháfar, rafljós, vatn og skólp er í húsinu og miðstöðvarhitun. 2 eldavélar, 2 þvottapottar og miðstöð. Lengd. 10m, breidd 8m, hæð 6m, 17 gluggar. Veggir steyptir, þak steypt [Hér er væntanlega átt við þakplötuna undir valmaþakinu] (Brunabótafélag Íslands: nr. 155).
Óskar og Magnús Gíslasynir voru, sem fyrr segir, úr Svarfaðardalnum, Magnús fæddur að Hrísum árið 1895 en Óskar í Halldórsgerði fimm árum síðar. Magnús var kvæntur Jóhönnu Júlíusdóttur, sem fædd var að Syðra-Garðshorni í Svarfaðardal og höfðu þau áður búið m.a. á Tjörn í sömu sveit. Óskar var kvæntur Agneu Tryggvadóttur sem fædd var á Akureyri, en hún var á fyrsta ári (í manntali 1901) skráð til heimilis að Hafnarstræti no. 37, sem virðist hafa verið hús Magnúsar Einarssonar organista, þ.e. Hafnarstræti 105. Alls bjuggu 10 manns í Norðurgötu 26 árið 1926, en ásamt tveimur börnum þeirra Óskars og Agneu bjuggu þar móðir þeirra bræðra, Margrét Jónsdóttir og systir, Rannveig Gísladóttir. Svo vill til, að líkast til rétt um það leyti sem fjölskyldurnar fluttust inn í húsið, í maímánuði 1926 fæddust þar börn; Magnús og Jóhanna eignuðust soninn Kristinn þann 24. maí og Óskari og Agneu fæddist sonur þann 7. maí sama vor og hlaut sá nanfið Hreinn.

Magnús, Óskar og fjölskyldur þeirra áttu ekki heima hér mörg ár, þeir fengu í ágúst 1930 leyfi til að byggja hús við Ránargötu 2, sem fullbyggt mun hafa verið árið eftir. Árið 1930 er Magnús Oddsson, sjómaður frá Bandagerði í Glæsibæjarsókn (Glerárþorpi) skráður eigandi, að því er virðist alls hússins og býr í öðrum eignarhlutanum ásamt konu sinni, Ólöfu Árnadóttur frá Mógili á Svalbarðsströnd. Á móti þeim búa þau Gunnar Jónsson skipasmiður frá Hléskógum í Grýtubakkahreppi og Ingibjörg Veronika Ásbjörnsdóttir frá Þingeyrarhreppi í V-Ísafjarðarsýslu. Þau síðarnefndu bjuggu ekki lengi hér, því líkt og þeir Magnús og Óskar fékk Gunnar byggingarleyfi við Ránargötuna, vorið 1931 og reisti þá Ránargötu 4.
Árið 1940 virðist búið hér í þremur íbúðarrýmum, þá eru Magnús Oddsson og Ólöf Árnadóttir skráð hér, einnig Kristinn Þorsteinn Sigurbjörnsson sjómaður Grýtubakkahreppi og Sigríður Guðnadóttir ásamt fjölskyldu. Í þriðju íbúðinni búa þau Heiðrekur Guðmundsson frá Sandi í Aðaldal og Kristín Kristjánsdóttir frá Bergstöðum í sömu sveit og sonur þeirra á fyrsta ári, Völundur. Heiðrekur var valinkunnur rithöfundur, hagyrðingur og verslunarmaður og muna margir hann úr Eyrarbúðinni, sem var í þarnæsta húsi sunnan við Norðurgötu 26, þ.e. Eiðsvallagötu 18 (Lárusarhúsi). Heiðrekur var nokkuð afkastamikið skáld og rithöfundur, sendi m.a. frá sér sjö ljóðabækur Heiðrekur stundaði búskap á yngri árum en eftir að hann flutti til Akureyrar fékkst hann við verslunarstörf og síðustu ár starfsævinnar (1969-83) sem forstöðumaður Vinnumiðlunarskrifstofu Akureyrar. Stóð Heiðrekur um árabil verslunarvaktina í Lárusarhúsi á horni Eiðsvallagötu og Norðurgötu og hét sú verslun í Eyrarbúðin. Heiðrekur og Kristín stöldruðu stutt við hér, fluttust ári síðar í Strandgötu og reistu fáeinum árum síðar húsið Eyrarveg 27, þar sem þau bjuggu allar götur síðan.
Tvær vísur eftir Heiðrek Guðmundsson:
Æskulýður elskar hríð
eftir stríði bíður.
Ellin kvíðir illri tíð
inn í híðið skríður.
Innilegið auðvaldsþý
aðra flegið hefur
svikatreyju sýslar í
sápuþveginn refur.
Í þeim manntölum sem greinarhöfundur fletti, er hvergi tekið fram, hvoru megin hvor íbúð er. Árið 1954 eru búsett hér þau Jónatan Magnússon vélstjóri og Bergþóra Lárusdóttir og börn þeirra annars vegar og hins vegar þau Valdimar Jónsson iðnverkamaður hjá Kaffibrennslu Akureyrar og Filippía Guðrún Kristjánsdóttir sem titluð er skáldkona í manntalinu. Filippía Guðrún, sem fædd var á Skriðu í Svarfaðardal árið 1905 gekk yfirleitt undir skáldanafninu Hugrún og sendi hún frá sér tæplega 30 rit á ferli sínum, ljóðabækur, skáldsögur og barnabækur. Á meðal bóka hennar eru t.d. barnabækurnar Anna Dóra og Dengsi, Hvað er á bak við fjallið?, Sagan af Snæfríði prinsessu og Gylfa gæsasmala, skáldsögurnar Fanney á Furuvöllum og Draumurinn um ástina. Hér mun hún hafa búið til ársins 1956, er þau Valdimar fluttu til Reykjavíkur.
Við lát Valdimars árið 1959 orti Filippía langt kveðjuljóð, sem sjálfsagt er að birta hér:
Þig eg kveð með þökk og trega,
þú varst sterkur Valdimar
og svo traustur ævinlega,
eitthvað þegar leitt til bar.
Orsök gjörðir yfirvega,
afleiðingar fannstu þar.
Það var gott til þín að fara,
þín var trúin ekkert fis.
Oft þú sagðir: „Ei má stara
út í myrkur vonleysis,
treystu Drottni! trúðu bara,
trú á mátt til hjálpræðis".
Heill í lífi, heill í starfi,
hagur annars var þitt mið.
Gott er að skila góðum arfi
við gönguna inn á æðra svið.
Ómissandi er þegninn þarfi,
þar er herrans styrka lið.
Aldrei máttir vamm þitt vita
Vongóður í hverri raun.
Þú í dagsins þunga og hita,
þolinmóður barst þín kaun.
Um þig vil eg reyna að rita
rétt og satt, þau færðu laun.
Þú færð önnur ennþá betri.
Í ekkert gagna launin mín,
glóa hin með gullnu letri.
Guðleg birta við þér skín,
þar við tekur vor af vetri,
verður eilíf gleðin þín.
Hjartans þakkir fram eg færi,
finn eg kennd, sú aldrei dvín.
Hinzta svar þitt lýður læri:
„Lítil væri trúin mín —
ef öruggur eg ekki væri“,
orðin voru siðstu þín.
(Filippía Kristjánsdóttir 1959: 8)

Margir hafa átt hér eignarhluta hússins og búið þar um lengri eða skemmri tíma þessa síðastliðnu öld. Öfugt við það sem oft vill verða á hundrað ára ævi húsa, hefur húsinu næsta lítið verið breytt frá upphaflegri gerð, t.d. aldrei verið byggt við eða þaki breytt o.s.frv. Fyrir liggja nýlegar teikningar að endurbótum á vesturhluta hússins, þar sem kominn er tími á viðhald m.a. á þaki og gluggum og eru teikningar gerðar af Ingvari Gýgjari Sigurðssyni. Austurhlutinn er nýlega yfirfarinn, þar er t.d. nýleg múrhúð og gluggar. Eins og alla tíð skiptist húsið í tvo eignarhluta um miðju og telst austurhlutinn 102 og vesturhluti 101, samkvæmt staðlaðri og lögbundinni skráningu eignarhluta fjöleignarhúsa. Norðurgata 26 er stílhreint og einfalt hús og til mikillar prýði í hinni löngu og margbrotnu húsaröð, sem Norðurgatan er. Í Húsakönnun 2020 hlýtur húsið miðlungs varðveislugildi með umsögninni: Húsið er með eldri húsum á Akureyri. Einfalt hús sem fellur þokkalega að umhverfi sínu (Bjarki Jóhannesson 2021: 100) og telst hluti þeirrar varðveisluverðrar heildar, sem húsaröðin við Norðurgötu er. Meðfylgjandi myndir eru teknar 8. sept. 2026 og 31. júlí 2011.
Heimildir:
Brunabótafélag Íslands. 1929. Virðingabók Brunabótafélags Íslands, Akureyrarumboð 1922-1929. Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri, aðgengilegt á vef safnsins: https://issuu.com/heradsskjalasafnakureyri/docs/f117_3_virdingabok_1922_1929?fr=sMTZmNDQzODI5ODU Hskj.Ak. F-117/3.
Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1921-30. Fundur nr. 583, 10. apríl 1926. Óprentað, óútgefið; varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri, aðgengilegt á vef safnsins: https://www.herak.is/is/skjalavefur/sveitarfelog/akureyrarbaer-1/gjordabaekur
Filippía Kristjánsdóttir. 1959. Valdimar Jónsson verzlunarmaður. Í Morgunblaðinu 51. tbl. 46. árg., 3. mars, bls. 8.
Friðrik G. Olgeirsson, Halldór Reynisson og Magnús Guðmundsson. 1996. Byggingameistari í stein og stál; Saga Sveinbjarnar Jónssonar í Ofnasmiðjunni. Reykjavík: Fjölvi.
Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson.1995. Oddeyri Húsakönnun. Minjasafnið á Akureyri. Aðgengileg á pdf-formi á slóðinni: Oddeyri. Húsakönnun.
Ljósi varpað á leyndardóma heilans
Af hverju getur verið svona erfitt að slaka á?
Eigum við að borga brúsann?
Nánasta fjölskylda birkis