Tegundir birkiættkvíslarinnar
TRÉ VIKUNNAR - 185
Pistill í röðinni Tré vikunnar birtist vikulega á vef Skógræktarfélags Eyfirðinga, alla miðvikudaga. Akureyri.net birtir brot úr hverjum pistli til að vekja athygli á skrifunum og hvetur fólk til að lesa meira á vefsíðu félagsins.
_ _ _
Á Íslandi vaxa tvær tegundir villtar af birkiættkvíslinni. Þær heita birki eða ilmbjörk, Betula pubescens og fjalldrapi, B. nana. Að auki hafa nokkrar tegundir verið reyndar á landinu þótt árangurinn sé býsna misjafn. Erlendis má sjá hinar og þessar tegundir birkis og í þessum pistli fjöllum við um sumar þeirra og helstu tegundir sem reyndar hafa verið hér á landi. Rétt er að taka það strax fram að fræðingar eru hreint ekki sammála um hvernig flokka beri tegundir ættkvíslarinnar. Reyndar er ekki einu sinni eining um hvort eða hvernig skilgreina skuli ólíka erfðahópa sem tegundir innan ættkvíslarinnar eða hvar mörk erfðahópanna liggja. Í mörgum tilfellum væri það meira í anda hefðbundinnar líffræði að tala um staðbrigði (ecotyp) en tegundir þar sem mismunandi erfðahópar geta tímgast og eignast saman frjóa afkomendur. Á meðal þeirra sem bent hafa á þennan möguleika er Þorsteinn Tómasson (2026) sem hefur blandað saman erfðaefni tegunda til að kynbæta birki með frábærum árangri.

Flokkun birkis í tegundir hefur lengi verið á reiki. Útilokað er að við tökum að okkur að lýsa öllum tegundum ættkvíslarinnar enda getum við hvorki fullyrt hversu margar þær eru eða hvort þær eru beinlínis til. Þegar farið er of djúpt í þessi fræði eykst ruglingurinn. Hann getur orðið svo mikill að hætt er við að mennirnir í hvítu sloppunum nái í mann þegar allt er komið í óleysanlegan hnút. Þess í stað skoðum við hvernig reynt hefur verið að flokka ættkvíslina niður í deildir og í framhaldinu í ólíkar tegundir. Í pistlinum kemur fram að alltaf eru örlitlar breytingar. Þær byggjast gjarnan á nýjum upplýsingum eða mismunandi sjónarhornum. Líta má á þennan pistil sem framhald af síðasta birkipistli okkar þar sem við sögðum frá nánustu fjölskyldu birkisins.

Tegundir
Um tíma vildu margir grasafræðingar skipta ilmbirkinu, Betula pubescens, í nokkrar tegundir. Stundum voru slíkir fræðingar kallaðir hártogarar (e. splitters). Í flestum tilfellum hefur verið fallið frá því af grasafræðingum sem kallaðir eru hrúgarar (e. lumpers). Auðvitað mælum við ekki með slíkum háðsyrðum og tökum þau aðeins í munn í uppfræðslutilgangi. Þetta, ásamt fleiri sambærilegum æfingum grasa- og flokkunarfræðinga, hefur leitt til þess að fjöldi tegunda er nokkuð á reiki. Því er það þannig að heimildum ber hreint ekki saman um fjölda þeirra innan ættkvíslarinnar. Stundum liggur ekki fyrir hvar mörk tegunda og undirtegunda (sem stundum eru flokkaðar sem sérstakar tegundir) liggja og hvað skuli telja til sjálfstæðra tegunda og staðbrigða sömu tegundar. Þetta ósamræmi getur hleypt fjöldanum nokkuð upp á við og útskýrir að hluta þennan mikla mun á fjölda tegunda sem sjá má í mismunandi heimildum. Svo verður því varla neitað að margir grasafræðingar hafa metnað til að skilgreina nýjar tegundir og fá nafn sitt birt í alþjóðlegum fræðiritum fyrir vikið. Stundum seilast menn af öllum kynjum nokkuð langt til að uppfylla þann metnað.

Við getum sagt að tegundirnar eru að minnsta kosti á bilinu 30 til 60. Nefna má að í alfræðiritinu Britannica (2026) eru tegundirnar sagðar vera 40 en á vef Trees and Shrubs Online eru þær sagðar miklu fleiri og sama er að segja um vefinn The World Flora Online.
Sigurður Arnarson er í stjórn Skógræktarfélags Eyfirðinga.
Smellið hér til að sjá allan pistilinn: Tegundir birkiættkvíslarinnar
Af hverju getur verið svona erfitt að slaka á?
Eigum við að borga brúsann?
Nánasta fjölskylda birkis
Hús dagsins: Norðurgata 16