Fara í efni
Pistlar

Þegar vinnan er farin í hundana

Á SPJALLI MEÐ AÐALSTEINI ÖFGAR – 11

„Finnst þér ekki forkostulegt hvernig við höfum selt sál okkar, menningu og allt sem okkur er kærast, börnin og fjöregg þjóðar í hendur ótilgreindra snillinga sem ætla nú aldeilis að breyta heiminum til hins betra? Ég var búinn að vara við þessum gráðugu greppitrýnum en bláeygur almenningur sá bara hin gullnu tækifæri en ekki gereyðingu tilverunnar og dauðadjúpar sprungur mannsálarinnar. Allt fyrir tæknina. Útrýmum mennskunni, maskínan skal sigra!“

Ég heyrði að Aðalsteinn vinur minn Öfgar var í maníu og að auki nokkuð við skál og síminn minn var logandi heitur svo ég þurfti að halda honum langt frá eyranu. Alli hafði ekki treyst sér til að hitta mig í þó nokkurn tíma en hringdi þeim mun oftar.

„Hélt fólk í alvöru að vitlíkið, tæknin og tryllingurinn myndi hlífa einhverjum?“ hélt Aðalsteinn áfram og gerði greinilega ekki ráð fyrir svörum, svo mikill var asinn. „Við erum að útrýma störfum í massavís með gervigreind, róbótum, drónum og öðrum tæknibrellum og meira að segja fá þeir sem vinna í slíkum geira að kenna á þessu sjálfir, eins kaldhæðnislegt og það er. Allt skal verða vélrænt og sjálfvirkt, burt með fjandans fólkið, það er bara til trafala, vill fá kaup og mat og veikindaleyfi og alls kyns pjatt.“

„En skapandi greinar og…“ Ég komst ekki lengra.

„Jæja, svo þú gleyptir við þeirri blekkingu og bulli? Blaðrinu um að ritstörf, fjölmiðlun, kennsla, listgreinar og það sem krefst hugvits og sköpunar yrði áfram til staðar, mennskan yrði ekki máð út. Ha, ha, ha, þannig fór um sjóferð þá. Þetta vitlíki eða gervigreind ryðst fram með öppum og glöppum og algerum skorti á sómakennd. Þetta lið sogar heilu skáldsögurnar og kennsluefnið inn í gímöldin sín sem gagnaverin fóstra fyrir lítinn ávinning og síðan dæla þessar maskínur út bókum á ýmsum tungumálum og tilsniðnu kennsluefni, tónlist og listaverkum og hverju sem hugurinn girnist og fólkið sem helgaði líf sitt þessum skapandi störfum stendur gapandi eftir eins og þorskar á þurru landi.“

Alli gerði augnabliks hlé til að súpa á einhverju og dæsa en síðan hélt orðaflaumurinn áfram og varð æ samhengislausari.

„Og hvað gera allir þeir sem missa vinnuna? Förum við aftur að moka skurði, skeina og skera fisk? Nei, ætli róbótarnir geri það ekki líka. Kannski er náttúran þegar farin að bregðast við þessu, að minnsta kosti hér á landi og almennt á vesturlöndum þar sem barneignir dragast saman.

Kannski er tæknin að koma til móts við fólksfækkun og getuleysi, vísitölufjölskyldan er ekki lengur hjón með tæplega tvö börn heldur par af einhverju tagi, jafnvel í opnu sambandi og af síendurskilgreindu kyni með tvo smáhunda og gúbbífiska. Þess vegna veit ég ekki af hverju er verið að byggja svona stórt og dýrt, það verða engar stóra fjölskyldur lengur, bara einstaklingar eða pör með gæludýr og róbóta. Annar aðilinn gæti jafnvel verið útivinnandi ef vinnu er að fá en hinn vinnur „að heiman“ til að geta verið með hundunum og þá við einhvers konar tölvukerfisumsjón eða róbótaeftirlit. Og þetta lið þarf varla bíl því helstu nauðsynjar koma frá Kína og ýmsum netverslunum og verða brátt fluttar með drónum heim til viðkomandi. Ferðalög verða aðallega í sýndarveruleika.“

Nú var ég farinn að missa þráðinn en heyrði að Alli var að tala um að ekki yrði lengur bið eftir leikskólaplássi eða vandræði við að komast í unglingavinnuna því börn og unglingar yrðu af skornum skammti og þeim mun meira að gera í kringum umönnun smáhunda og annarra gæludýra. Fjölgun eldri borgara yrði svo mætt með fjölgun róbóta og afþreyingarklefa með sýndarveruleika.

„Hvað á fólkið svo að hafa fyrir stafni? Kannski ættum við endurvekja hugmyndina um borgaralaunin, að greiða fólki fyrir að gera ekki neitt nema kannski tína rusla á götum og hreinsa fjörur… nei, auðvitað gera róbótar og drónar það líka. Æ, það er allt farið í hundana, ég held ég leggi mig.“

Þar með sleit Aðalsteinn Öfgar símtalinu. Ég verð að líta til hans við tækifæri, þessi framtíðarsýn er ekki beinlínis uppbyggileg og vonandi bara hugarórar. Eða hvað?

Góðar stundir.

Stefán Þór Sæmundsson er manneskja og kennari í samkeppni við maskínur og vitlíki

Hús dagsins: Norðurgata 26

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
09. október 2026 | kl. 10:45

Tegundir birkiættkvíslarinnar

Sigurður Arnarson skrifar
07. október 2026 | kl. 14:30

Ljósi varpað á leyndardóma heilans

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
07. október 2026 | kl. 14:00

Af hverju getur verið svona erfitt að slaka á?

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
06. október 2026 | kl. 06:00

Eigum við að borga brúsann?

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
03. október 2026 | kl. 06:00

Nánasta fjölskylda birkis

Sigurður Arnarson skrifar
30. september 2026 | kl. 12:30