Hjörleifur Hjartarson, tónlistarmaður og leikskáld með meiru, birti fallegan pistil um Þorvald heitinn Þorsteinsson, skólabróður sinn og vin, á Facebook á laugardaginn. Þá var afhjúpaður bekkur á Hamarkotstúni á Akureyri til minningar um Þorvald. Hjörleifur var svo vinsamlegur að gefa akureyri.net leyfi til að birta pistilinn.
Hjörleifur ritaði stuttan inngang, svohljóðandi:
Í dag 7. nóvember hefði Þorvaldur Þorsteinsson orðið 66 ára. Að því tilefni verður vígður bekkur honum til heiðurs nálægt æskuheimili hans við Hamarstíginn á Akureyri sem við, bekkjarsystkini hans úr 6.F í MA, létum gera. Þessa dagana standa líka yfir æfingar á Skilaboðaskjóðu Þorvaldar í Samkomuhúsinu á Akureyri en tvö ár eru síðan leikrit hans „And Björk of course“ var þar á fjölunum. Að því tilefni skrifaði ég hugleiðingu í leikskrá sem á allt eins við núna.
Þorvaldur Þorsteinsson var svo undarlega fjölhæfur og frjór að engin leið er að ná utan um allt það sem eftir hann liggur. Hann var ekki einhamur í sköpun sinni og hugmyndaauðgi. Æviverkið sem hann fór frá þegar hann lést aðeins 52 ára gamall er verk margra manna að umfangi og fjölbreytileika. Myndlistin dygði ein og sér til að halda nafni hans á lofti um ókomna tíð en hún var þó bara ein deild af mörgum - eitt hólf í stórri skjóðu. Rithófið var jafnstórt og svo voru þarna enn fleiri hólf fyrir kennslu, heimspeki og hugmyndalist og þannig mætti lengi telja. Þessi skjóða var hins vegar úr mjúku efni og erfitt að henda reiður á hvaða verk lenti í hvaða hólfi þegar til kastanna kom. Ekki var auðséð hvar myndlistin endaði og ritlistin tók við, eða leikhúsið. Þar liggur efinn - og vandinn við að fjalla um Þorvarld. Maður veit ekki hvar á að byrja - helst að reyna að finna sér nógu þröngt sjónarhorn.
Á Amtbókasafninu á Akureyri hangir stórt málverk eftir Þorvald. Myndin heitir Kvöldferð og sýnir fjóra vini í einhvers konar skátaútilegu í skógi sem að vísu er kannski bara eitt nakið tré. Það er hálfrökkvað og einhver drungi í loftinu. Réttara væri þó að tala um skáldaútilegu í þessu tilfelli því þegar betur er að gáð eru hér engir skátar á ferð heldur fjögur norðlensk skáld og rithöfundar frá ólíkum tímum: Matthías Jochumsson, Jóhann Sigurjónsson, Jón Sveinsson (Nonni) og Þorvaldur Þorsteinsson. Þorvaldur er augljóslega sá sem veg og vanda hefur að þessu skáldaþingi. Hann krýpur í bakgrunni og snýr í okkur bakinu (en við þekkjum hann á nefinu). Hann er þarna í hlutverki gestgjafans og gerir að fiski, skáti ávallt viðbúinn, jafnvel því að andans höfðingjar komi í heimsókn úr fortíðinni eins og draugar að nóttu.

Jóhann Sigurjónsson er sestur (eða lagstur) þunglyndislegur, einn yfir drykkju. Matthías og Nonni virðast hálftýndir og utan við sig, kannski hissa á að hafa brotist svona undan hömlum tíma og rúms til þess að hittast í húmdökkri næturkyrrð við Eyjafjörð. Þeir horfa ráðvilltir út úr myndinni en hafa fátt að segja. Vonandi lifnar yfir þeim fiskurinn er steiktur. „Í baksýn sér yfir Pollinn til Akureyrar, þar sem enn höfðu ekki verið byggð nein mannvirki þegar þessi kvöldferð var farin“ segir í skýringu við hliðina á myndinni með rithönd Þorvaldar.
Kvöldferð var máluð 1987. Þorvaldur var þá 27 ára gamall. Hann átti að baki nám í Nýlistadeild MHÍ og var á leiðinni til Hollands í Jan van Eyck myndlistarakademíuna í Maastricht. Hann var uppnuminn af öllu því róti og þeim listræna tryllingi sem þyrlaðist upp með nýlistadeildinni, en myndin - Kvöldferð - vísar þó inn í allt aðra deild.
Þorvaldur hafði árið áður gefið út Skilaboðaskjóðuna - barnabók með myndum sem sló í gegn. Hann var orðinn rithöfundur og á myndinni býður hann sjálfum sér í kvöldferð með skáldbræðrunum frá Akureyri og nærsveitum. Matthías og Jóhann eru þjóðþekktir fyrir leikrit sín og ljóð og Nonni fyrir drengjasögurnar vinsælu en vísast vita þeir, þarna í eilífðinni, að Þorvaldur á eftir að geysast eins og stormur inn á öll þeirra svið og slá þeim hvarvetna við. (Davíð hefði alveg viljað vera þarna líka en af einhverjum ástæðum var honum ekki boðið).
Það er ýmislegt hægt að fabúlera um þessa einu mynd sem er í raun sjálfsmynd þó Þorvaldur sé í bakgrunni. Í enn meiri bakgrunni er Akureyri þar sem „enn höfðu ekki verið byggð nein mannvirki þegar þessi kvöldferð var farin“ eins og við munum.
Akureyri bjó í hjarta Þorvaldar hvert sem hann fór en sú sambúð var ekki átakalaus. Nostalgían var lævi blandin. Stundum var hún eins og fleinn í holdi hans en alltaf sótti hann til hennar næringu og yrkisefni, harm og jafnvel stundum huggun. Yngsti drengurinn á Harmarstíg 27 var snemma (með)virkur þátttakandi í margbrotnum heimi hinna fullorðnu, stoð og stytta á heimilinu, opinn og næmur á samskipti og orðfæri fólksins í kring um sig, fyrirmyndarnemandi í Barnaskóla Íslands sem lá á að verða fullorðinn, góður og ábyrgur Akureyringur. Allt sem Þorvaldur skrifaði vísar til þessarar Akureyrar æsku hans sem var í senn full af heilnæmum eftirdæmum, - hollustu til líkama og sálar og yfirlætisfullri minnimáttarkennd smábæjar sem speglar sig í lognsléttum Pollinum og sér þar borg.
Raddir þessara æsku-og mótunarára reyndust Þorvaldi botnlaus brunnur yrkisefna. Barnablaðið Vorið, drengjabækur Indriða Úlfssonar, fjölskylduboð og skátaútilegur, allt var þetta hráefni sem hægt var að vinna og endurvinna á þeim hárfínu mörkum sakleysis og sektar, gleði og harms sem Þorvaldur lék sér á af svo mikilli list og kæti. Málglaðar hetjur Vasaleikhússins; slökkviliðsmaður sem bjargar konu í brennandi húsi eða prestur sem ræðir við fanga fyrir líflát. Brothætt persónugalleríið í „And Björk of course“. Allt þetta góða fólk, fullt af óræðum kenndum undir næfurþunnu yfirborði á ættir að rekja til Akureyrar.
Og þess vegna er við hæfi að Leikfélag Akureyrar heiðri Þorvald nú með uppfærslu á þessu magnaða verki sem hlýtur að flokkast undir klassík í íslenskum leikbókmenntum rétt eins og fjalla Eyvindur og Skugga Sveinn eftir skáldbræður hans; Jóhann og Matthías, frá Kvöldferðinni góðu (og Gullna hliðið eftir Davíð sem ekki fékk að fara með).
Við Þorvaldur vorum vinir frá því leiðir okkar lágu saman í MA í árdaga tímans. Í gegnum árin átti ég stundum erfitt með að skilja þetta kvikula samband hans við Akureyri en vissi þó að þar hékk margt fleira á spýtunni í hyldjúpi hugans. En hvað svo sem grufla má í því getum við öll verið þakklát fyrir að samband Þorvaldar og Akureyrar var ekki átakalaust. Að öðrum kosti hefði margt verið óskrifað, ómálað og óskapað af því besta sem hann lét eftir sig.