Hús dagsins: Hafnarstræti 67; Skjaldborg
Í síðustu greinum höfum við kynnt okkur hús sem eiga aldarafmæli í ár og eru hönnuð af Sveinbirni Jónssyni. Fjögur þeirra eru á Oddeyri en nú er að komið að nafntoguðu stórhýsi , sem reyndar reis af grunni fyrir 101 ári síðan, á mörkum Miðbæjar og Innbæjar, og hefur húsið stækkað um rúmlega helming á síðustu árum. Er þar er um svo vel heppnaða framkvæmd að ræða, að sá sem ekki vissi betur gæti vel haldið að viðbyggingin væri 101 árs hluti hússins og hið upprunalega, viðbótin!

Um miðbik Hafnarstrætis liggur gatan í aflíðandi hækkun upp í snarbratta brekkuna þar sem standa Hafnarstræti 49 (Amtmannshúsið, Sýslumannshúsið, Hvammur), Gamli Barnaskólinn, Samkomuhúsið og Sjónarhæð. Við síðasttalda húsið tekur gatan að halla niður á við til norðurs og nokkurn veginn þar sem hækkunin hefst þeim megin stendur Skjaldborg, eða Hafnarstræti 67. Lóðir þessara húsa eru nokkuð víðlendar og mögulega hefur einhvern tíma verið gert ráð fyrir Hafnarstræti 51, 55, 59, 61 og 65. Hér var hinn landfræðilegi og menningarlegi miðbær á fyrri hluta 20. aldar, mitt á milli Oddeyrar og Akureyrar (Innbæjar) og hér voru skóli og samkomuhús bæjarins og vinsæll samkomustaður trúfélags.
Stutt lýsing – Sameiginlegt átak tveggja félagasamtaka
Skjaldborg er þrílyft steinsteypuhús með háu risi, eldri og syðri hluti hússins gæti mögulega talist tvílyftur með háum kjallara en nyrðri hlutinn er fullar þrjár hæðir, auk rishæðar. Á bakhlið er rishæð nyrðri hluta lyft, þ.e. þar eru veggir í fullri hæð og þekjan aflíðandi vestan megin. Skiptist húsið í tvær álmur og skilja 99 ár þær að í aldri og er greinileg tengiálma, svo skil milli eldra húss og viðbyggingar eru mjög skýr. Alls eru níu kvistir að framanverðu, fjórir sambyggðir á syðri hluta og fimm á þeim nyrðri. Einnig eru fjórir sambyggðir kvistir að aftanverðu sunnan megin. Á norðurstafni er stigabygging yfir neyðarstiga. Krosspóstar eru í flestum gluggum en margskiptir að framan á norðurálmu. Í risi á suðurstafni eru tveir kringlóttir gluggar undir súð sem gefa húsinu ákveðinn svip, ásamt hleðslumunstri á köntum, sem eru hvort tveggja á eldra húsi og viðbyggingu. Alls er húsið 36,35m að lengd, eldri hluti 16,15x9,10 en yngri hluti 20,25x11,03m, að meðtalinni tengiálmu sem er 3,96m að breidd. Stigaálma á norðurstafni er 2,49x5,05m.

Fyrst um sinn var hinn landfræðilegi miðbær „úti í sveit“ á milli bæjarhlutanna en árið 1922 var hann orðinn næsta rótgróinn og komin samfelld byggð milli Oddeyrar og Akureyrar. Það var einmitt snemma á því ári sem Góðtemplarar I.O.G.T. og U.M.F.A fengu í sameiningu leigða lóð af Akureyrarbæ við Hafnarstræti, norðan við eignarlóð Arthur Gook, 30 metra meðfram götu og 20 metra breiða og bókaði bygginganefnd: [...]er ætlast til þess, að fjelög þessi reisi samkomuhús á lóð þessari (Bygg.nefnd. Ak. 1922: nr. 507). Munu félögin hafa verið á hrakhólum, höfðu fundað í litla sal Samkomuhússins og sú aðstaða sprungin utan af félögunum (sbr. Steindór Steindórsson 1993: 118). Það var svo þremur árum síðar, í febrúar 1925, að byggingameistari Guðbjörn Björnsson, Kr. Karlsson bankaritari og Sveinbjörn Jónsson byggingameistari sækja um, fyrir hönd Ungmennafélagsins og Góðtemplara, að fá að reisa samkomuhús á lóðinni. Kemur fram, að leyfinu fylgi ítarlegur uppdráttur og húsið eigi að vera 11,60x8,20m að stærð, tvær hæðir á háum kjallara (sbr. Bygg.nefnd. Ak. 1925: nr. 563). Rúmlega hálfu ári síðar, í september 1925 bókar bygginganefnd, að félögin megi gera eftirfarandi breytingar og viðbætur á lóð og samkomuhúsinu: Að steypa varnarvegg suður frá húsinu á lóðarmörk að sunnan og ca. 2 mtr. í brekkuna á lóðarmörkum. Á veggurinn að vera við kjallarabrún hússins. Að steypa tröppur norðan við húsið sem nái á lóðartakmörk að norðan en framkantur neðst stiga sé í línu við kjallara hússins (Bygg.nefnd. Ak. 1925: nr. 573).
„Alltaf í bíó“ með kaffi, ávexti og vindla!
Sums staðar er Skjaldborg sögð byggð 1926 og hér er fjallað um hana í tilefni af aldarafmæli á árinu 2026. Hið rétta er þó, að húsið reis af grunni árið 1925 en var fullbúið og tekið í notkun í byrjun árs 1926. Mögulega hefur markmið Ungmennafélagsins verið, að ný húsakynni yrðu tilbúin á 20 ára afmæli félagsins þann 7. janúar, en félagið var stofnað þann dag árið 1906 (í Lundargötu 15 á Oddeyri). Þann 12. janúar 1926 bókar Ungmennafélag Akureyrar sinn fyrsta fund í „húsi fjelagsins“ (sbr. U.M.F.A.1926: án bls./nr.) og þar er væntanlega átt við Skjaldborg, því í fyrri fundargerðum er tekið fram, að fundirnir séu haldnir í Samkomuhúsinu. Nýja félagsheimili Ungmennafélagsins og Góðtemplara, sem mjög fljótlega hlaut nafnið Skjaldborg, var í senn veglegt og rúmgott. Í risi var samkomusalur, sem skreyttur var veggmyndum eftir templarann og listmálarann Freymóð Jóhannsson (sem síðar gat sér gott orð sem dægurlagahöfundur undir dulnefninu 12. september) en á miðhæð var veitingasala og þau salarkynni stundum nýtt til samkomuhalds (sbr. Steindór Steindórsson 1993:118).

Mjög fljótlega eftir að húsið var fullbúið, nánar tiltekið þann 28. janúar 1926, hófust þar kvikmyndasýningar á vegum Nýja Bíós, sem m.a. Jakob Frímannsson fór fyrir. Ágóðinn af þeirri sýningu rann til byggingar heilsuhælis á Kristnesi. Segir Jón Hjaltason í Sögu Akureyrar: Yfirleitt voru aðeins tvær sýningar í viku, á laugardögum og sunnudögum, og sýnt klukkan 20.30. Ennfremur: […] í Skjaldborg var einnig starfrækt kaffistofa þar sem gestir gátu fengið sér kaffi, te, mjólk og gosdrykki á meðan [þeir] gæddu sér á ávöxtum eða svældu sígarettur og vindla en allt var þetta selt á kaffistofunni (Jón Hjaltason 2004:263). Popp og kók var vart í boði, enda næsta sjaldséð hérlendis ef ekki alveg óþekkt árið 1926. (Elsta dæmið um poppkorn í hérlendum prentmiðlum er frá 1955, en Coca Cola sést af og til auglýst frá árinu 1919). Á kaffihúsinu var einnig boðið upp á að hlusta á útvarpssendingar en þar var „radiomóttakari“.
Brunabótamatslýsing 1926 - Sellulósanítratfilmur og svakalegir eiginleikar þeirra
Þann 12. ágúst 1926 heimsóttu matsmenn brunabótafélagsins, Skjaldborg og skrifuðu niður eina þá ítarlegustu skýrslu sem finna má í matsbókum félagsins frá þessum árum, en fyrir því var ástæða, sem rakin verður síðar. Lýstu þeir húsinu sem samkomu – og kvikmyndahúsi, tvílyftu á háum kjallara með háu risi, 16,25x9m, 7,5m á hæð, með 26 gluggum. Veggir steinsteyptir og þak steypt og hellulagt. 1 skorsteinn, ein eldavél, einn þvottapottur, miðstöðvarhitun með vatni, vatns- og rafleiðslur, ásamt skólpleiðslu. Orðrétt er lýsing af innri skipan hússins:
Í kjallara við framhlið eru 2 stofur og forstofa. Við bakhlið 2 geymsluherbergi, þvottahús , 2 baðklefar og 2 vatnssalerni.
Á neðri hæð eru 2 stofur við framhlið og forstofa, við bakhlið 3 stofur, eldhús og búr.
Á efri hæð samkomu- og kvikmyndasalur, 1 stofa og forstofa, auk þess ljóstækjaklefi fyrir kvikmyndasýningar.
Ljóstækjaherbergið: Veggir þess og gólf er úr 10 sm þykkum steini, þó er lítill partur af gólfinu (var lúga) klæddur með sljettu járni og asbest undir. Loftið í klefanum er úr timbri húðað með sementspússningu þriggja sentimetra þykkri. Hurðin að klefanum er jafnþykk veggnum og klædd báðum megin með sljettu járni. Samskonar útbúnaður er á gangi framan við sýningarklefan [svo] á veggjum, gólfi og lofti (Brunabótafélag Íslands 1926: nr.165).
Hvers vegna skyldi þessu eina herbergi hússins hafa verið lýst svo gaumgæfilega í smáatriðum í brunabótamatinu? Það skýrist af því, að sýningarfilmur á þessum tíma voru eitt hið eldfimasta og raunar sprengifimasta efni sem fyrirfannst, en þær voru úr efninu sellulósanítrati (nítröt eru meginefni nýtróglýseríns eða dýnamíts). Í kvikmyndinni Inglorious Bastard, sem gerist á árum seinni heimstyrjaldar, lætur Quentin Tarantino andspyrnumenn í Þýskalandi, færa sér þessa eiginleika nítratfilma í nyt. Að sjálfsögðu þurfti að gæta fyllsta öryggis við geymslu og meðferð sýningarfilma fyrir 100 árum síðan. Enda bæta matsmenn brunabótafélagsins við í skýrslu sinni:
Þótt útbúnaður þessi, eins og honum er lýst hér að framan, sje ekki í fullkomlega eins og reglur fjelagsins mæla fyrir, viljum vjer að af honum stafi engin eldhætta. Rafmagnsútbúnaður og ljósáhöld eru í góðu lagi.
Brunabótamatsmenn gera hins vegar engar skriflegar athugasemdir við það sem fram kom hér að framan, að hér voru reyktir vindlar og sígarettur úr veitingasölunni!

Prentsmiðja – bókaútgáfa – hótel
Mjög fljótlega sprengdi bíóið utan af sér aðstöðuna í Skjaldborg, sem tók 170 manns í sæti. Einnig voru ýmsir annmarkar á salarkynnunum, m.a. loftræsting og birtuskilyrði, sérstaklega á sumrin, auk þess hefur útvarpsspilunin á kaffihúsinu væntanlega verið nokkuð truflandi (sbr. Jón Hjaltason 2004: 263-264). Fór því svo, að Nýja Bíó reisti sér nýtt hús í Bótinni, sem enn er sérlegt kvikmyndahús Akureyringa. Síðar, eða í september 1944 hófust bíósýningar á ný í Skjaldborg, og kallaðist það einfaldlega Skjaldborgarbíó. Segir í tilkynningu þann 19. september að sýningar hafi hafist sl. sunnudagskvöld [þ.e. þann 17.] og sýnt verði fimm kvöld í viku. Um var að ræða einkafyrirtæki, sem leigði aðstöðuna af Góðtemplarareglunni en ári síðar, haustið 1945, tók reglan við rekstrinum og rann ágóðinn af bíósýningunum til góðgerða.
Skjaldborgarbíó var í rekstri hér í um áratug, en í janúar 1956 tóku templarar í notkun nýtt kvikmyndahús í Hótel Varðborg við Geislagötu, sem hlaut nafnið Borgarbíó. Var rekið kvikmyndahús undir því nafni á þeim stað allt fram á vordaga 2022. Árið 1958 fluttist prentverk Björns Jónssonar hingað í Skjaldborg en hún hafði fram að því verið starfrækt í Gránufélagsgötu 4. Síðar, eða árið 1968, var hin valinkunna bókaútgáfa Skjaldborg stofnsett og starfrækt í húsinu, en útgáfan lagði sérstaka áherslu á útgáfu norðlenskra bóka. Bókaútgáfan dró þannig nafn sitt af húsinu, en ekki öfugt. Á meðal bóka sem Skjaldborg gaf út má m.a. nefna barnabækur eftir Indriða Úlfsson og bókaflokkinn Aldnir hafa orðið, sem kom út á árunum 1972 til 1989, eftir Erling Davíðsson. Oft hefur greinarhöfundur vitnað til endurminninga, sem birst hafa í þeim ágæta bókaflokki. Aðalgeir T. Stefánsson eignaðist húsið árið 1987 (sbr. Steindór Steindórsson 1993:118) og innréttaði hér hótel, sem hlaut nafnið Hótel Óðal. Hefur síðan verið hótelrekstur í húsinu óslitið síðan og þeim rekstri aldeilis vaxið fiskur um hrygg, sem vikið verður að síðar, enda hefur fjöldi ferðamanna sem bæinn heimsækja vaxið svo um munar síðustu ár og áratugi. Í kórónuveirufaraldrinum 2020 þjónaði hótelið sem sóttvarnarhús fyrir Akureyri og nærsveitir.

Glefsur úr „ábúendatali“ Skjaldborgar
Lengi vel var búið í Skjaldborg. Fyrstu skráðu íbúar hússins, árið 1926, voru þau Jóhann Þ. Kröyer, verslunarmaður frá Svínárnesi og Eva Pálsdóttir frá Ólafsfirði og börn þeirra Haraldur og Svava. Hingað höfðu þau flust frá Hrísey. Þá voru búsettar hér þrjár vetrarstúlkur, Guðbjörg Guðmundsdóttir, Guðrún Bentína Stefánsdóttir og Sigurjóna Pálsdóttir. Jóhann og Eva bjuggu ekki mörg ár hér, því árið 1929 gerðist hann kaupfélagsstjóri á Ólafsfirði, en síðar byggðu þau við Helgamagrastræti 9, á Ytri Brekkunni og bjuggu þar áratugum saman. Árið 1930 eru íbúar Skjaldborgar mæðginin María Soffía Árnadóttir veitingakona frá Melgerði í Saurbæjarhreppi og sonur hennar Kári S. Jóhannsson, fæddur í Noregi, auk vinnukonunnar Sesselju Guðmundsdóttur. Hefur hún væntanlega séð um veitingasölu hér í Skjaldborg, en í upphafi var það Rósa nokkur Jónatansdóttir sem annaðist veitingasöluna (sbr. Jón Hjaltason 2004:264), meðan kvikmyndasýningar voru hér. Árið 1940 var Rannveig Björnsdóttir (ýmist rituð Bjarnardóttir eða Bjarnadóttir), fædd í Kaupangi í Öngulsstaðahreppi búsett hér en hún rak hér veitingasölu og gistihús. Árið 1954 er Soffía Sigtryggsdóttir saumakona á Gefjun búsett hér ásamt syni sínum, Jóni Kristni Svanbergssyni og móður, Guðrúnu Emilíu Jónsdóttur. Áratugir eru síðan fastri búsetu lauk í Skjaldborg.

Breytingar og viðbyggingar
Frá upphafi og í rúm 60 ár var aðeins einfalt risþak á Skjaldborg. Það var hins vegar um 1987 að byggðir voru kvistirnir fjórir og rishæðin innréttuð upp á nýtt. Fyrir þeim framkvæmdum stóð Aðalgeir T. Stefánsson byggingameistari og gerði hann einnig teikningarnar að þeim. Árið 2024 dró svo verulega til tíðinda í byggingasögu Skjaldborgar þegar byggt var við hana, í raun annað sjálfstætt hús með tengibyggingu, eftir teikningum Haraldar S. Árnasonar. Í raun var um að ræða nýtt hús úr samsettum einingum, ámóta hátt og lítið eitt breiðara en upprunalega húsið. Nýja byggingin er undir miklum áhrifum frá byggingarstíl Skjaldborgar og margskiptar rúður og hleðslumunstur á köntum gera það jafnvel enn „dæmigerðara“ fyrir þriðja áratug 20. aldar heldur en upprunalega húsið. Er það álit höfundar, að þessi viðbygging sé ein best heppnaða framkvæmd við stækkun á eldra húsi á síðari árum og hreinlega til fyrirmyndar (annað mjög sambærilegt dæmi má reyndar sjá á þarnæsta húsi norðan við, þar sem Hafnarstræti 73, Lón eða Dynheimar, hafa hlotið veglega og jafnvel enn umfangsmeiri stækkun í anda eldri byggingargerða). Skil milli viðbyggingar og eldra húss eru mjög greinileg og viðbyggingin hvorki yfirþyrmandi né ráðandi gagnvart eldra húsinu. Ekki er aðeins framkvæmdin og frágangurinn á henni til fyrirmyndar heldur einnig það, að breyta og bæta við eldra hús sem fyrir: einhverjir hefðu mögulega rifið Skjaldborg og reist í staðinn nýtt hús frá grunni! Er þessi framkvæmd því mjög lofs- og þakkarverð og ætti ekki að rýra varðveislugildi Skjaldborgar sem nýtur sín með glæsibrag, hvort sem er heildrænt með viðbyggingu eða upprunalega húsið eitt og sér. (Að sjálfsögðu geta einhverjir verið ósammála þessu mati greinarhöfundar). Umhverfi Skjaldborgar er einnig mjög til prýði, því á bakvið er gróin brekka og hreinlega skóglendi sem nær nokkurn veginn samfellt frá Barðsgili að Akureyrarkirkju. Steyptur veggur sunnan við er einnig til mikillar prýði og er hann að hluta hlaðinn úr nokkurs konar „bogasteinum“.

Ekki hefur verið unnin húsakönnun eftir viðbygginguna á Skjaldborg en í könnun frá 2012 hlýtur hún varðveislugildi, með einkunn +, sem hluti af heild og fær einnig einkunnina + fyrir byggingarlist, menningarsögu, umhverfi og ástand. Umsögn í Húsakönnun 2012 er eftirfarandi: Húsið er reisulegt og sómir sér vel sem upphaf samstæðrar götumyndar og bæjarumhverfis norður að Kaupvangsstræti og áfram út Hafnarstrætið. Hlutföll eru góð, viðhald og útlit til sóma (Árni Ólafsson 2012: 26) og húsið sagt: […] endapunktur ákveðinnar húsaheildar og götumyndar Hafnarstrætis norður að Kaupvangsstræti (Árni Ólafsson 2012:26). Það er svo sannarlega óhætt að taka undir þau orð, enda er Skjaldborg sérlegt kennileiti á þessum slóðum, nokkurn veginn á mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
Meðfylgjandi myndir eru teknar 13. október 2026, 28. september 2013 og 6. júlí 2011.
Heimildir
Árni Ólafsson. 2012. Drottningarbrautarreitur - Hafnarstræti Akureyri Húsakönnun – 2012. Teiknistofa arkitekta, Gylfi Guðjónsson o.fl., Skipulagsdeild Akureyrarbæjar. Óprentað, pdf á slóðinni: https://husaskraning.minjastofnun.is/Husakonnun_157.pdf
Brunabótafélag Íslands. 1929. Virðingabók Brunabótafélags Íslands, Akureyrarumboð 1922-1929. Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri, aðgengilegt á vef safnsins: https://issuu.com/heradsskjalasafnakureyri/docs/f117_3_virdingabok_1922_1929?fr=sMTZmNDQzODI5ODU    Hskj.Ak. F-117/3.
Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1921-30. Fundur nr. 507,  3. feb. 1922. Fundur nr. 563, 21. feb. 1925. Fundur nr. 573, 19. sept. 1925. Óprentað, óútgefið; varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri, aðgengilegt á vef safnsins: https://www.herak.is/is/skjalavefur/sveitarfelog/akureyrarbaer-1/gjordabaekur   
 Friðrik G. Olgeirsson, Halldór Reynisson og Magnús Guðmundsson. 1996. Byggingameistari í stein og stál; Saga Sveinbjarnar Jónssonar í Ofnasmiðjunni. Reykjavík: Fjölvi.
Jón Hjaltason. 2004. Saga Akureyrar IV bindi. Akureyrarbær.
Steindór Steindórsson. 1993. Akureyri höfuðborg hins bjarta norðurs. Reykjavík. Örn og Örlygur.
Ungmennafélag Akureyrar (eldra). 1928. Fundabók Ungmennafélags Akureyrar 1924-1928 [Gjörðabók] Ungmennafélag Akureyrar stofnað 1906 (F-1/3a). Héraðsskjalasafnið á Akureyri, Ísland. Aðgengileg á vef safnsins: https://issuu.com/heradsskjalasafnakureyri/docs/f1_3a_umfa?fr=sZWQyMDQzODI5ODU
Ýmis manntöl á vef Héraðsskjalasafns og manntal.is, greinar á timarit.is; sjá tengla í texta.
Birkið í Trjáræktarstöðinni afhjúpað – Haustið kjaftar frá
Djúpslökun og töfrar Jóga Nidra
Afi og amma á Hraunfelli
Elrið og þjóðsögurnar