Fara í efni
Umræðan

Heilsuvernd í tímaþröng og óskar eftir lóð

Tjaldsvæðisreiturinn, Þingvallastræti 23 lengst til hægri, nokkurn veginn innan rauða kassans. Myndin er úr auglýsingu Akureyrarbæjar á sölu byggingaréttar á Tjaldsvæðisreitnum.

Heilsuvernd hefur óskað eftir úthlutun lóðar við Þingvallastræti 23 undir heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða í tímabundna dvöl og endurhæfingu, auk þjónustu við þá starfsemi. Fyrirtækið telur sig ekki geta beðið eftir að nýtt hjúkrunarheimili rísi við Þursaholt vegna bágborins ástands á álmum 1 og 2 á Hlíð.

Skipulagsráð hafnaði því að úthluta lóðinni þar sem hún hefur ekki verið auglýst, en fól skipulagsfulltrúa að ræða við umsækjanda um mögulega staðsetningu fyrir fyrirhugaða þjónustu. 

Telja sig geta hraðað framkvæmdum

Ástæða umsóknar Heilsuverndar tengist bágbornu ástandi húsnæðis Hlíðar og bið eftir nýju hjúkrunarheimili við Þursaholt. Félagið telur sig geta hraðað framkvæmdum fái það úthlutað áðurnefndri lóð við Þingvallastræti. Í umsókn Teits Guðmundssonar forstjóra, fyrir hönd Heilsuverndar, kemur fram að óviðunandi sé að bíða með lausnir á vanda álma 1 og 2 á Hlíð eftir því að nýtt hjúkrunarheimili rísi við Þursaholt, sem gert er ráð fyrir að verði tilbúið 2029/2030. 

Heilsuvernd rekur í dag tvær einingar hjúkrunarheimila á Akureyri, Hlíð við Austurbyggð og Lögmannshlíð við Vestursíðu, samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands. Ástand Hlíðar hefur hins vegar verið ófullnægjandi, en endurbótum á álmu 3 á að ljúka á næsta ári og verða þá opnuð að nýju rými sem hafa verið lokuð vegna myglu.

Nýbygging ákjósanlegri kostur

Í erindi Heilsuverndar kemur fram að stefni í frekari lokanir rýma og tilfærslu skrifstofu þaðan á næstu misserum þar sem álmur 1 og 2 séu einnig í bágbornu ástandi. Með greiningu á endurbótum á þessum einingum er hins vegar talið að nýbygging sé ákjósanlegri kostur. Í því sambandi er hjúkrunarheimili við Þursaholt á dagskránni, en biðin eftir því of löng miðað við stöðu mála í dag, eins og áður sagði.

„Félagið telur óviðunandi að bíða með lausnir á vanda húsnæðis í álmu 2 og 3 þangað til og horfir því til framtíðarlausnar með hluta af starfssemi sinni. Unnið er að því að geta opnað fleiri dagendurhæfingarrými til viðbótar við bið- og skammtímarými á lóðinni við Þingvallastræti sem er skilgreind sem verslun og þjónusta. Við teljum því að möguleg uppbygging á lóðinni sem félagið geti hraðað falli vel að verkefnum þess og stuðli að betri þjónustu fyrir aldraða á Akureyri,“ segir í umsókn Heilsuverndar um lóðina við Þingvallastræti. Þess vegna sé óskað eftir beinni úthlutun lóðarinnar undir heilbrigðisþjónustu og tengda starfsemi. 

Lóðin sem um ræðir var um tíma ætluð undir aðra heilsugæslustöð á Akureyri, til viðbótar við þá sem er í Sunnuhlíð, en horfið var frá þeirri hugmynd. Lóðin er hluti af svokölluðum Tjaldsvæðisreit í skipulagi, lóð L 232192.

Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
06. október 2026 | kl. 13:00

Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað

Díana Jóhannsdóttir og Örlygur Hnefill Örlyggson skrifa
05. október 2026 | kl. 15:00

Fróðlegir fundir í kjördæminu

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. október 2026 | kl. 07:15

Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
30. september 2026 | kl. 20:15

Beinum kastljósinu að atvinnulífinu

Karl Eskil Pálsson skrifar
29. september 2026 | kl. 20:15

Bókasöfnin okkar

Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar
28. september 2026 | kl. 06:00