Fara í efni
Umræðan

Erum við ekki í sama liði?

Á undanförnum árum hefur handboltinn í KA haldið uppi merki félagsins. Á sama tíma hefur knattspyrnan átt í vök að verjast. En nú er öldin
önnur og breytingar á döfinni.

Gríðarleg uppbygging hefur átt sér stað á KA svæðinu að undanförnu og ekki virðist neinn skortur á fjármagni. Stúkur, upphitaðir gervigrasvellir og viðbyggingar. Allur aðbúnaður verður hinn glæsilegasti.

Nú þegar hefur félagið 3 gervigrasvelli og tvær stúkur á sinni könnu. Það kom þó babb í bátinn þegar það gerðist sem ekki átti að vera hægt. Litla félagið í Þorpinu sendi KA niður um deild á eigin kostnað. 

Vonandi gengur þeim vel og hörðustu stuðningsmennirnir fái kennslu í mannasiðum.

Ég efast heldur ekki um að KA muni endurheimta sæti sitt í efstu deild að nýju.

KA er þó meira en knattspyrna og ég leyfi mér að fullyrða að KA er mun hærra skrifað sem handboltafélag en knattspyrnufélag enn sem komið er. Á því virðast þó vera breytingar í vændum. Efnilegir strákar sem stundað hafa æfingar í handbolta hafa verið lokkaðir yfir í fótboltann og eftir sitja súrir handboltaþjálfarar.

Mér finnst þetta helvíti skítt, ekki síst þar sem íslensk knattspyrna er ein sú lélegasta í Evrópu að margra mati. 

Á meðan berst handboltinn í KA harðri baráttu við að halda sér á floti, en hefur orðið að vísa frá leikmönnum sem vildu koma til félagsins.
Engir peningar til. Þrátt fyrir þetta hafa þjálfararnir Andri Snær og Heimir Árna náð að halda liðinu á floti. Með aðeins betra lið væru þeir þó ekki fallnir úr bikarnum og eflaust í a.m.k. öðru sæti í deildinni. 

Það kom flatt uppá flesta er KA sleit samskiptum við Þór í kvennaknattspyrnunni nýlega og sagði þær verða hornsteinn KA í knattspyrnu, hvorki meira né minna.

Hvað verður um sameiginlegt lið KA og Þórs í handbolta kvenna?

Að lokum þetta.

Goðsagnirnar Birgir Björnsson og Alfreð Gíslason áttu stærstan þátt í að gera KA að stórveldi í handbolta á sínum tíma. Fjöldi stjarna á borð við Guðjón Val, Alla Gísla, Duranona og Sigmar Þröst léku með liðinu sem vann allt sem hægt var að vinna, Íslandsmeistar, bikarmeistarar, Evrópuleikir. Eigum við ekki að standa saman og halda merki KA áfram á lofti?

Þorleifur Ananíasson er KA-maður

Tíu milljarða halli

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
15. nóvember 2026 | kl. 11:45

Tenerife í stað Kaupmannahafnar – eru áherslurnar réttar?

Þórhallur Jónsson skrifar
10. nóvember 2026 | kl. 15:45

Icelandair ætti að horfa norður

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
09. nóvember 2026 | kl. 19:30

Mikilvæg skref í átt að samþættingu þjónustu við eldri borgara

Guðbjörg Anna Björnsdóttir skrifar
05. nóvember 2026 | kl. 12:30

Framtíð, atvinna og velferð í verki

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
05. nóvember 2026 | kl. 11:00

Nokkrar spurningar til Samfylkingarinnar

Gunnar M. Gunnarsson skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 15:50