Fara í efni
Umræðan

Brú og jöfnunarstöð að taka á sig mynd

Farvegur Glerár er mjókkaður meðan á framkvæmdum stendur en að verki loknu verður ánni aftur veitt í sinn upprunalega farveg. Myndir: Þorgeir Baldursson

Framkvæmdir við nýja jöfnunarstöð Strætisvagna Akureyrar við Borgarbraut ganga samkvæmt áætlun og hið sama má segja um byggingu nýrrar göngubrúar yfir Glerá, skammt frá væntanlegri jöfnunarstöð. Í stöðinni verða biðskýli, aðstaða fyrir vagnstjóra, tæknirými og almenningssalerni.

Samið var við verktakafyrirtækið SS Byggir ehf. um framkvæmdirnar og er gert ráð fyrir að þeim ljúki síðsumars á næsta ári.

  • HVAÐ ER JÖFNUNARSTÖÐ?
    Á jöfnunarstöð fyrir strætisvagna er aðstaða fyrir vagnstjórana og farþega; þaðan og þangað aka allir vagnar og þar bíða þeir þar til komið er að næstu ferð. Þannig tengjast allar leiðir strætisvagna á sama staðnum, eins og nú er við Hofsbótina, og mætti eins nota skiptistöð um þessa aðstöðu.


Brúin steypt í næsta mánuði

Sigurður Sigurðsson framkvæmdastjóri SS Byggis segir verkefnið ganga samkvæmt áætlun.

„Við reiknum með að steypa brúna í desember, ef veðurguðirnir verða okkur hliðhollir. Ég geri ráð fyrir að almenningur geti farið yfir hana næsta sumar, um svipað leyti og jöfnunarstöðin verður fullbúin. Framkvæmdir við stöðina ganga einnig vel. Þessar vikurnar er unnið við þak og glugga, en næst verður lagður göngustígur frá stöðinni að Gefjunarstíflu,“ segir Sigurður í samtali við akureyri.net.

Flókin og vandasöm vinna við smíði brúarinnar

„Við höfum meðal annars þurft að breyta farvegi árinnar tímabundið til að skapa aðstæður fyrir framkvæmdirnar. Á svæðinu hefur verið reist umfangsmikið uppsláttarvirki á stálbitum og turnum sem krafðist þess að ánni yrði veitt fram hjá framkvæmdasvæðinu og undir stálbitana. Nú er unnið að uppsetningu sérsmíðaðra steypumóta sem mynda hinn einkennandi boga brúarinnar. Sú vinna er bæði flókin og vandasöm og krefst mikillar nákvæmni, ekki síst þar sem öll steypan verður sjónsteypa og því eru gerðar sérstaklega miklar kröfur til yfirborðs og frágangs. Þegar framkvæmdum lýkur verður ánni aftur veitt í sinn upprunalega farveg,“ segir Sigurður.


Bætt aðgengi milli Hlíðahverfis og Glerártorgs

Samkvæmt frétt á heimasíðu Akureyrarbæjar í vor er gert ráð fyrir aðstöðu fyrir þrjá innanbæjarstrætisvagna og tvo til þrjá landsbyggðarvagna við jöfnunarstöðina.

Með tilkomu brúarinnar og nýrra gönguleiða mun aðgengi batna verulega milli Hlíðahverfis og verslunar- og þjónustusvæðisins við Glerártorg.

Ný gangbraut með ljósastýringu verður við norðurinngang Glerártorgs og tengist hún beint við göngubrúna.

Eins og meðfylgjandi myndir Þorgeirs Baldurssonar sýna eru framkvæmdir í fullum gangi og staðsetning göngubrúarinnar orðin vel sýnileg. Skammt ofan við jöfnunarstöðina hefur jafnframt verið útbúið svæði til snjósöfnunar í tengslum við snjóruðning á svæðinu.

Malbikaða svæðið neðst á myndinni verður notað undir snjó þegar götur bæjarins verða ruddar þegar þar að kemur. 

Bæjarbúar áhugasamir

„Við verðum vör við að almenningur fylgist vel með framvindu verksins og spyr meðal annars hvenær hægt verði að hleypa umferð yfir brúna. Eins og ég hef nefnt eru áætluð verklok síðsumars á komandi ári og að óbreyttu ætti sú áætlun að standast. Töluverð umferð er við framkvæmdasvæðið og vil ég nota tækifærið til að þakka ökumönnum fyrir varkárni, sem er okkur mikils virði,“ segir Sigurður Sigurðsson.

Mikilvæg skref í átt að samþættingu þjónustu við eldri borgara

Guðbjörg Anna Björnsdóttir skrifar
05. nóvember 2026 | kl. 12:30

Framtíð, atvinna og velferð í verki

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
05. nóvember 2026 | kl. 11:00

Nokkrar spurningar til Samfylkingarinnar

Gunnar M. Gunnarsson skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 15:50

Áframhaldandi skilningsleysi nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 14:20

Látum Loftbrúna vera

Sindri S. Kristjánsson skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 13:10

Stillum ekki íþróttum og menningu upp sem andstæðum pólum

Gunnar M. Gunnarsson skrifar
02. nóvember 2026 | kl. 14:10