Íhuga stækkun og tvöföldun framleiðslu
TDK Foil Iceland ehf. í Krossanesi á Akureyri kannar möguleika á umfangsmikilli stækkun álþynnuverksmiðju félagsins og hefur þegar sett sig í samband við Akureyrarbæ um möguleika á stærri lóð í Krossanesi. Bæjaryfirvöld hafa tekið jákvætt í erindið.
Ný kynslóð framleiðslubúnaðar kallar á stærra húsnæði
Í erindi TDK Foil Iceland ehf. til Akureyrarbæjar segir að eigendur og stjórnendur verksmiðjunnar hafi unnið að því að meta hagkvæmni þess að stækka núverandi starfsstöð fyrirtækisins á Akureyri, þar á meðal möguleikann á að tvöfalda framleiðslugetuna. Ný kynslóð framleiðslubúnaðar krefjist verulega stærri byggingar en þeirrar sem nú er í notkun, þar sem búnaðurinn sem til skoðunar er sé mun lengri en núverandi húsnæði rúmar.
„Gerð hefur verið gróf bráðabirgðaáætlun, sem ekki er endanleg, um nauðsynlega stærð byggingarinnar og hefur fótspor hennar verið sett inn á núverandi deiliskipulag. Þessi bráðabirgðaathugun leiðir í ljós að mjög þröngt yrði um slíka byggingu, meðal annars vegna nálægðar við Krossanesbraut,“ segir í bréfi TDK Foil Iceland ehf. til Akureyrarbæjar.
Bæjaryfirvöld taka jákvætt í erindið
TDK Foil Iceland er einn af stærri vinnustöðum Akureyrar auk þess sem starfsemin notar mikið magn raforku. Starfsmenn eru um eitthundrað.
Í erindinu er óskað eftir fundi með skipulagsyfirvöldum bæjarins til að ræða mögulega framtíðaruppbyggingu verksmiðjunnar. Jafnframt kemur fram að stefnt sé að því að taka ákvörðun á næstu mánuðum um hvort haldið verði áfram með verkefnið.
Það er með öðrum orðum nokkur hraði á þessu máli og skemmst er frá því að segja að bæjaryfirvöld hafa tekið jákvætt í erindið. Skipulagsráð Akureyrarbæjar hefur falið skipulagsfulltrúa að skoða málið nánar í samvinnu við umhverfis- og mannvirkjasvið bæjarins.

„Gerð hefur verið gróf bráðabirgðaætlun sem er ekki endanleg um nauðsynlega stærð byggingarinnar, og hefur fótspor hennar verið sett inn á núverandi deiliskipulag,“ segir um þessa mynd í erindi TDK Foil Iceland til Akureyrarbæjar. „Þessi bráðabirgðaathugun leiðir í ljós að mjög þröngt yrði um slíka byggingu, meðal annars vegna nálægðar við Krossanesbraut.“
- Til útskýringar hefur akureyri.net dregið bláa línu utan um núverandi verksmiðjuhúsnæði. Rauða línan er utan um mögulega nýbyggingu – en rétt er að ítreka að þar er ekki um endanlega nauðsynlega stærð að ræða.
Icelandair ætti að horfa norður
Mikilvæg skref í átt að samþættingu þjónustu við eldri borgara
Framtíð, atvinna og velferð í verki
Nokkrar spurningar til Samfylkingarinnar