Fara í efni
Umræðan

Hreyfill vill skoða biðsvæði á Ráðhústorgi

Hér langar leigubifreiðastjóra að bíða eftir farþegum, en þó eru ekki miklar líkur á að þeim verði að ósk sinni. Mynd: Haraldur Ingólfsson.

Unnið er að því hjá skipulagssviði Akureyrarbæjar að finna biðsvæði leigubíla nýjan stað í miðbænum. Skipulagsráð óskaði eftir fjórum tillögum frá skipulagssviði að mögulegri staðsetningu fyrir næsta fund ráðsins. Núverandi heimild vegna biðsvæðisins við Túngötu rennur út 1. desember. 

Haraldur Axel Gunnarsson, framkvæmdastjóri Hreyfils, leggur til að hugmyndir leigubifreiðastjóra um að nýta Ráðhústorg fyrir biðsvæði verði skoðaðaðar með opnum huga, en þær hugmyndir hafa áður verið ræddar í skipulagsráði og ekki hlotið hljómgrunn. 

Úr Brekkugötu inn á Ráðhústorg?

Fyrir fundi skipulagsráðs 3. nóvember lá erindi framkvæmdastjóra Hreyfils, þar sem Hreyfill fer meðal annars fram á að Akureyrarbær taki staðsetningu biðsvæðis leigubifreiða á Ráðhústorgi til formlegrar skoðunar áður en endanleg ákvörðun verður tekin um framtíð núverandi biðsvæðis við Túngötu og að fulltrúum leigubifreiðastjóra og þeirra stöðva sem starfa á Akureyri verði gefinn kostur á að koma að þeirri vinnu.

Hugmyndin gengur út á að leigubifreiðar aki niður Brekkugötuna og inn á Ráðhústorg og að heimild verði fyrir tiltekinn fjölda bifreiða til að bíða á torginu hverju sinni. Útakstur yrði síðan um Skipagötuna. Þetta fyrirkomulag yrði þó með sveigjanleika og biðsvæðið tímabundið fært á annan fyrirfram ákveðinn stað þegar stærri viðburðir færu fram á Ráðhústorgi.

Rauða örin sýnir akstursleið og staðsetningu sem rætt hefur verið um á meðal leigubifreiðastjóra sem vilja að hugmynd um biðsvæði leigubifreiða á Ráðhústorgi verði skoðuð. Skjáskot af kortasjánni map.is/akureyri.

Haraldur Axel segir í erindinu til Akureyrarbæjar að samkvæmt upplýsingum frá leigubílstjórum hafi sambærilegt fyrirkomulag verið prófað eina helgi síðastliðið sumar og gefist vel. „Við teljum því fulla ástæðu til að kanna þennan möguleika frekar, jafnvel með tímabundnu tilraunaverkefni þar sem áhrif á umferð, aðgengi og aðra starfsemi miðbæjarins yrðu metin.“

Eins og þar er háttað núna er þó innakstur úr Brekkugötunni á Ráðhústorg bannaður. Að auki virðast mjög litlar líkur á að þessi hugmynd verði að veruleika, meðal annars í ljósi þess að göngugatan og Ráðhústorgið eru lokuð fyrir almennri bílaumferð frá 1. maí til septemberloka.

Fjögur stæði og eitt til aðgreiningar

Fjögur stæði við Túngötu hafa frá því í júlí verið nýtt sem biðsvæði leigubifreiða, auk þess sem fimmta stæðið við götuna féll út vegna aðgreiningar á almennum stæðum og leigubílastæðum. Íbúar í Strandgötu 3 hafa óskað eftir að staðsetning biðsvæðisins verði endurskoðuð, eins og fram kom í frétt akureyri.net 25. september, vegna verulegs ónæðis fyrir íbúana þar sem staðsetningunni fylgi hávaði, öskur og læti frá fólki sem bíður eftir leigubílum, slagsmál, sóðaskapur og að fólk kasti af sér þvagi utan í húsið. 

Fjögur fremstu stæðin við Túngötu eru nú notuð sem biðsvæði leigubifreiða, auk þess sem fimmta stæðið fór undir aðgreiningu milli biðsvæðisins og almennra stæða. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

Umrædd stæði eru framan við skrifstofur Stapa lífeyrissjóðs, en ónæði um kvöld og helgar hefur að vísu ekki áhrif á starfsfólk Stapa.

Hins vegar telur Stapi „almennt ekki æskilegt að bílastæðum í næsta nágrenni við skrifstofur sjóðsins verði fækkað. ... Sjóðurinn vill jafnframt benda á að fækkun bílastæða getur komið niður á skjólstæðingum hans sem sækja þjónustu í eigin persónu. Í þeim hópi eru meðal annars öryrkjar og einstaklingar á eftirlaunaaldri sem kunna að eiga erfiðara með að nýta sér bílastæði sem eru lengra frá skrifstofu sjóðsins,“ eins og segir meðal annars í umsögn Jóhanns Steinars Jóhannssonar, framkvæmdastjóra Stapa.

Núverandi biðsvæði leigubifreiða framan við skrifstofur Stapa og undir svefnherbergisgluggum íbúða við Strandgötu 3, en heimild til notkunar þessa svæðis rennur út 1. desember. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

Ítrekuð tilfærsla óheppileg

Í erindi Hreyfils til bæjarsins segir Haraldur Axel að Hreyfill taki athugasemdir um ónæði vegna núverandi biðsvæðis við Túngötu alvarlega, en bendir þó á að mikilvægt sé að greina á milli ónæðis sem rekja megi beint til starfsemi leigubifreiða og hins vegar þess almenna ónæðis sem geti fylgt næturlífi í miðbænum. „Leigubílar gegna mikilvægu hlutverki við að koma fólki örugglega heim að lokinni skemmtun og aðgengi að þeirri þjónustu þarf að vera tryggt. Það væri óheppilegt ef vandamál tengd næturlífi almennt leiddu til þess að aðgengi almennings að leigubílaþjónustu yrði skert,“ segir meðal annars í erindinu. 

Haraldur Axel leggur jafnframt áherslu á að fundin verði varanleg lausn því óheppilegt sé að færa biðsvæðið ítrekað á milli staða. Mikilvægt sé að finna varanlega lausn tímanlega áður en heimildin við Túngötuna rennur út svo ekki skapist óvissa um þjónustuna.

Snemma árs kom meðal annars sú hugmynd til athugunar að fjögur stæði syðst í Skipagötunni yrðu nýtt í þessum tilgangi, eins og fram kom í frétt akureyri.net þann 3. mars. Sú hugmynd varð þó aldrei að veruleika vegna andstöðu rekstraraðila í nágrenninu og kom Túngatan þá inn í myndina í staðinn.

Tenerife í stað Kaupmannahafnar – eru áherslurnar réttar?

Þórhallur Jónsson skrifar
10. nóvember 2026 | kl. 15:45

Icelandair ætti að horfa norður

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
09. nóvember 2026 | kl. 19:30

Mikilvæg skref í átt að samþættingu þjónustu við eldri borgara

Guðbjörg Anna Björnsdóttir skrifar
05. nóvember 2026 | kl. 12:30

Framtíð, atvinna og velferð í verki

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
05. nóvember 2026 | kl. 11:00

Nokkrar spurningar til Samfylkingarinnar

Gunnar M. Gunnarsson skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 15:50

Áframhaldandi skilningsleysi nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 14:20