Fara í efni
Umræðan

Ingvexit?: Þegar þingmenn gleyma kjósendum sínum

Nú hefur Ingvar Þóroddsson sagt skilið við Viðreisn, lista flokksins og þingflokk, og gengið í Sjálfstæðisflokkinn. Hann segist fylgja eigin sannfæringu, en sú sannfæring leiðir hann í flokk sem kjósendur hans höfðu val um og höfnuðu. Kjósendur hans sitja því með sárt ennið og hafa engan fulltrúa lengur til að taka upp mál þeirra innan stjórnarmeirihlutans. Nú er helst að vona að kratar í Samfylkingunni og Flokki fólksins muni eftir landsbyggðinni, atvinnulífi héraðanna og buddu skattgreiðenda. Ég held þó ekki niðri í mér andanum.

Það er samt rétt að rifja upp hvað Ingvar hefur gert vel. Við höfum öll hér norðan heiða tekið rækilega eftir honum sem gagnrýninni og uppbyggilegri rödd landsbyggðarinnar í þessari ríkisstjórn, sem hefur stundum gleymt að horfa á alla kanta mála. Hann fékk formann flokksins austur á Seyðisfjörð til að heyra óánægju heimamanna með breytta forgangsröðun Fjarðarheiðarganga og gagnrýndi svo nýverið lækkun niðurgreiðslu á hvern fluglegg í Loftbrú. Við vitum nefnilega öll að það er auðveldara að láta hlusta á sig ef maður er inni í herberginu frekar en utan þess.

En nú hefur þessi rödd ákveðið að yfirgefa herbergið sem kjósendur hans völdu og halda sæti sínu í höfuðborginni. Útgangan minnir á Brexit, en með einum mun: Bretar fengu að kjósa um sína. Um útgöngu Ingvars var enginn kjósandi spurður. Þeir 2296 sem kusu Viðreisn í Norðausturkjördæmi gerðu það á grundvelli stefnu sem hann hefur nú yfirgefið. Stjórnarskráin bindur þingmenn eingöngu við sannfæringu sína, og það er góð regla. En frelsi til að fylgja sannfæringu sinni afnemur ekki ábyrgðina gagnvart þeim sem veittu atkvæðið. Fólkið sem kaus hann fól honum að tala máli sínu.

Þúsundir íbúa kjördæmisins völdu ekki Sjálfstæðisflokkinn og vildu að fulltrúi þeirra virti það. Þeir eiga skilið að hann haldi áfram að tala máli þeirra. Geri hann það ekki fá kjósendur sjálfir, í síðasta lagi eftir tvö ár, að velja sér nýjan fulltrúa sem þeir geta treyst.

Axel Björnsson er varaforseti Uppreisnar, svæðisfélags ungliðahreyfingar Viðreisnar á Akureyri

Við eigum að vera við stýrið!

Svava Björk Ólafsdóttir skrifar
18. nóvember 2026 | kl. 11:15

Erum við ekki í sama liði?

Þorleifur Ananíasson skrifar
16. nóvember 2026 | kl. 06:00

Tíu milljarða halli

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
15. nóvember 2026 | kl. 11:45

Tenerife í stað Kaupmannahafnar – eru áherslurnar réttar?

Þórhallur Jónsson skrifar
10. nóvember 2026 | kl. 15:45

Icelandair ætti að horfa norður

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
09. nóvember 2026 | kl. 19:30

Mikilvæg skref í átt að samþættingu þjónustu við eldri borgara

Guðbjörg Anna Björnsdóttir skrifar
05. nóvember 2026 | kl. 12:30