„Nú geta akureyrskir ökuþórar andað léttar“
„Wúhú! Nú geta akureyrskir ökuþórar andað léttar. Bráðabirgðahraðahindranirnar sem settar voru upp í sumar í Oddeyrargötu hafa verið fjarlægðar og umferðin farin að láta á sér kræla á ný.“ Þannig hefst pistill sem Aðalsteinn Svan Hjelm, áhugamaður um umferðaröryggi með meiru, birti á Facebook-síðu sinni í dag.
Aðalsteinn hefur um árabil barist fyrir auknu umferðaröryggi í Oddeyrargötunni, og reyndar á Akureyri almennt því hann hefur á undanförnum árum varið ómældum tíma og fyrirhöfn í baráttu fyrir því að Akureyrarbær léti útbúa umferðaröryggisáætlun, sem tókst að lokum.
Hraðinn um og yfir 80 í þröngri íbúðagötu
En að pistli Aðalsteins í dag þar sem hann vekur athygli á þeirri breytingu sem orðið hefur í götunni eftir að hraðahindranir voru fjarlægðar. „Af hraðanum að dæma hafa margir tekið þessum breytingum fagnandi enda virðist fátt trekkja meira að en tækifæri til að stytta sér leið á milli stofnbrauta í gegnum þrönga íbúðagötu þar sem engar fyrirstöður eru fyrir hendi, nema kannski einstaka íbúi og jafnvel barn.“

Í Oddeyrargötunni. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

- Yfir 10.000 ökutæki óku um Oddeyrargötu á einni viku.
- Um 60% ökumanna óku yfir hámarkshraða.
- Tæplega 1.000 ökutæki fóru yfir 40 km/klst.
- Þeir sem hraðast óku voru mældir á yfir 70 km/klst.

Íbúar hafa einnig gagnrýnt aðferðafræðina við götulokanir þegar mikið er um að vera í miðbænum, til dæmis um verslunarmannahelgina og aðrar slíkar helgar þar sem lokun efst í gilinu verður til þess að umferðarálag um þröngar íbúagötur eins og Oddeyrargötuna, Krabbastíg og Hamarstíg eykst til muna, í stað þess að ökumenn fari um stofnbrautir eins og Þórunnarstrætið. Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, íbúi við götuna, vakti athygli á þessu um verslunarmannahelgina 2024, eins og akureyri.net fjallaði um í frétt 7. ágúst sama ár.

Skjástkot úr myndböndum sem Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson birti á Facebook kl. 17:43 föstudaginn 2. ágúst. Bíll við bíl eftir Oddeyrargötunni.
Spurður um umferðarþungann í Oddeyrargötunni fyrir og eftir flutning Vínbúðarinnar úr miðbænum segir Aðalsteinn hann hafa minnkað eitthvað, en hraðann ekki. Brotthvarf heilsugæslunnar hafi einnig haft áhrif á umferðarþungann, en nú sé komin ný áfengisverslun á staðinn og líklega hafi bæst aftur í umferðina.
Áratuga barátta íbúa við Oddeyrargötuna
Barátta íbúa við Oddeyrargötuna hefur reyndar staðið mun lengur og byrjaði áratugum áður en Aðalsteinn flutti í götuna.
Í febrúar 2023 átti tíðindamaður frá akureyri.net viðtal við Aðalstein sem birt var í þremur hlutum, sá fyrsti undir yfirskriftinni „Ég ætla að bjarga þessu mannslífi,“ þar sem hann, spurður hvort ekkert myndi gerast fyrr en þarna yrði alvarlegt slys, vísaði til þess að framkvæmdir séu í raun reaktívar þar sem brugðist sé við eftir á þegar eitthvað er búið að koma fyrir, í stað þess að nota próaktívar aðgerðir sem fyrirbyggja eitthvað sem við vitum að er líklegt að gerist. Þremur árum áður munaði minnstu að keyrt yrði á son hans sem þá var að ganga út frá heimili þeirra við Oddeyrargötuna, á milli bíla á bílastæðinu – því það er enginn gangstétt þeim megin við götuna. Hliðarspegill bílsins straukst við nef drengsins.
Fyrri umfjöllun og viðtöl við Aðalstein um ástandið í Oddeyrargötunni, umferðaröryggisáætlun og hugmyndafræði:
Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?
Loftbrúin má ekki missa flugið
Hvað gerist í síðari hálfleik?
Indverskur matur og kvíðaspurningin