Fara í efni
Umræðan

Hvað á nýja gatan að heita?

Leikskólinn Hagasteinn í byggingu og nafnlausa gatan nýlega malbikuð austan megin við skólann, næst á myndinni. Mynd: Þorgeir Baldursson

Skipulagsráð leitar að nafni á nýja götu sem varð til með byggingu leikskólans Hagasteins, rúmlega 100 metra spotta sem liggur með fram leikskólanum, í suður frá Naustagötu. 

Með uppbyggingu Hagasteins við Naustagötu varð til ný gata austan megin við lóðina þar sem leikskólinn er staðsettur og á þessa nýju götu vantar nafn. Skipulagsráð óskaði eftir tillögum ungmennaráðs að nýju götuheiti og mun í framhaldinu, þegar ein eða fleiri tillögur að nafni liggja fyrir, óska umsagnar nafnanefndar. 

Nafnanefndin hefur það meginverkefni að gera tillögur og veita ráðgjöf til bæjarstjórnar, bæjarráðs, skipulagsráðs og annarra ráða um nöfn á byggingum, götum, hverfum og örnefnum sem ætla má að einkenni bæjarmyndina um langan tíma. Núverandi nafnanefnd, samkvæmt upplýsingum á vef Akureyrarbæjar, var skipuð í október 2022 til ársins 2026, en í henni sitja Brynjar Karl Óttarsson, kennari og formaður Sagnalistar, Hanna Rósa Sveinsdóttir sagnfræðingur og Kristín Árnadóttir, fyrrverandi íslenskukennari. 

Margar götur innan við 100 metrar að lengd

Nýja nafnlausa gatan er samkvæmt mælingu í kortasjánni map.is/akureyri rétt rúmir 100 metrar að lengd. Hún er þó nokkuð frá því að verða stysta gata Akureyrar. Í fljótu bragði og með óvísindalegri athugun blaðamanns í kortasjánni fundust nokkrar götur innan Akureyrar sem eru styttri en þessi nýja nafnlausa gata og þegar betur var að gáð og ábendingar frá lesendum fóru að berast fjölgaði á listanum eftir því sem leið á daginn og komnar 24 götur sem mælast innan við 100 metra langar.

Fornagil og Kleifagerði eru um 100 metrar, Laugargata er um 98 metra löng, Grundargata og Þrumutún eru um 90 metra langar, Kvistagerði um 89 metrar, Sniðgata um 85 metrar, Búðasíða um 81 metri, Skálagerði og Spónsgerði eru rétt um 70 metrar, Möðrusíða um 65 metrar, Grímseyjargata og Háagerði um 62 metrar, gata sem á korti heitir Oddeyrarbryggja gæti skilgreinst á bilinu 45-60 metrar, Skottugil er 50 metrar, Vörðugil um 46 metrar, síðan koma þrjár götur, Bankastígur, Fróðasund og Kolgerði, allar um 42 metrar að lengd, og Skriðugil um 37 metrar. Sölvastígur telst með styttri götum bæjarins, um 35 metrar. Barrlundur og Kjarrlundur eru mjög sérstakar götur, eiginlega bara innkeyrslur á bílastæði og gætu líklega talist 28-30 metra langar sem götur. Svipað á við um Skálateig, sem hýsir tvö fjölbýlishús, nr. 1 annars vegar og 3, 5 og 7 hins vegar og spurning hvaða hluti nákvæmelga af innkeyrslu að þessum blokkum telst til „götunnar“ Skálateigs. Er Skálateigur 26 metrar, 39 metrar eða jafnvel 26+36 metrar?Höfundur fréttarinnar er ekki viss um þá mælingu, jafnvel þótt hann sé sjálfur íbúi við þessa götu. Möguleikana má sjá á myndinni hér að neðan.

Upptalningin hér að ofan miðast við Akureyri, en ef leitað er innan sveitarfélagsins alls bætist við gatan Búðartangi í Hrísey, sem er um 75 metrar að lengd.

Listinn hefur verið uppfærður frá því að fréttin birtist fyrst.

Tenerife í stað Kaupmannahafnar – eru áherslurnar réttar?

Þórhallur Jónsson skrifar
10. nóvember 2026 | kl. 15:45

Icelandair ætti að horfa norður

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
09. nóvember 2026 | kl. 19:30

Mikilvæg skref í átt að samþættingu þjónustu við eldri borgara

Guðbjörg Anna Björnsdóttir skrifar
05. nóvember 2026 | kl. 12:30

Framtíð, atvinna og velferð í verki

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
05. nóvember 2026 | kl. 11:00

Nokkrar spurningar til Samfylkingarinnar

Gunnar M. Gunnarsson skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 15:50

Áframhaldandi skilningsleysi nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 14:20