Fara í efni
Umræðan

Icelandair ætti að horfa norður

Það er kominn tími til að Icelandair hefji beint áætlunarflug milli Akureyrar og Kaupmannahafnar. Þróun síðustu ára hefur styrkt rökin fyrir þeirri leið: easyJet hefur fest sig í sessi með flugi frá London og Manchester, innviðir Akureyrarflugvallar hafa verið efldir og minni Airbus-vélar eru á leið í flota Icelandair. Á sama tíma byggir Air Greenland upp beina tengingu milli Kaupmannahafnar og Ilulissat sem er áhugaverður samanburður við þessa flugleið.

Ekkert þessara atriða tryggir þó eitt og sér arðbæran rekstur en saman mynda þau, trúi ég, nægilega sterkan grundvöll til að taka næsta skref.

easyJet hóf flug milli London og Akureyrar veturinn 2023 og bætti Manchester við árið 2024. Nú er félagið komið á fjórða vetrartímabil sitt á Akureyri. London-flugið hefur jafnframt þróast yfir í lengra tímabil, frá byrjun október fram í apríl. Þetta er áþreifanleg uppbygging á markaði fyrir beint millilandaflug til Norðurlands.

Jafnvel þó að ekki sé hægt að nálgast afkomu einstakra flugleggja hjá easyJet, getum við samt fullyrt að áframhaldandi flug, viðbót nýs áfangastaðar og lenging flugtímabils eru mjög jákvæð merki um að Akureyri sé vinsæll og arðbær áfangastaður.

Það sem skiptir mestu er að markaðurinn hefur þegar sýnt viðbrögð við auknu aðgengi. Erlendir ferðamenn velja að fljúga beint til Norðurlands, líka yfir vetrarmánuðina. Heimamenn nýta sömu tengingar í hina áttina. Þetta er einmitt samspilið sem ný leið til Kaupmannahafnar þyrfti að byggjast á.

Lærdómurinn frá Ilulissat

Air Greenland hefur kynnt beina leið milli Kaupmannahafnar og Ilulissat, eftir að nýr flugvöllur var þar opnaður fyrir stuttu, með opnunarflugi 29. október og reglulegu flugi frá nóvember. Uppbyggingin er áfangaskipt: að mestu ein ferð á viku yfir veturinn fyrst um sinn, viðbótarferðir á völdum tímabilum og áform um allt að sex vikulegar ferðir yfir háannatíma sumarsins 2027 á nýrri Airbus A320neo vél Air Greenland.

Samanburðurinn við Akureyri er áhugaverður. Í Ilulissat bjuggu 5.150 manns í ársbyrjun 2026. Í Akureyrarbæ voru íbúarnir 20.284. Þetta eru ekki alveg sömu landfræðilegu einingar, en stærðarmunurinn er engu að síður verulegur. Akureyrarflugvöllur getur síðan þjónað stærra svæði en sveitarfélaginu einu.

Grænland og Ísland eru auðvitað ólíkir markaðir. Tengsl Grænlands við Danmörku, ferðamannavaran og samgöngukerfið skapa ákveðnar forsendur og Air Greenland er auk þess að fullu í eigu grænlenskra stjórnvalda. Vegna þess getum við ekki yfirfært rekstrarforsendur þess félags beint á Icelandair.

En við getum lært af nálguninni. Air Greenland horfir á Ilulissat sem gátt að heilu svæði. Icelandair ætti með sama hætti að horfa á Akureyri sem inngang að Norðurlandi, með eigin eftirspurn og eigin tækifæri.

Minni vélar breyta forsendunum

Icelandair hefur samið um leigu á tíu Airbus A320neo-vélum. Samkvæmt tilkynningu félagsins koma fjórar vorið 2027 og sex til viðbótar fyrir sumarið 2028.

Þessi þróun gefur tilefni til að endurmeta leiðir sem kunna að hafa þótt of þunnar fyrir stærri vélar. Minni sætafjöldi getur gert auðveldara að samræma framboð og eftirspurn á nýrri flugleið. Það þarf færri farþega til að ná sömu sætanýtingu, þótt tekjur á hvert sæti og heildarkostnaður ráði áfram úrslitum.

Skynsamlegasta útfærslan

Ég tel að skynsamlegasta útfærslan á slíkum legg væri að láta sömu vél fljúga frá Keflavík til Kaupmannahafnar, þaðan til Akureyrar, aftur til Kaupmannahafnar og loks heim til Keflavíkur.

Slík röðun gæti nýtt núverandi starfsemi Icelandair í Kaupmannahöfn og komið í veg fyrir að staðsetja þyrfti flugvél yfir nótt á Akureyri. Allir fjórir leggirnir væru söluvænir farþegaleggir. Vélin gæti byrjað og endað daginn á heimastöð.

Þetta væri þó langt dagsverk fyrir flugvél og þyrfti raunhæft áhafnaskipulag, svigrúm vegna tafa og samanburð við aðra nýtingu vélarinnar en hugmyndin er nægilega áþreifanleg til að reikna hana til enda. Hún á ekki að afgreiðast með almennri tilvísun til þess að leiðakerfi félagsins byggist aðeins á Keflavík.

Stuðningur er þegar til staðar

Stjórnvöld hafa líka ákveðið að styðja uppbyggingu fleiri alþjóðlegra fluggátta. Heildarfjárveiting Flugþróunarsjóðs árið 2026 nemur 338 milljónum króna. Sjóðurinn veitir meðal annars leiðarþróunarstyrk sem jafngildir um 2.462 krónum fyrir hvern lentan farþega á Akureyri eða Egilsstöðum. Hámark stuðnings samkvæmt birtum upplýsingum sjóðsins jafngildir um 41 milljónum króna á þriggja ára tímabili.

Til að setja þetta í samhengi gæti flug með 123 styrkhæfum komufarþegum skilað um 303 þúsund krónum í stuðning. Greiðslan miðast við farþega sem lendir, en ekki fjölda sæta eða sjálfkrafa báðar áttir ferðarinnar. Stuðningurinn er jafnframt háður samþykki og skilyrðum sjóðsins. Flug sem leggur áherslu á sölu sæta frá Íslandi er ekki styrkhæft samkvæmt upplýsingum Ferðamálastofu. Icelandair þyrfti því að byggja leiðina upp með markvissri sölu til erlendra ferðamanna samhliða þjónustu við heimamenn.

Þar liggur einmitt stærra viðskiptatækifærið. Bein tenging við Kaupmannahöfn gæti bæði auðveldað Norðlendingum utanlandsferðir og opnað erlendum gestum greiðari leið til Norðurlands. Stuðningur sjóðsins gæti dregið úr áhættu á uppbyggingartímanum og gefið leiðinni svigrúm til að festa sig í sessi.

easyJet hefur þegar nýtt þessa umgjörð og hlaut samkvæmt upplýsingum stjórnvalda hæsta fjárstuðning ársins 2025 úr Flugþróunarsjóði. Uppbygging flugfélagsins sýnir því hvernig einkaframtak, markaðsstarf og opinber stuðningur geta unnið saman að því að styrkja millilandaflug um Akureyri.

Byrjum í viðráðanlegum skrefum

Ég tel skynsamlegt að Icelandair byrji á tveimur vikulegum ferðum til Kaupmannahafnar á afmörkuðu tímabili. Velja þyrfti ferðadaga sem bjóða bæði styttri og lengri dvöl, líkt og easyJet hefur verið að gera, hefja sölu með góðum fyrirvara og vinna með ferðaþjónustunni að því að fylla vélarnar í báðar áttir.

Akureyri hefur þegar fengið stærri flugstöð og flughlað til að styðja við aukið millilandaflug. easyJet hefur byggt upp reglulegar tengingar við tvær breskar borgir. Opinber stuðningur er til staðar fyrir hæfa uppbyggingu nýrra leiða og A320neo-vélar eru á leið til Icelandair.

Næsta skref ætti að vera Kaupmannahöfn. Icelandair hefur ástæðu til að taka þátt í þeirri uppbyggingu og Norðurland hefur þegar sýnt að það getur tekið á móti henni.

Birgir Orri Ásgrímsson er viðskiptafræðinemi við Háskólann á Akureyri

Mikilvæg skref í átt að samþættingu þjónustu við eldri borgara

Guðbjörg Anna Björnsdóttir skrifar
05. nóvember 2026 | kl. 12:30

Framtíð, atvinna og velferð í verki

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
05. nóvember 2026 | kl. 11:00

Nokkrar spurningar til Samfylkingarinnar

Gunnar M. Gunnarsson skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 15:50

Áframhaldandi skilningsleysi nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 14:20

Látum Loftbrúna vera

Sindri S. Kristjánsson skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 13:10

Stillum ekki íþróttum og menningu upp sem andstæðum pólum

Gunnar M. Gunnarsson skrifar
02. nóvember 2026 | kl. 14:10