Tenerife í stað Kaupmannahafnar – eru áherslurnar réttar?
Um leið og ég fagna reglulegu millilandaflugi Icelandair til Tenerife um Akureyrarflugvöll, jafnvel þó það sé bara í nokkra mánuði á ári, þá set ég samt spurningamerki við það.
Það er erfitt að skilja þær áherslur sem birtast í áformum Icelandair um millilandaflug frá Akureyri. Nú virðist sem að fyrirhuguðu flugi Icelandair frá Akureyri til Tenerife, sem á að hefja næsta haust á sama tímabili og easyJet flýgur til Akureyrar frá Gatwick, sé stillt upp til höfuðs easyJet nánast eins og það sé samkeppni við framboð á millilandaflugi um Akureyrarflugvöll sem easyJet hefur sinnt en við vitum að margir Akureyringar hafa nýtt flugið til að komast áfram til Tenerife.
En er þetta raunverulega það sem Akureyringar og markaðurinn hér hefur verið að kalla eftir?
Það hefur lengi verið skýr ósk íbúa á Norðurlandi að fá reglulegt áætlunarflug milli Akureyrar og Kaupmannahafnar. Flug tvisvar í viku hefði verið mikilvægt skref í að bæta tengingar okkar við útlönd, styrkja atvinnulífið og gera Akureyri að betri valkosti fyrir bæði íbúa og fyrirtæki á Norðurlandi.
Niceair sýndi fram á það á sínum tíma að það er alveg grundvöllur fyrir áætlunarflugi til Kaupmannahafnar.
Ef Icelandair hefði minnstan áhuga á að byggja upp og efla aðra gátt inní landið þá ættu þeir að byrja á flugi til Kaupmannahafnar.
Flug til Tenerife getur vissulega verið kærkominn kostur fyrir þá sem vilja komast í sólina úr skammdeginu en það kemur ekki í stað reglulegra millilanda tenginga sem nýtast fólki í daglegu lífi, atvinnulífinu og viðskiptum.
Við eigum ekki að þurfa að velja á milli þess að komast í sól eða geta ferðast greiðlega til helstu tengimiðstöðva Evrópu.
Spurningin er því einföld; Eru flugsamgöngur frá Akureyri fyrst og fremst hugsaðar til að selja okkur orlofsferðir í sólina eða til að tengja Norðurland betur við umheiminn?
Mér finnst löngu tímabært að Icelandair forgangsraði betur og hlusti á það sem Akureyringar og íbúar Norðausturlands hafa raunverulega verið að kalla eftir.
Ég fagna öllu millilandaflugi um Akureyrarflugvöll og ekki síst þegar flugfélagið okkar Icelandair ætlar loks að hefja reglulegt millilandaflug um völlinn. Það ætti allavega að verða til þess að byggt verði við flugstöðina þannig að innritunar farþegar Icelandair þurfi ekki húka úti í slyddu og norðangarra og eins að komufarþegar þurfi ekki að standa úti á flugplani í röð fyrir vegabréfaskoðun. Ég hef fulla trú á að Isavia hoppi nú til og græi þetta í hvelli.
Þórhallur Jónsson er bæjarfulltrúi Akureyrarlistans
Mikilvæg skref í átt að samþættingu þjónustu við eldri borgara
Framtíð, atvinna og velferð í verki
Nokkrar spurningar til Samfylkingarinnar
Áframhaldandi skilningsleysi nýliða