Beiðni Odds hafnað og Dvergaholt óbreytt
Bæjarráð Akureyrar hafnaði í gær beiðni Odds Helga Halldórssonar, íbúa við Dvergaholt og fyrrverandi bæjarfulltrúa, þess efnis að synjun skipulagsráðs á tillögu hans um breytingu á deiliskipulagi Dvergaholts verði tekin til endurskoðunar. Oddur Helgi lagði til að deiliskipulag Holtahverfis norður og Sandgerðisbótar yrði samræmt þannig að hægt yrði að aka Dvergaholt niður á Óseyri.
- Fjallað var ítarlega um málið á akureyri.net í vikunni – Oddur Helgi vill fá Dvergaholt opnað
Bæjarráð tók erindi Odds Helga fyrir 3. september og fól þá bæjarlögmanni, Ingu Þöll Þórgnýsdóttur, að kanna heimild til endurupptöku málsins. Á fundi bæjaráðs í gær kom fram að mat bæjarlögmanns væri að Oddur Helgi hefði ekki sýnt fram á að ákvörðun um að falla frá að gera breytingu á deiliskipulagi hafi byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik. Beiðni um endurupptöku uppfyllti því ekki skilyrði stjórnsýslulaga.
„Bæjarráð hefur farið yfir álit bæjarlögmanns um heimild til endurupptöku málsins samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga. Að mati bæjarráðs eru ekki uppfyllt skilyrði laganna fyrir endurupptöku málsins og er erindi um endurupptöku því hafnað,“ segir í fundargerð bæjarráðs frá því í gær.
Gerum betur!
Það að verja fé til endurhæfingar er fjárfesting
Hönd í hönd niður um deild?
Stjórnmálin verða að svara þeim sem minnst hafa