Fara í efni
Umræðan

Þegar hækkanir eru auglýstar sem lækkanir

Nýstárleg reikningslist hjá Akureyrarbæ – lægri prósenta, hærri reikningur.

Þau gleðitíðindi hafa borist frá bæjaryfirvöldum á Akureyri að til standi að lækka álagningarhlutfall fasteignaskatts/fasteignagjalda á atvinnuhúsnæði úr 1,61% í 1,59%.

Fagnaðarefni mikið – að minnsta kosti þar til greiðsluseðillinn mun berast. Í tilviki Slippsins Akureyri birtist þessi rausnarlega lækkun með eftirfarandi hætti:

  • Árið 2026 greiddi félagið liðlega 34,8 milljónir króna í fasteignagjöld og fasteignatengda skatta.
  • Árið 2027 mun félagið greiða tæplega 36,3 milljón króna í fasteignagjöld og fasteignatengda skatta

Félagið fær sem sagt að njóta þeirra forréttinda að greiða liðlega 1,4 milljónum króna meira á næsta ári í boði bæjaryfirvalda sem kynna lækkun á álagningarhlutfalli fasteignaskatts.

Áhrif boðaðrar lækkunar milli áranna 2026 og 2027 í tilfelli Slippsins Akureyri má sjá í eftirfarandi töflu.

Hækkanir hafa verið linnulausar og frá árinu 2021 til ársins 2027 munu fasteignatengd gjöld félagsins hafa hækkað um tæplega 58%.

Það er því eins gott að bæjarstjórn skuli hafa ráðist í þessa lækkun. Annars hefði maður jafnvel getað haldið að gjöldin væru að hækka.

Að kríta liðugt

Í minni heimasveit var talað um að menn krítuðu liðugt þegar farið var heldur frjálslega með sannleikann. Sú lýsing á ágætlega við þegar lækkun á álagningarhlutfalli er hampað í fréttatilkynningum á sama tíma og krónutala gjaldanna hækkar, meira að segja liðsins sem lækkunin nær til.

Fasteignatengd gjöld fyrirtækja samanstanda ekki eingöngu af fasteignaskatti. Þar bætast við lóðaleiga, fráveitugjöld, vatnsgjöld og tilheyrandi fastagjöld. Á aðra gjaldaliði en fasteignagjöld eru boðaðar hækkanir. Við þetta bætist 7,1% hækkun fasteignamats atvinnuhúsnæðis á Akureyri milli áranna 2026 og 2027.

Úr öllum þessum tölum tekst bæjaryfirvöldum að finna eina sem lækkar og auðvitað er það talan sem fær sviðsljósið, 0,02 prósentustig.

Það merkilega við þessa boðuðu lækkun er að jafnvel sá gjaldaliður sem lækkunin nær sérstaklega til hækkar í krónum talið, bæjaryfirvöld hafa þannig náð þeim athyglisverða árangri að lækka skatthlutfall án þess að lækka skattinn. Einhver myndi jafnvel ganga svo langt að kalla það afrek að stæra sig af lækkunum sem enda í krónutöluhækkunum.

Fyrirtæki jafnt og einstaklingar greiða reikninga í krónum en ekki prósentustigum. Það virðist hafa gleymst í kynningu bæjaryfirvalda.

Lækkun til kynningar – hækkun til innheimtu

Það er erfitt að sjá hvaða tilgangi þessi boðaða lækkun þjónar öðrum en þeim að skapa jákvæðar fyrirsagnir fyrir forsvarsfólk bæjarins og dreifa athyglinni frá stórfelldum hækkunum fasteignatengdra gjalda á fyrirtæki á Akureyri undanfarin ár. Bæjaryfirvöld fá að tala um lækkanir á samkomustöðum almennings á meðan fyrirtækin fá að greiða hækkanirnar. Það er óneitanlega þægileg verkaskipting fyrir bæjaryfirvöld.

Skattar eru ekki náttúrulögmál

Það er stórt vandamál þegar kjörnir fulltrúar virðast líta á stöðugar gjaldahækkanir sem náttúrulögmál en ekki afleiðingu eigin ákvarðana.

Skattar eru mannanna verk. Álagningarhlutföll eru mannanna verk. Fjárhagsáætlanir eru mannanna verk.

Og það er pólitísk ákvörðun hversu langt er gengið í skattheimtu. Eftir tæplega 58% hækkun fasteignatengdra gjalda á sjö álagningarárum er það sérstök tegund af kímnigáfu að kynna 0,02 prósentustiga lækkun álagningarhlutfalls fasteignagjalda sem gleðitíðindi fyrir atvinnulífið.

Hvaðan kom eiginlega þessi örláta tala, 0,02 prósentustig? Var hún fundin með það að markmiði að lækka gjöld fyrirtækja eða einfaldlega til þess að hægt væri að nota orðið „lækkun“ í fréttatilkynningu?

Spurningin sem bæjaryfirvöld þurfa að svara er einföld:

Hvenær fá fyrirtæki á Akureyri að njóta lækkunar sem kemur fram á greiðsluseðli en ekki bara í fréttatilkynningu?

Þangað til væri ef til vill heiðarlegra að auglýsa þessar lækkanir undir eftirfarandi slagorði:

Akureyrarbær: Við lækkum prósentuna. Þú greiðir hækkunina.

Páll Kristjánsson er framkvæmdastjóri Slippsins Akureyri

Talaðu niður atvinnugreinina, hækkaðu svo skatta

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
23. nóvember 2026 | kl. 14:15

Ingvexit?: Þegar þingmenn gleyma kjósendum sínum

Axel Björnsson skrifar
18. nóvember 2026 | kl. 11:45

Við eigum að vera við stýrið!

Svava Björk Ólafsdóttir skrifar
18. nóvember 2026 | kl. 11:15

Erum við ekki í sama liði?

Þorleifur Ananíasson skrifar
16. nóvember 2026 | kl. 06:00

Tíu milljarða halli

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
15. nóvember 2026 | kl. 11:45

Tenerife í stað Kaupmannahafnar – eru áherslurnar réttar?

Þórhallur Jónsson skrifar
10. nóvember 2026 | kl. 15:45