Fara í efni
Umræðan

Akureyrarbær brýtur gegn viðmiðum Barnvæns sveitarfélags

Ungmennaráð Akureyrar lýsir yfir miklum áhyggjum og vonbrigðum vegna nýlegra skipulagsbreytinga á félagsmiðstöðvastarfi í bænum. Breytingarnar fela í sér að öll starfsemi Félagsmiðstöðva Akureyrar (FÉLAK), þar á meðal Ungmennahúsið og Virkið, verður færð alfarið undir stjórn grunnskólanna í bænum.

Það sem vekur sérstaka athygli og áhyggjur ráðsins er sú staðreynd að engin samskipti voru höfð við Ungmennaráðið fyrir þessar ákvarðanir, og engin beiðni um umsögn barst ráðinu. Við fréttum fyrst af breytingunum í gegnum fjölmiðla – þrátt fyrir að þær hafi bein og veruleg áhrif á börn og ungmenni í samfélaginu. Ungmennaráðið er formlegur vettvangur lýðræðislegrar þátttöku barna og ungmenna í Akureyrarbæ og ber að kalla til þess í málum sem varða þau. Það var ekki gert.

Með þessari aðferðafræði brýtur sveitarfélagið gegn viðmiðum Barnvæns sveitarfélags, sem það hefur skuldbundið sig til að fylgja, auk þess að ganga gegn grunnmarkmiðum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem kveður á um rétt barna og ungmenna til að tjá sig og hafa áhrif á ákvarðanir sem varða þau.

Ungmennaráð tekur einnig undir með starfsfólki FÉLAK sem hefur ítrekað lýst yfir djúpum faglegum áhyggjum af breytingunum. Áhyggjur þeirra endurspegla einnig sjónarmið okkar sem fulltrúa ungs fólks í bænum:

  • Að með því að færa félags- og frístundastarf undir skólastarf glatist mikilvægt sjálfstæði og faglegt svigrúm, sem eru forsendur fyrir öruggu og traustu umhverfi fyrir börn og ungmenni utan skólakerfisins.
  • Að þjónusta við viðkvæma hópa ungmenna, sem hingað til hafa sótt stuðning til Ungmennahússins og Virkisins, verði skert.
  • Að samþætt og samfellt starf fagfólks sem starfað hefur þvert á skóla og aldurshópa, með áherslu á forvarnir, valdeflingu og snemmtæka íhlutun, verði veiklað eða hverfi alfarið.
  • Að dregið verði úr lýðræðislegri þátttöku barna og ungmenna í eigin málefnum.

Einnig viljum við vekja athygli á því að fyrir liggur að ný æskulýðslög verða lögð fyrir Alþingi haustið 2025. Í þeim er lögð rík áhersla á virka þátttöku barna og ungmenna í ákvarðanatöku, sjálfstæði æskulýðsstarfs og mikilvægi óformlegs náms sem rými fyrir þroska og félagslega færni. Skipulagsbreytingar af því tagi sem nú hafa átt sér stað ganga beint gegn slíkum markmiðum og sýna skort á framtíðarsýn í málefnum barna og ungmenna.

Við í Ungmennaráðinu höfum átt samtal við Marín Rós Eyjólfsdóttur, verkefnastjóra Barnvænna sveitarfélaga hjá UNICEF á Íslandi, sem áréttaði mikilvægi þess að réttindi barna séu höfð að leiðarljósi við alla ákvörðunartöku sem varðar börn. Hún lagði áherslu á að börn eigi alltaf að fá tækifæri til að tjá sig um slíkar ákvarðanir tímanlega, svo þátttaka þeirra geti talist merkingarbær. Þessi árétting undirstrikar að málið snýst ekki eingöngu um staðbundna stjórnsýslu – heldur grundvallarrétt barna til lýðræðislegrar þátttöku samkvæmt bæði íslenskum og alþjóðlegum skuldbindingum.

Við í Ungmennaráði Akureyrar höfum það að leiðarljósi að rödd barna og ungmenna eigi ekki aðeins heima í skrautsömum stefnuyfirlýsingum – heldur í raunverulegri ákvarðanatöku. Við teljum að bæjaryfirvöld beri skylda til að skapa rými fyrir slíka þátttöku og að virðing fyrir rödd unga fólksins sé forsenda trausts og farsældar í sveitarfélaginu. 

Með virðingu,
Ungmennaráð Akureyrarbæjar

París Anna Bermann Elvarsdóttir

Heimir Sigurpáll Árnason

Fríða Björg Tómasdóttir

Lilja Dögun Lúðvíksdóttir

Bjarki Orrason

Sigmundur Logi Þórðarson

Aldís Ósk Arnaldsdóttir

Leyla Ósk Jónsdóttir

Rebekka Rut Birgisdóttir

Ólöf Berglind Guðnadóttir

Íris Ósk Sverrisdóttir

Heil­brigðis­kerfið í bakk­gír

Ingibjörg Isaksen skrifar
12. júní 2025 | kl. 11:00

Hvers vegna öll þessi leynd?

Hilda Jana Gísladóttir og Sindri Kristjánsson skrifa
11. júní 2025 | kl. 14:45

Tollar ESB og fullunninn fiskur

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
08. júní 2025 | kl. 10:00

Skipulagsbreytingar og grundvallaratriði

Árni Guðmundsson skrifar
06. júní 2025 | kl. 21:45

Héraðs­vötn og Kjalöldu­veitu í nýtingar­flokk

Jens Garðar Helgason og Ólafur Adolfsson skrifa
06. júní 2025 | kl. 21:30

Forvarna og frístundadeild Akureyrar lögð niður

Starfsfólk FÉLAK - Félagsmiðstöðva Akureyrar skrifar
05. júní 2025 | kl. 19:00