Fara í efni
Pistlar

Sæfari lengur í slipp en áætlað var

Mynd af vef Akureyrarbæjar

Viðgerðir og viðhald á Grímseyjarferjunni Sæfara reyndust tímafrekari en ætlað var. Samkvæmt nýjustu upplýsingum er áætlað að ferjan hefji siglingar á ný í síðasta lagi 9. mars. Greint er frá þessu á vef Akureyrarbæjar í dag.

„Eins og áður hefur komið fram fór Sæfari í slipp 19. janúar í reglubundið viðhald og viðgerðir. Við framgang endurbótanna reyndust viðgerðir tímafrekari en talið var í fyrstu og því hefur dvöl ferjunnar í slipp lengst,“ segir í tilkynningu bæjarins.

„Á meðan Sæfari er frá siglingum verða engar farþegasiglingar milli Dalvíkur og Grímseyjar. Farþegar eru beðnir um að nýta flugferðir á meðan. Flogið er samkvæmt áætlun þrisvar í viku; á þriðjudögum, föstudögum og sunnudögum“. Fram kemur að farmur verði fluttur með Þorleifi EA-088, sömu daga og ferjan hefði annars siglt.

Viðvíkurförin

Jóhann Árelíuz skrifar
24. maí 2026 | kl. 13:00

Hús dagsins: Lækjargata 22

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 06:00

Tré ölrakóngsins. Seinni hluti: Vist og notkun

Sigurður Arnarson skrifar
20. maí 2026 | kl. 09:00

Líkaminn geymir meira en við höldum

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
19. maí 2026 | kl. 09:00

Slakaðu á maður, þetta er bara Fúsi!

Orri Páll Ormarsson skrifar
15. maí 2026 | kl. 06:00

Lárheggur. Sígrænn, blómstrandi krúttrunni

Sigurður Arnarson skrifar
13. maí 2026 | kl. 09:30