Fara í efni
Pistlar

Lárheggur. Sígrænn, blómstrandi krúttrunni

TRÉ VIKUNNAR - 164

Pistill í röðinni Tré vikunnar birtist vikulega á vef Skógræktarfélags Eyfirðinga, alla miðvikudaga. Akureyri.net birtir brot úr hverjum pistli til að vekja athygli á skrifunum og hvetur fólk til að lesa meira á vefsíðu félagsins.
_ _ _

Óhætt er að fullyrða að oftast er það þannig með okkur Íslendinga að við notum heimilisgarðana okkar ekki mikið nema í um fjóra mánuði á ári. Aftur á móti koma flest okkar heim til sín næstum alla daga ársins. Því getur verið skemmtilegt að skipuleggja sígræn beð sem næst útidyrunum. Þá tekur alltaf eitthvað grænt á móti okkur þegar við komum heim hvenær ársins sem er nema ef allt er á kafi í snjó. Ekki er verra ef þessir sígrænu runnar geta blómstrað fallega en það geta þeir ekki allir. Ef hægt er að hafa svona beð í góðu skjóli er tilvalið að hafa þar lárhegg eða Prunus laurocerasus L. Hann er sígrænn og blómstrar snemma á hverju vori. Þannig tilkynnir hann okkur að sumarið sé á næsta leiti. Svo er vaxandi áhugi hjá mörgum að hafa sem flestar sígrænar tegundir sem víðast í görðum svo hægt sé að njóta þeirra árið um kring. Þar passar lárheggurinn prýðilega.

Tré vikunnar er lárheggur.

 
Sígrænn heggur að vetri til á Akureyri. Efst á myndinni sér í blöð sem hafa visnað. Það gerist ekki árvisst. Mynd: Sig.A.
Sígrænn heggur að vetri til á Akureyri. Efst á myndinni sér í blöð sem hafa visnað. Það gerist ekki árvisst. Mynd: Sig.A.

Heggættkvíslin

Ættkvísl heggtrjáa, Prunus spp., er fjölbreytt og falleg. Innan hennar eru meðal annars ýmsar nytjaplöntur eins og apríkósur, kirsuber, ferskjur, möndlur og plómur, en einnig ýmsar skrautplöntur. Við höfum áður fjallað um hegg, P. padus, í pistlum okkar, blóðhegg, P. padus f. colorata, virginíuhegg, P. virginiana og næfurhegg, P. maackii,. Allt eru þetta tegundir sem mynda lauffellandi, stóra runna eða lítil tré sem bera snotur blóm, oftast hvít, sem gjarnan eru í þéttum, hangandi klösum og standa fremur stutt.

Nú er komið að enn einni heggtegundinni. Ólíkt þeim heggtegundum sem við höfum áður fjallað um er þessi tegund viðkvæm og sígræn. Hér á landi er hún einnig miklu minni á allan hátt en aðrar heggtegundir. Þessi fágæta heggtegund er samt alveg þess virði að skenkja henni þanka og planta henni í skjólgóða garða þar sem njóta má hennar allt árið um kring.

 
Blómstrandi, sígrænn lárheggur í beði á Akureyri. Fjær sér í reyniblöðku. Mynd: Sig.A.
Blómstrandi, sígrænn lárheggur í beði á Akureyri. Fjær sér í reyniblöðku. Mynd: Sig.A.

Nafnið

Íslenska nafnið lárheggur er vel heppnuð þýðing á fræðiheitinu sem Linnæus gaf tegundinni árið 1753. Ættkvíslarheitið er Prunus eins og á öllum öðrum hegg, en seinna heitið er laurocerasus. Það vísar í lárvið sem við höfum áður fjallað um. Fræðiheiti hans er Laurus nobilis en það ættkvíslarheiti mun merkja sigur. Bæði vöxtur og þó enn frekar laufin á lárhegg þykja minna mjög á lárvið og því hlaut hann þetta nafn. Svo líkar eru þessar tegundir að það kemur fyrir að lárviðarkransar séu búnir til úr lárhegg. Það er auðvitað dálítið svindl.

 
Lárhegg má sjá víða í Evrópu og þá gjarnan hávaxnari yrki en ræktuð eru á Íslandi. Hér er lárheggur í limgerði í Horsens á Jótlandi. Ef vel er að gáð má sjá gömul, sölnuð blóm. Mynd: Sig.A.
Lárhegg má sjá víða í Evrópu og þá gjarnan hávaxnari yrki en ræktuð eru á Íslandi. Hér er lárheggur í limgerði í Horsens á Jótlandi. Ef vel er að gáð má sjá gömul, sölnuð blóm. Mynd: Sig.A.
Lárheggur í skoska þorpinu Glenfarg. Myndir: Sig.A.

Enskt heiti tegundarinnar er Cherry Laurel. Það er hugsað á sama hátt og íslenska heitið. Prunus-ættkvíslin er á ensku kennd við kirsuber (Cherry), sem einmitt er af þessari ættkvísl og lárviður kallast Laurel. Svipaða sögu er að segja af öðrum Evrópumálum. Spánverjar kalla lárhegginn laurel cerezo, Frakkar laurier-amande, Svíar lagerhägg og Þjóðverjar Kirschlorbeer ef marka má íðorðabanka Árnastofnunar. Í Bandaríkjunum er tegundin gjarnan nefnd English Laurel eða enskur lárviður.

Sigurður Arnarson er í stjórn Skógræktarfélags Eyfirðinga.

Meira á vef Skógræktarfélagsins. Smellið hér til að sjá allan pistilinn.

Glímt við Selána

Jóhann Árelíuz skrifar
10. maí 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Sæborg í Glerárþorpi

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
09. maí 2026 | kl. 06:00

Attenborough og trjávernd

Sigurður Arnarson skrifar
08. maí 2026 | kl. 21:00

Að bjarga heyi. Skáldin um landlæsi

Sigurður Arnarson skrifar
06. maí 2026 | kl. 18:00

Persónuleiki og fíkn

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
06. maí 2026 | kl. 06:00

Hversu vel hreyfist þú? Getur verið að þig vanti hreyfanleika?

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
05. maí 2026 | kl. 06:00