Fara í efni
Pistlar

Fyrstu kríurnar eru komnar til Grímseyjar

Mynd: María H. Tryggvadóttir

Fyrstu kríurnar sumarsins hafa nú vitjað varpstöðvanna í Grímsey. „Alfreð Garðarsson sem búsettur er í Grímsey varð var við fyrstu kríurnar í vikunni. Varpið í eyjunni er eitt af stærri kríubyggðum á landinu og er talið að þar verpi þúsundir para,“ segir á Grímseyjarhluta vefs Akureyrarbæjar um helgina.

Krían er einstakur farfugl og er líf hennar eitt samfellt sumar, segir í fréttinni. „Til að gera það leggur hún á sig lengsta farflug allra fugla. Kríurnar koma til Grímseyjar jafnan í byrjun maí og halda á brott aftur í byrjun ágúst. Þær fljúga krókaleiðir yfir heimshöfin og eru komnar í Weddellhafið við Suðurskautslandið í nóvember, þar sem þær dvelja yfir suðrænu sumarmánuðina fram í apríl áður en ferðin norður hefst á ný.“

Rannsóknir á merktum kríum hafa sýnt að árlegt farflug þeirra getur verið yfir 80–90 þúsund kílómetrar, sem samsvarar um tveimur hringferðum umhverfis jörðina. Krían getur orðið yfir 30 ára gömul og á lífsferli sínum getur hún því flogið vegalengd sem jafngildir allt að sjöfaldri fjarlægðinni til tunglsins.

Afi og amma á Hraunfelli

Jóhann Árelíuz skrifar
01. nóvember 2026 | kl. 06:00

Elrið og þjóðsögurnar

Sigurður Arnarson skrifar
28. október 2026 | kl. 15:30

Mannúðarlánastefna og biksvartur húmor

Rakel Hinriksdóttir skrifar
28. október 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Hríseyjargata 6

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
28. október 2026 | kl. 01:30

Hús dagsins: Norðurgata 33

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
25. október 2026 | kl. 21:00

Beitarkóngur á Borgum

Jóhann Árelíuz skrifar
25. október 2026 | kl. 06:00