Fara í efni
Pistlar

Lundinn er mættur í Grímsey

Lundar í Grímsey. Mynd: grimsey.is

Í fyrradag sást til fyrstu lundanna í Grímsey þetta vorið og í gær voru þeir mættir í eyjuna.

Eftir því sem fram kemur í frétt á grimsey.is sást til lunda skammt fyrir undan ströndina á miðvikudaginn og í gær tóku systurnar Unnur og Halla Ingólfsdætur eftir þeim í björgunum suður við vitann.

Óvenjusnjóþungt hefur verið í Grímsey síðustu vikur og meðal annars þurfti nýlega að fresta kvenfélagsfundi vegna illviðris og ófærðar. Hins vegar hefur mikið tekið upp af snjó í hlýindunum síðustu daga þannig að lundarnir ættu að geta ratað á holurnar sínar og farið að gera klárt fyrir sumarið.

Er hægt að spila fótbolta svona?

Orri Páll Ormarsson skrifar
10. júlí 2026 | kl. 11:00

Vínviður Vínlands hins góða

Sigurður Arnarson skrifar
08. júlí 2026 | kl. 10:00

Kreppuáll, fuglalíf og ástarglóð

Jóhann Árelíuz skrifar
05. júlí 2026 | kl. 06:00

Hagaskógrækt

Sigurður Arnarson skrifar
01. júlí 2026 | kl. 10:30

Byggðu líkama fyrir lífið

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
30. júní 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Oddeyrargata 26 (100 ára hús I)

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
29. júní 2026 | kl. 06:00