Fara í efni
Pistlar

Mótmæla fækkun ferða Grímseyjarferju

María H. Tryggvadóttir

Hverfisráð Grímseyjar hefur mótmælt fyrirhuguðum breytingum á siglingaáætlun Sæfara. Til stendur að fella niður fimmtudagsferðir milli Grímseyjar og Dalvíkur nema yfir sumartímann, en hverfisráð krefst þess að fimmtudagsferðin verði óbreytt. Bæjarráð Akureyrar fjallaði um málið í vikunni, tók heilshugar undir mótmæli hverfisráðsins og fól bæjarstjóra að koma sjónarmiðum bæjarins á framfæri við hlutaðeigandi aðila.

Í erindi hverfisráðsins er bent á mikilvægi fimmtudagsferðanna fyrir atvinnulíf og búsetu í eyjunni og að samgöngur séu ein af grunnstoðum byggðar. Fimmtudagsferðin sé m.a. lykilþáttur í að tryggja ferskleika sjávarafurða úr eyjunni á markað. Einnig skipti fimmtudagsferðin höfuðmáli fyrir ferðaþjónustu í eyjunni, með því að gera styttri og raunhæfari ferðir mögulegar á því tímabili sem fimmtudagsferðirnar hafa verið farnar. Og vegna ótryggs veðurfars myndi fækkun ferða auka óvissu og skerða aðgengi íbúa að nauðsynlegri þjónustu í landi.

Sæfari siglir milli Dalvíkur og Grímseyjar á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum allt árið. Á sumrin bætist við sunnudagsbrottför og umræddar fimmtudagsferðir hafa verið á dagskrá alla fimmtudaga frá miðjum janúar til septemberloka. Þá er áætlunarflug einnig í boði milli lands og eyjar þrisvar í viku en það er viðkvæmara fyrir veðri og vindum og fellur því oftar niður en siglingar.

Bókun bæjarráðs í heild:

Bæjarráð tekur heilshugar undir mótmæli gegn fyrirhuguðum breytingum á siglingaáætlun Sæfara. Tryggar og reglulegar ferjusamgöngur eru ein af grunnstoðum byggðar í Grímsey og lykilatriði fyrir atvinnulífið. Fækkun ferða eykur óvissu, skerðir aðgengi íbúa að nauðsynlegri þjónustu í landi og gerir samfélagið brothættara. Bæjarráð hvetur eindregið til þess að ákvörðunin verði endurskoðuð og felur bæjarstjóra að koma þessum sjónarmiðum á framfæri við Vegagerðina, umhverfis- og samgöngunefnd og fjárlaganefnd Alþingis.

 

Með höfuðið í gini ljónsins

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
15. ágúst 2026 | kl. 06:00

Hinn sæti sykurhlynur

Sigurður Arnarson skrifar
12. ágúst 2026 | kl. 15:00

Hverju gefum við pláss?

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
11. ágúst 2026 | kl. 06:00

Byggt á Borgum

Jóhann Árelíuz skrifar
09. ágúst 2026 | kl. 06:00

Frelsisást og feigðarþrá

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
08. ágúst 2026 | kl. 06:00

Var 1986 besta ár sögunnar?

Orri Páll Ormarsson skrifar
07. ágúst 2026 | kl. 08:00