Fara í efni
Pistlar

10,6 milljónir til að laga gönguleiðina að Básavík

Mynd: María H. Tryggvadóttir

Grímsey hefur hlotið styrk frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða upp á 10,6 milljónir króna til að bæta aðgengi og öryggi á einni vinsælustu gönguleið eyjunnar – leiðinni að heimskautsbaugstákninu við Básavík.

Á vef Akureyrarbæjar segir að með verkefninu verði gönguleiðin lagfærð þar sem hún liggur um blautt mólendi þar sem stórir drullupollar hafa torveldað umferð og skapað slysahættu. Lögð verða dren undir stíginn til að stýra vatnsflæði og draga úr pollamyndun, auk þess sem dældir verða fylltar og stígurinn jafnaður. Markmiðið er að gera leiðina þurrari, öruggari og aðgengilegri fyrir bæði ferðamenn og heimamenn.

Jafnframt verður sett upp upplýsingaskilti við Básavík sem fræðir gesti um lundann og varar við hættunni sem skapast getur vegna lundahola við bjargbrúnir.

Að hverfa til einfaldleikans

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
26. september 2026 | kl. 06:00

Notkun og mikilvægi hafþyrnis

Sigurður Arnarson skrifar
23. september 2026 | kl. 11:20

Þurfum við alltaf að vera að verða betri?

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 06:00

Neita að troða nikku í kokið

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
19. september 2026 | kl. 06:00

Takk fyrir mig, Akureyri!

Orri Páll Ormarsson skrifar
18. september 2026 | kl. 12:00

Þröngsýni, sjúkdómur hinna

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
16. september 2026 | kl. 20:00