Notkun og mikilvægi hafþyrnis
TRÉ VIKUNNAR - 183
Pistill í röðinni Tré vikunnar birtist vikulega á vef Skógræktarfélags Eyfirðinga, alla miðvikudaga. Akureyri.net birtir brot úr hverjum pistli til að vekja athygli á skrifunum og hvetur fólk til að lesa meira á vefsíðu félagsins.
_ _ _
Hafþyrnir hefur nokkuð sérstakt útlit og er auðþekktur. Honum má planta í sumarbústaðalönd, skógarjaðra og víðar þar sem jarðvegur og önnur skilyrði henta og hann er reyndar ljómandi góð landgræðsluplanta. Að auki ber hann holl og næringarrík ber sem nýta má til manneldis. Einnig mætti nota hafþyrni meira í garðrækt en nú er gert þar sem hann vekur athygli fyrir sitt sérkennilega útlit. Þrátt fyrir þessa upptalningu er runninn ekki mikið ræktaður hér á landi og við verðum að hafa í huga að runninn er þyrnóttur og getur víða skotið rótum. Það hugnast ekki öllum og því er full ástæða til að nota hann varlega. Samt teljum við að nýta mætti tegundina töluvert meira en nú er gert.

Hér birtist þriðji pistill okkar um hafþyrni. Í fyrsta pistlinum lýstum við tegundinni og sögðum frá helstu einkennum hennar. Í pistli númer tvö sögðum við frá berjunum og ræktun þeirra. Í lokapistlinum, sem nú birtist, förum við yfir notkun hafþyrnis á Íslandi. Þar ber hæst að tegundina má nota til landgræðslu þar sem hún hefur jarðvegsbætandi áhrif. Ekki veitir af í okkar nitursnauða landi enda þrífst hafþyrnir við skilyrði sem henta fáum tegundum. Öll notkun hafþyrnis á Íslandi á sér samsvörun í öðrum löndum. Í pistlinum höfum við einnig stuttan ættfræðikafla og segjum frá þeim undirtegundum sem til eru í Evrópu. Við segjum líka frá mikilvægi niturs sem tegundin getur bundið öllu vistkerfinu til heilla.

Ættfræði og undirtegundir
Hafþyrnir, Hippophaë rhamnoides L., er af silfurblaðsætt, Elaeagnaceae. Bæði fræðiheiti ættarinnar og íslenska heitið vísar í tegundir af silfurblaðsættkvíslinni, Elaeagnus. Ef til vill fjöllum við síðar um hana.
Tegundir innan ættarinnar eiga sitthvað sameiginlegt. Silfurblað, Elaeagnus commutata, á það sameiginlegt með hafþyrninum að þrífast prýðilega í rýru landi á Íslandi. Báðar eru tegundirnar þekktar fyrir að lifa í sambýli við gerla af ættkvíslinni Frankia sem eru duglegir við að vinna nitur beint úr andrúmslofti og miðla því til tegundanna. Því geta þær báðar þrifist vel í rýru landi og hentað sem landgræðsluplöntur. Lauflitur og vöxtur er einnig nokkuð áþekkur en lögun laufblaða er gjörólík. Báðar tegundirnar eru sérstakar í útliti og henta til garðræktar. Allar tegundir ættarinnar hafa sérbýli. Það merkir að hver planta ber annað hvort karlkyns eða kvenkyns æxlunarfæri.

Það var Linnæus hinn sænski sem gaf ættkvíslinni nafn um leið og hann lýsti tegund vikunnar. Samkvæmt vefsíðunni World Flora Online (WFO 2025) eru sjö tegundir innan ættkvíslarinnar auk einnar þekktrar blendingstegundar.
Eins og títt er um tegundir sem eiga sér víðfeðmt útbreiðslusvæði eru plöntur sömu tegundar hreint ekki steyptar í sama mót. Skilgreindar hafa verið átta eða níu undirtegundir af hafþyrni sem eru mismunandi að stærð og lögun, hafa ólíka þyrna, blaðlögun og hæringu, ólík ber hvað varðar lit, lögun og C-vítamíninnihald og þrífast best í mismunandi vist (Li & Schroeder 1996).
Tvær myndir úr Lystigarðinum á Akureyri af tveimur hafþyrniplöntum. Myndir: Sig.A. 2. september 2026.
Af þessum skilgreindu undirtegundum vaxa þrjár eða fjórar villtar í Evrópu. Fyrst ber að nefna Hippophaë rhamnoides ssp. carpatica sem vex í Mið- og Austur-Evrópu. Hún vex þar í opnu skóglendi og í rjóðrum.
H. rhamnoides ssp. caucasica er í álfunni austanverðri. Hún er kennd við Kákasus og vex í samnefndum fjallgarði en einnig í Úkraínu, Tyrklandi og Rúmeníu. Þessi undirtegund er töluvert ræktuð í Rússlandi.
H. rhamnoides ssp. fluviatilis vex í Ölpunum og suður til Spánar. Þessi undirtegund vex gjarnan í möl og sandi við ár sem reglulega flæða yfir bakka sína. Hún er þekkt fyrir að hafa færri þyrna en hinar undirtegundirnar. Þess vegna er hún gjarnan notuð til kynbóta í berjarækt til að auðvelda berjatínsluna. Á vef Wold Flora Online hefur þessi undirtegund verið sameinuð næstu undirtegund og þar með fækkar undirtegundum úr níu niður í átta og úr fjórum niður í þrjár í Evrópu.
Að lokum er það algengasta undirtegundin. Það er H. rhamnoides ssp. rhamnoides. Hún vex oft nærri sjó allt frá Balkanlöndunum og vestur til Bretlandseyja. Sama undirtegund vex villt á Norðurlöndum. Þetta er sá hafþyrnir sem er ræktaður á Íslandi. Þær lýsingar á tegundinni sem hér er að finna eiga fyrst og fremst við um þessa undirtegund. Hér má skoða umfjöllun World Flora Online um undirtegundirnar og muninn á þeim.
Sigurður Arnarson er í stjórn Skógræktarfélags Eyfirðinga.
Smellið hér til að sjá allan pistilinn: Notkun og mikilvægi hafþyrnis
Neita að troða nikku í kokið
Takk fyrir mig, Akureyri!
Þröngsýni, sjúkdómur hinna
Ættkvísl hlyntrjáa