Fara í efni
Pistlar

Nánasta fjölskylda birkis

TRÉ VIKUNNAR - 184

Pistill í röðinni Tré vikunnar birtist vikulega á vef Skógræktarfélags Eyfirðinga, alla miðvikudaga. Akureyri.net birtir brot úr hverjum pistli til að vekja athygli á skrifunum og hvetur fólk til að lesa meira á vefsíðu félagsins.
_ _ _

Undanfarnar vikur höfum við í pistlum okkar beint kastljósinu að birkinu sem er algengasta trjátegund landsins og skipar mikilvægan sess í íslenskri vist. Oftast nær höfum við sett inn einn og einn pistil og sagt frá ýmsu öðru þess á milli. Nú ætlum við að birta tvo pistla um skyld málefni sem tengjast birkinu. Í þessum pistli fjöllum við um nánustu fjölskyldu birkisins en í þeim næsta, sem við birtum eftir viku, segjum við frá helstu tegundum ættkvíslarinnar og hvernig hún er flokkuð.

Birki í Leyningshólum í Eyjafirði. Leyningshólar er einn af ellefu reitum sem Skógræktarfélag Eyfirðinga hefur umsjón með. Mynd: Sig.A.
Birki í Leyningshólum í Eyjafirði. Leyningshólar er einn af ellefu reitum sem Skógræktarfélag Eyfirðinga hefur umsjón með. Mynd: Sig.A.

Tilgangur flokkunar

Rétt er að muna að öll flokkun lífríkisins á að vera til einföldunar og er ætlað að auka skilning okkar á fjölskyldutengslum lífveranna og þar með þekkingu okkar á tegundum. Stundum er eins og þetta gleymist. Það mætti jafnvel halda að ekkert í heiminum sé svo einfalt að ekki megi flækja það með útskýringum. Við erum ekki laus við þetta. Okkar flækja stafar oft af því að í pistlunum segjum við gjarnan frá ólíkum sjónarmiðum hvað flokkunina varðar án þess endilega að taka afstöðu til ólíkra skoðana. Vonandi fyrirgefst okkur það. Í þessum pistli skoðum við fyrst ættina sem birkið tilheyrir og síðan ættkvíslina. Í næsta pistli skoðum við frekari flokkun ættkvíslarinnar og ólíkar tegundir innan hennar.

Birki frá Anchorage í Alaska sem plantað var í Kristnesi í Eyjafirði um 1990. Þegar tegundin kom var talið að þetta væri næfurbirki, Betula papyrifera. Nú er það flokkað sem undirtegund hengibirkis, B. pendula ssp. mandschurica. Sú undirtegund var um tíma flokkuð sem sérstök tegund, B. mandschurica og kölluð mansúríubirki. Svona er hægt að flækja hlutina. Munurinn á hefðbundnu hengibirki og mansjúríubirki er meðal annars sá að greinarnar hanga ekki á þessu tré. Reyndar hafa bara sumar hengibjarkir hangandi greinar. Er þetta ekki einfalt? Mynd: Helgi Þórsson.
 
Ættin, Betulaceae

Í anda Íslendingasagna þykir okkur rétt að hefja umfjöllun á ættfræði. Fyrst segjum við frá ættinni en síðan ættkvíslinni.

Birki, Betula, er meginættkvísl birkiættarinnar sem einnig er nefnd bjarkætt, bjarkaætt eða bjarkarætt allt eftir því hver heldur á penna eða pikkar á lyklaborð. Á fræðimálinu er nafnið aðeins eitt. Ættin er nefnd eftir birkiættkvíslinni, Betula, og kallast Betulaceae. Rétt er að minna á að samkvæmt alþjóðlegum nafnareglum eru nöfn ættkvísla rituð með skáletri en það á ekki við um nöfn ætta eins og fram kemur í þessum pistli.

Innan ættarinnar er að finna sex ættkvíslir lauffellandi trjáa og runna sem eru misjafnlega framandi í augum okkur Íslendinga. Auk birkiættkvíslarinnar, Betula, eru þrjár ættkvíslir sem margir þekkja. Þær eru elri, Alnus, agnbeyki, Carpinus og hesli Corylus. Innan ættarinnar eru einnig tvær minna þekktar ættkvíslir sem eiga sér ekki íslensk heiti ef marka má íðorðabanka Árnastofnunar. Þær heita Ostrya og Ostryopsis á fræðimálinu. Birkið þrífst hér vel og hið sama má segja um elri. Hesli og agnbeyki eru til á skjólgóðum stöðum í landinu en tvær þær síðasttöldu eru hér ekki svo okkur sé kunnugt um.

Við höfum skrifað fjölmarga pistla um elri, Alnus, og fleiri eru í farvatninu. Það er af sömu ætt og birkið. Myndin sýnir gráelri á Akureyri. Mynd: Sig.A.
 
Við höfum skrifað fjölmarga pistla um elri, Alnus, og fleiri eru í farvatninu. Það er af sömu ætt og birkið. Myndin sýnir gráelri á Akureyri. Mynd: Sig.A.

Eins og algengt er ber heimildum ekki endilega saman um hversu margar tegundir eru innan þessarar ættar en samkvæmt þessari heimild frá árinu 2016 eru þær 167 en Britannica segir þær vera 145. Af ættkvíslunum er birkiættkvíslin stærst.

Af ættkvíslum ættarinnar er elrið talið skyldast birkinu. Stundum er ættinni skipt í tvær undirættir. Birkið og elrið er þá saman í annarri þeirra og kallast hún Betuloideae. Hinar fjórar ættkvíslirnar eru í undirættinni Coryloideae (Britannica 2026).

Sigurður Arnarson er í stjórn Skógræktarfélags Eyfirðinga.

Smellið hér til að sjá allan pistilinn: Nánasta fjölskylda birkis

Að vera góður (með sig)

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
17. október 2026 | kl. 11:00

Samanburður broddhlyns og garðahlyns

Sigurður Arnarson skrifar
14. október 2026 | kl. 10:45

Lífið í búningsklefanum

Pétur Guðjónsson skrifar
12. október 2026 | kl. 13:30

Vænting

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
11. október 2026 | kl. 06:00

Þegar vinnan er farin í hundana

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Norðurgata 26

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
09. október 2026 | kl. 10:45