Nokkur ráð til að líða betur í skammdeginu
HEILSA – 27
Þá er það að skella á okkur aftur, skammdegið. Þessi tími ársins þegar við vöknum í myrkri, förum í vinnuna í hálfrökkri og áður en við vitum af er orðið dimmt aftur. Þó að við Íslendingar ættum að vera orðin vön þessu, þá kemur þetta mörgum okkar jafn mikið á óvart á hverju einasta ári.
Sjálf finn ég alveg fyrir því þegar birtan fer að minnka. Orkan verður minni yfir dimmasta tímann, það verður aðeins erfiðara að koma sér af stað og sófinn verður óneitanlega meira aðlaðandi. Það er svo sem ekkert skrítið. Birtan hefur áhrif á innri klukkuna okkar, svefn, orku og líðan. Við erum hluti af náttúrunni og líkaminn bregst við breytingum í umhverfinu, hvort sem okkur líkar betur eða verr.
Þó að við getum lítið gert í því að dagarnir styttist, þá getum við gert ýmislegt til að hafa jákvæð áhrif á eigin líðan. Hér koma því nokkur ráð sem við getum öll nýtt okkur til að fara betur í gegnum dimmustu mánuðina.
Nýtum dagsbirtuna. Á þessum tíma er mikilvægt að nýta þá dagsbirtu sem gefst. Dagsbirtan hefur nefnilega góð áhrif á okkur. Hún getur aukið orku og árvekni yfir daginn og stuðlað að betri svefni á nóttunni.
Reynum því að koma okkur aðeins út meðan það er bjart. Skella okkur í stuttan göngutúr eða finna okkur ástæðu til að fara út í smá tíma. Og munið, það er dagsbirta þótt sólin láti ekki sjá sig!
Setjum hreyfinguna í forgang. Hreyfing gerir okkur gott, bæði líkamlega og andlega, en þegar dagarnir verða dimmari og orkan minni er auðvelt að láta hana sitja á hakanum. Þarna þurfum við stundum að hafa vit fyrir okkur sjálfum. Taka frá tíma í vikunni fyrir hreyfingu, rétt eins og við gerum fyrir önnur mikilvæg verkefni, og standa við það. Það þarf ekki að vera löng eða krefjandi æfing og alls ekki alltaf sama hreyfingin. Veljum það sem okkur finnst skemmtilegt og hentar okkur hverju sinni. Aðalatriðið er að halda sér á hreyfingu og finna hvað gerir manni gott.
Munum eftir D-vítamíninu. Hér á Íslandi er sólarljósið ekki nægilegt til að húðin geti myndað D-vítamín í nægilegu magni yfir vetrarmánuðina. D-vítamín er meðal annars mikilvægt fyrir bein, vöðva og eðlilega starfsemi ónæmiskerfisins. Það er því mikilvægt að tryggja næga inntöku, til dæmis með lýsi eða D-vítamínuppbót samkvæmt opinberum ráðleggingum.
Hugum að svefninum. Svefninn er ein af grunnstoðum góðrar heilsu og góður svefn hefur mikil áhrif á hvernig við höndlum daglegt líf. Reynum að halda nokkuð reglulegum svefntíma og gefum okkur tíma til að ná okkur niður á kvöldin. Það getur verið ágætt að skoða eigin kvöldvenjur og athuga hvort eitthvað þar mætti betur fara.
Ræktum tengslin. Við erum félagsverur og góð tengsl við annað fólk eru einn af mikilvægustu þáttunum þegar kemur að vellíðan okkar. Það getur verið ansi freistandi að koma sér bara vel fyrir heima þegar dimmt er orðið upp úr miðjum degi, en það gerir okkur gott að hitta fólkið okkar. Mælum okkur reglulega mót við vini, förum saman í göngutúr, á æfingu eða fáum okkur kaffibolla. Oft þarf ekki meira til en gott spjall og smá hlátur til að létta lundina.
Gefum okkur tíma til að hvílast. Við erum mörg hver með ansi marga bolta á lofti og eigum það til að fylla dagana af verkefnum frá morgni til kvölds. En við erum jú hluti af náttúrunni og rétt eins og árstíðirnar breytast er eðlilegt að orkan okkar og taktur taki einhverjum breytingum með þeim. Náttúran hefur sinn takt og það er ef til vill skynsamlegt að taka svolítið mið af honum. Leyfa sér að fara aðeins hægar yfir dimmustu mánuðina, draga úr hraðanum þegar þess er þörf og gefa hvíldinni meira pláss. Það þýðir auðvitað ekki að við eigum að leggjast í híði fram á vor, en það er ekkert að því að þurfa aðeins meiri ró á þessum árstíma.
Skammdegið er óneitanlega hluti af því að búa hér á norðurslóðum og við ráðum litlu um birtuna eða lengd daganna. En við höfum ýmislegt um það að segja hvernig við hlúum að okkur á þessum árstíma. Verum meðvituð um hvað það er sem gerir okkur gott og reynum að koma því fyrir í daglegu lífi.
Svo er líka um að gera að njóta þess sem þessi árstími hefur upp á að bjóða. Kveikja á kertum, eiga notalega stund með góðri bók, kúra undir teppi eða njóta samveru með fólkinu sínu og leyfa sér síðan þess á milli að gera stundum bara nákvæmlega ekki neitt.
Áður en við vitum af fara dagarnir að lengjast á ný og birtan kemur aftur.
Guðrún Arngrímsdóttir er ÍAK einkaþjálfari, jógakennari og markþjálfi með diplómu í jákvæðri sálfræði ásamt því að vera önnur eigenda Sjálfsræktar heilsumiðstöðvar. Pistlar hennar og Hrafnhildar Reykjalín Vigfúsdóttur birtast annan hvern þriðjudag á akureyri.net.
Að vera góður (með sig)
Samanburður broddhlyns og garðahlyns
Lífið í búningsklefanum
Vænting