Fara í efni
Pistlar

Að vera góður (með sig)

Á SPJALLI MEÐ AÐALSTEINI ÖFGAR – 12

Löngum hef ég reynt að tjónka við Aðalstein Öfgar síðustu árin, stundum með þokkalegum árangri. Um daginn bauð ég honum í gamaldags grautarlummur og gljásvart kaffi, hvorki þynnt né styrkt með göróttum drykkjum. Niðurstaðan eftir spjallið varð óvænt sú að við munum ekki hittast aftur í bráð og pistlaskrif leggjast niður þannig að landsmenn geta andað léttar.

„Fyrr hætti ég að drekka en fara á Vog,“ tautaði Alli þegar ég reyndi að beina honum á rétta braut. Eitthvað þessu líkt hafði ég heyrt áður en mótmælin voru frekar veikburða núna. Til að gera langa sögu stutta var hann til í að leita sér hjálpar á viðeigandi heilbrigðisstofnun hér í bæ enda geðhvörfin ekki minna vandamál en alkóhólisminn og lyfjameðferð ber ekki nógu góðan árangur þegar sífellt er verið að sulla ofan í jafnvægislyfin.

„Annars er ég bara góður,“ bætti Alli við. „Ég meina, það eru margir verr staddir en ég þarna út og ég vil helst ekki taka pláss frá öðrum. Tek þetta bara á hörkunni, það er seigt í mér.“

Þetta hafði ég sömuleiðis heyrt áður. Hann þóttist góður. Jafnvel góður með sig en það er gríma. Ég þekki það sjálfur. Við erum líkir að þessu leyti. Sjálfsagt báðir greindir með félagskvíða. Þeir eru ófáir viðburðirnir sem ég hef sleppt eða snúið við á síðustu stundu, sem mér finnst alltaf dálítill skellur. Skárra að hanga bara heima og þykjast ekki vita af neinu. Alli fer heldur nánast ekkert úr íbúðinni á Eyrinni nema að sækja nauðsynjar.

Jæja, hvað sem líður félagskvíða tveggja ólíkra manna í mismunandi aðstæðum þá ætla ég að hætta þessum pistlaskrifum enda ekki nokkur sála sem les þetta lengur, að minnsta kosti hef ég engar sannanir fyrir því. Kannski fyrir utan konuna mína og þessar fáu hræður sem hafa komið að máli við mig í Bónus eða á röltinu. Mér telst líka til að frá því Skapti byrjaði með akureyri.net þá hef ég fengið honum um 100 efnisatriði til birtingar, langflest undir Pistlar og Umræðan. Hvet ég aðra til að brýna stílvopnið til gagns eða gamans og endilega styrkja útgáfuna. Staðarfjölmiðill af þessum standard er mikilvægur og getur ekki verið ókeypis.

Að lokum segi ég eins og Aðalsteinn Öfgar: Annars er ég bara góður. Mun ekki svara öðru aðspurður. Flestir segja allt gott þegar þeir eru spurðir á förnum vegi enda sjálfsagt ekki tími til að úttala sig um líðan sína og varla ætlast til þess. Reyndar heyri ég stundum útundan mér í heita pottinum að fólk fer að trúa öðrum (og þá öllum í pottinum) fyrir hægðatregðu, heilaþoku, liðverkjum og þaðan af svæsnari kvillum og þykir mér það heldur undarlegur staður fyrir slíkar játningar.

Lesendum þakka ég samfylgdina og lofa að láta ekki á mér kræla næstu vikurnar. Ég hef nóg fyrir stafni og… ég er bara góður!

Lifið heil.

Stefán Þór Sæmundsson er félagi í KÍ, RSÍ, STAMA, Þór, KAON, SÁÁ, EBAK og eflaust fleiri félögum og samtökum en man sjaldnast eftir því og tekur engan þátt í félagsstarfi

Samanburður broddhlyns og garðahlyns

Sigurður Arnarson skrifar
14. október 2026 | kl. 10:45

Lífið í búningsklefanum

Pétur Guðjónsson skrifar
12. október 2026 | kl. 13:30

Vænting

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
11. október 2026 | kl. 06:00

Þegar vinnan er farin í hundana

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Norðurgata 26

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
09. október 2026 | kl. 10:45

Tegundir birkiættkvíslarinnar

Sigurður Arnarson skrifar
07. október 2026 | kl. 14:30