Mokkaskinn

AKUREYRI ÆSKU MINNAR – 84
Undir lokin á sjöunda áratugnum var kominn tími til að vera elegant og smart, en ef það var ekki í hár og farða, mátti það vera í skóm og fötum. En allt varð litríkara og lögulegra, og karlar og konur áttu það til að sleppa fram af sér beislinu í alla vegu múnderingu.
Svart og hvítt vék fyrir farfa framtíðarinnar. Og í tilviki okkar karlanna hurfu lakkrísbindi í skiptum fyrir blómarík slifsi sem tóku öllu fram í flandri og flúri.
En toppurinn á öllu saman voru mokkaskinnsjakkarnir. Haustdag einn um þetta leyti gat enginn verið maður með mönnum við innanverðan Eyjafjörð en að sveipa sig kápum og klæðum af því taginu. Og herlegheita höfuðfati í stíl.
Á þann veg man ég mömmu og pabba, og alla vini þeirra á Syðri-Brekkunni sem mættu ekki öðruvísi í saumaklúbba og spilafundi sína en í mokkaskinni frá hvirfli til ilja. En þar var tískan komin í öllu sínu mikilúðlega veldi.
Enginn gat skorist undan. Og gilti einu þótt það þyrfti að hafa sig alla við að hengja skinnin upp í forstofunni, svo þung og mikil sem þau voru í eðli sínu.
Þetta rúskinnsæði, sem rann á Eyfirðinga undir 1970, var Sambandinu að þakka eins og hvaðeina annað sem til framfara stóð. En þá stundi Sútunarverksmiðjan Iðunn undan þunga sinna átaka niðri á Gleráreyrum, þar sem skinnin voru snöggklippt og sett í glúrinn lög, svo þau ýldu ekki á öxlum kaupenda sinna.
Svo var þetta allt saman saumað á sína vísu í Heklu, svo út af færibandinu komu jakkar, kápur, húfur og lúffur sem keyptar voru af öllum ábyrgum Akureyringum sem komnir voru til vits og þroska – og fóru ekki úr þeim fram á vor.
Man að pabbi gekk í sínum, löngu eftir að hann fór úr tísku, og þótti fyrir vikið glataður í móðnum. En að hans sögn, hentu menn ekki heilbrigðum fötum.
Sigmundur Ernir er fæddur á Akureyri 1961. Pistlar hans um æskuárin í heimabænum á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar birtast alla mánudaga á Akureyri.net.
- Í NÆSTU VIKU: EFTIRMATUR


Ber hinu íslenska pyttsamfélagi vel söguna

Mendelssohn á Akureyri

Grasagarðshlutverk Lystigarðsins

Öryggi og fegurð
