Fara í efni
Umræðan

Verður BSO húsið flutt í Kjarnaskóg?

BSO húsið í miðbænum sem verður rifið nema einhver þiggi það að gjöf og fjarlægi í síðasta lagi 15. júní í sumar. Mynd: Þorgeir Baldursson

Sú hugmynd hefur verið rædd í herbúðum Skógræktarfélags Eyfirðinga að falast eftir BSO-húsinu og láta flytja það í Kjarnaskóg. Málið verður rætt á fundi Skógræktarfélagsins á morgun, miðvikudag, og þá ákveðið hvort félagið óski eftir því að eignast húsið eður ei. Frestur til þess rennur út kl. 11:00 næsta fimmtudag, 21. maí.

Bifreiðastöð Oddeyrar – leigubílastöðin BSO – hafði í 70 ár aðsetur í húsinu, sem er án efa það umtalaðasta í bænum undanfarið. Bílstjórarnir skelltu þar í lás í hinsta sinn um mánaðamótin og Akureyrarbær tilkynnti á dögunum að húsið fengist gefins með því skilyrði að það verði farið af lóðinni í miðbænum í síðasta lagi 15. júní á kostnað þess sem þiggur það að gjöf, ella verði það rifið.

Samkvæmt því sem akureyri.net kemst næst hafa nokkrar hugmyndir um nýtingu hússins í Kjarnaskógi skotið upp kollinum. Það gæti til dæmis hentað sem vinnuaðstaða fyrir starfsmenn félagsins eða hugsanlega sem afdrep fyrir sjálfboðaliða. Einnig hefur verið nefnt að húsið mætti jafnvel nota í þágu gesta og notenda skógarins, til dæmis ef hið áhugaverða verkefni „Karlar í skúrum“ yrði að veruleika.

Einhver kann að spyrja hvað „Karlar í skúrum“ er og því rétt að benda á grein Karenar Sigurbjörnsdóttur sem birtist á akureyri.net í síðustu viku: Karlar í skúrum.


Mynd: Haraldur Ingólfsson

Sagan, umhverfið og sundlaugin á Kristnesi ómetanleg lífsgæði!

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Játningar nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Erum við ráðalaus gegn einmanaleika?

Sóley Björk Stefánsdóttir skrifar
29. október 2026 | kl. 15:15

Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm

Björn Snæbjörnsson skrifar
27. október 2026 | kl. 10:00

Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?

Þóroddur Bjarnason skrifar
26. október 2026 | kl. 17:30

Loftbrúin má ekki missa flugið

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. október 2026 | kl. 17:15