Fara í efni
Umræðan

Sóðaskapur partígesta í Kjarnaskógi

Að hreinsa upp rusl eftir partígesti er sem betur fer ekki oft á dagskránni hjá starfsfólki Skógræktarfélags Eyfirðinga í Kjarnaskógi en virðist þó vera árlegur fylgifiskur skólabyrjunar á haustin. Myndir: Facebook-síða Skógræktarfélagsins.

Það var ófögur sjón sem blasti við starfsfólki Skógræktarfélags Eyfirðinga í Kjarnaskógi að morgni laugardags. Drykkjarvöruumbúðir og annað rusl var á víð og dreif og greinilegt að heljarinnar partí hafði verið haldið þar um nóttina.

Ingólfur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélagsins, setti myndband inn á Facebook-síðu félagsins á laugardagsmorguninn og var þungorður í garð þeirra sem svona gengju um. Auk þess að safna saman ruslinu utandyra þurfti Ingólfur m.a. að þrífa ælu af skiptiborði fyrir ungbörn inni á snyrtingu.

Ingólfur kallaði aðgerðina „síðasta slátt ársins í Kjarnaskógi.“

Í samtali við RUV sagðist Ingólfur gera ráð fyrir að þarna hefðu skólakrakkar verið á ferðinni og þetta væri ekki að gerast í fyrsta skipti. Krakkar hittust í skóginum að kvöldlagi og héldu skemmtanir og þetta fylgdi stundum skólabyrjun á haustin.

Kjarnaskógur er útivistarparadís sem mikil vinna fer í að sinna og viðhalda og svona umgengni auðveldar síður en svo það starf.

„Unga fólk. Að halda party í skólabyrjun er góð leið til að hrista saman hópinn, kynslóðir á undan ykkur hafa gert slíkt hið sama og komist til manns. Umgengni nætur er þó eitthvað sem ekki er í boði, ekkert ykkar er, eða vill vera slíkur sóði. Ræðið þetta í skólanum, svona þurfa hlutirnir ekki að vera,“ segir í innleggi Skógræktarfélagsins á Facebook.

Játningar nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Sagan, umhverfið og sundlaugin á Kristnesi ómetanleg lífsgæði!

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Erum við ráðalaus gegn einmanaleika?

Sóley Björk Stefánsdóttir skrifar
29. október 2026 | kl. 15:15

Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm

Björn Snæbjörnsson skrifar
27. október 2026 | kl. 10:00

Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?

Þóroddur Bjarnason skrifar
26. október 2026 | kl. 17:30

Loftbrúin má ekki missa flugið

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. október 2026 | kl. 17:15