Sagan, umhverfið og sundlaugin á Kristnesi ómetanleg lífsgæði!
ÁFRAM KRISTNES! ENGAR ÚRTÖLUR!
Hlýðum röddum þeirra sem reynt hafa árangursríka lækningu, dvöl og endurhæfingu á Kristnesi, þær raddir þurfa að heyrast.
Jón Hlöðver Áskelsson greinir frá því hvaða björgunarhlutverki frábærir læknar, sjúkraþjálfarar og annað heilbrigðisstarfsfólk hafa gegnt fyrir hann í 37 ár.
Ég varð áttræður í fyrra og þau ár frá 44 ára aldri, þ.e. rúmlega 37 ár, get ég sannarlega þakkað fyrir að hluta læknum, sjúkraþjálfurum og öðru heilbrigðisstarfsfólki sjúkrahúsa og endurhæfingarstöðva. Ég er tónlistarmaður að mennt og gegndi starfi skólastjóra Tónlistarskólans á Akureyri árið 1989. Þá tók líf mitt u-beygju því ég þurfti að gangast undir stóra heilaaðgerð og fjarlægt var blóðæxli sem búið hafði um sig í heilastofni. Þrátt fyrir það að aðgerðin hafi trúlega forðað mér úr lífshættu þá leiddi af henni varanleg skerðing á jafnvægi, hreyfigetu og lömun á andlitstaug. Síðar í lífinu hef ég gengist þrisvar undir liðskiptaaðgerðir. Alla tíð síðan hef ég þarfnast og notið einstakrar sjúkraþjálfunar nokkrum sinnum og annarra leiknisæfinga í viku hverri. Án þess hefði ég ekki getað notið lífsins á þann góða hátt sem ég geri. Fræg setning er eignuð kanadíska lækninum Sir William Osler (1849–1919), sem oft er kallaður „faðir nútímalækninga“, setningin hljóðar þannig: „Hlustaðu á sjúklinginn, hann er að segja þér greininguna.“ Ef ég nú færi þessa setningu yfir á sjálfan mig finnst mér ég vera maður að meiru að segja frá því hvernig heilbrigðisstarfsfólk hefur undantekningalítið hlýtt á mig og látið þörf mína fyrir umönnun, líkamlega og andlega sitja í fyrirrúmi. Ef ég nú ætti að flokka þau skilyrði niður sem hafa reynst mér svo vel og ég hef notið eru:
- Frábærir læknar og hjúkrunarfólk.
- Sjúkraþjálfarar og iðjuþjálfar í hvetjandi og heilandi
- Gott heimili og kærleiksríkir aðstandendur.
Ég hef verið svo heppinn að þessi skilyrði hafa öll verið uppfyllt hvað mig varðar og þar að auki hef ég alltaf getað sinnt störfum á mínum starfs- og áhugasviðum sem eru þó nokkur. Ef ég má í örstuttu máli lýsa líðan minni eftir því sem aðstæður buðu á mínu bataferli voru þessar: Læknar og hjúkrunarfólk var mér ómissandi hlekkur í lífkeðjunni og sjúkrahúsin ræktu sannarlega bestu umönnun til að styrkja þá keðju. Að lokinni aðgerð og dvöl á Landsspítala - Borgarsjúkrahúsi fór ég í endurhæfingu á Grensásdeild, síðar á Reykjalund og loks á Kristnes endurhæfingardeild. Á Kristnesi er frábærlega gott að vera. Þangað hef ég margoft leitað og kynnst mörgu fólki sem dásamað hefur staðinn og einstaka staðsetningu. Þaðan var svo passleg vegalengd að komast heim. Heim þar sem ýmsu hafði orðið að breyta svo ég gæti notið umgengni á heimili mínu og að búið er svo þar um hnútana að ég geti sinnt að hluta mínum áhugamálum og því starfssviði sem ég er menntaður til. Er ég lít um öxl þá ljóma mörg ljós minninga og bros sem lifna við upprifjun ýmissra atvika. Þegar ég minnist þeirra hugsa ég oft til Kristnes með sínu dásamlega víðsýni, ótrúlegu byggingarsögulegu afreki, fegurðar garða og nálægð skógar, ásamt sundlauginni frábæru, reistri að hluta fyrir stórglæsilega fjársöfnun almennings. Mikið liggur við að bjóða öllum sem þurfa á þjálfun að halda vegna veikinda, slysfara eða öldrunar kost á að njóta lækninga, sjúkra- eða iðjuþjálfunar í fagurri náttúru við bestu heilbrigðisaðstæður. Stöndum vörð um og sínum í verki stuðning við endurnýjun húsa- og tækjakosts á Kristnesii! Vanrækt viðhald er skuld ríkis og þjóðar sem á að greiða. Hlýðum röddum þess fjölda fólks sem hliðstæða reynslu hefur og ég. Ég hvet alla sem eru á sama máli að láta í sér heyra. Að lokum minni ég á fyrrgreinda tilvitnun í sir William Osler, sem mætti umorða með setningunni: „Ekkert um okkur án okkar“!
Jón Hlöðver Áskelsson er tónskáld
Erum við ráðalaus gegn einmanaleika?
Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm
Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?
Loftbrúin má ekki missa flugið