Fara í efni
Umræðan

BSO-húsið nánast tilbúið í ferðalagið

BSO-húsinu, samastað leigubílstjóra á Akureyri til áratuga, hefur verið lyft af grunninum og stendur nú á flutningsbitum, nánast tilbúið til brottfarar. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Stefnt er að því að flytja BSO-húsið úr miðbæ Akureyrar að Jólagarðinum í Eyjafjarðarsveit einhvern næstu daga. Húsinu hefur verið lyft frá jörðu og undirbúið fyrir flutning og skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar hefur afgreitt umsókn um bráðabirgðastöðuleyfi fyrir húsið.

Eins og greint hefur verið frá í fréttum auglýsti Akureyrarbær húsið gefins, gegn því að það yrði flutt burt úr miðbænum eigi síðar en 15. júní. Að auglýsingafresti loknum voru umsóknir metnar og skipulagsráð samþykkti síðan að Jólagarðurinn fengi húsið. Undanfarið hefur verið unnið að því að undirbúa það fyrir flutninginn, enda rennur fresturinn til að færa húsið út innan fárra daga.

Á fundi sínum síðastliðinn mánudag tók skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar fyrir umsókn frá Jólagarðinum um stöðuleyfi fyrir húsið vestan Jólahússins, á meðan unnið væri að undirbúningi fyrir framtíðarstaðsetningu þess. Skipulagsnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að veita stöðuleyfi til 12 mánaða á lóðinni og vísaði umsókninni til afgreiðslu byggingafulltrúa.

Undirbúningur flutnings hefur staðið yfir um tíma. Gosdósin sem verið hefur áberandi á BSO húsinu í mörg var fjarlægð fyrir nokkrum dögum.

Sagan, umhverfið og sundlaugin á Kristnesi ómetanleg lífsgæði!

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Játningar nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Erum við ráðalaus gegn einmanaleika?

Sóley Björk Stefánsdóttir skrifar
29. október 2026 | kl. 15:15

Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm

Björn Snæbjörnsson skrifar
27. október 2026 | kl. 10:00

Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?

Þóroddur Bjarnason skrifar
26. október 2026 | kl. 17:30

Loftbrúin má ekki missa flugið

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. október 2026 | kl. 17:15