Fara í efni
Umræðan

„Heiðarlegt samtal í haustblíðunni“

Gjafirnar, gefendur og þiggjendur. Nemendur VMA ásamt Jóhanni Hjaltdal Þorsteinssyni, umsjónarkennara kennara við byggingadeild VMA, Ingólfi Jóhannssyni, framkvæmdastjóra Skógræktarfélags Eyfirðinga, og Bergsveini Þórssyni skógarverði. Mynd: vma.is.

„Sóðaskapur partígesta í Kjarnaskógi“ var fyrirsögn á frétt akureyri.net í lok ágúst þar sem vísað var í myndband sem Ingólfur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga, birti á Facebook-síðu félagsins að morgni laugardagsins 29. ágúst þegar honum ofbauð umgengni ungmenna sem þar höfðu hópar ungmenna skemmt sér nóttina áður, meðal annarra nýnemar úr framhaldsskólunum á Akureyri, MA og VMA.

Í gær var gerð yfirbót. Nýnemar við byggingadeild VMA höfðu smíðað tvö lautarferðaborð og færðu skóginum að gjöf.

Ekki lengur feimnismál að faðma tré

„Eftir því sem skógar dafna á Íslandi er æ algengara að fólk heimsæki þá gagngert til að faðma tré. Á árum áður var slíkt feimnismál, fólk óttaðist gjarnan að gert yrði grín að því fyrir athæfið og fór leynt með. Í dag þykir slíkt ekkert tiltökumál enda hafa virtar vísindarannsóknir staðfest gagnsemi þess fyrir lýðheilsu almennings, bæði líkamlega og andlega,“ segir í nýjum pistli á vef Skógræktarfélagsins sem birtur var í tilefni af heimsókn þessara verðandi byggingameistara í skóginn í gær.

Nýnemar faðma tré og koma færandi hendi. „Kjarnaskógur - Alltaf logn!“ er yfirskriftin á plötu sem staðfestir gjöf nýnema við VMA til Kjarnaskógar, sem yfirbót eftir umgengni í skóginum á nýnemafögnuði. Myndirnar eru fengnar af Facebook-síðu Skógræktarfélagsins.

Nýnemarnir höfðu ekki aðeins þor til að faðma tré heldur einnig til að játa mistök og bæta fyrir þau. Í gær mætti hópur nýnema við byggingadeild VMA í Kjarnaskóg og færði skóginum að gjöf tvö haglega smíðuð lautarferðaborð, föðmuðu hengibjörkina sem stendur við borðtennisflötina skrýdd skærgulum haustlitum, eins og frá er sagt í áðurnefndum pistli Skógræktarfélagsins. Nýnemarnir höfðu safnað fyrir kostnaði við að smíða borðin og framtíðariðnaðarmenn svæðisins voru ekki í neinum vandræðum með að smíða þau.

„Kjarnaskógur – Alltaf logn“

„Takk drengir fyrir heiðarlegt samtal við okkur starfsfólk SE í haustblíðu gærdags og takk fyrir afar höfðinglega gjöf öll þið sem komuð að fjársöfnun fyrir efni, smíðuðuðuð þessi traustu lautarborð og höfðuð þor til að sýna þannig ábyrgð í samfélagi, ábyrgð sem er ykkur til mikils sóma!“ segir meðal annars í pistli Skógræktarfélagsins.

Fulltrúi nemendanna flutti stutt ávarp við afhendingu borðanna, eftir hjartnæmt samtal við starfsfólk Skógræktarfélagsins í haustblíðu gærdagsins, eins og þar stendur. 

„Kæri Kjarnaskógur.

Ég heiti Þórarinn Karl og er nemandi á byggingadeild VMA. Við erum hér í dag, fulltrúar nýnema við VMA, og viljum færa Kjarnaskógi að gjöf tvö útiborð sem við höfum smíðað og safnað fyrir. Okkur finnst gaman að koma í Kjarna og viljum leggja okkar af mörkum til að gera góðan skóg enn betri. Við gerum mistök, en við gerum líka betur, horfum fram á veginn, enginn bakkar hérna út. Takk fyrir okkur.“

Á vef Verkmenntaskólans er einnig sagt frá gjöfinni í máli og myndum Jóhanns Hjaltdal Þorsteinssonar, umsjónarkennara og kennara við byggingadeild skólans. Ingólfur Jóhannsson þakkaði gjöfina með eftirfarandi orðum:

„Ég er innilega glaður og stoltur af ykkur fyrir þetta framtak. Þegar maður gerir upp á bak er gott að gangast við því. Trúið mér, ég hef oft gert upp á bak og reynt að bæta úr með allskonar árangri. En ef maður reynir ekki, þá gerist ekki neitt.
Eldri borgarar koma oft til okkar hingað í skóginn og hafa kallað eftir fleiri slíkum borðum og því veit ég að þeir eiga eftir að dásama ykkur fyrir þetta framtak. Takk strákar, þið eruð magnaðir!“

Einnig var greint frá heimsókn nemanna og gjöfinni á Facebook-síðu Skógræktarfélagsins í eftirfarandi hjartnæmum pistli:

Ónýtt drasl-fólkið

Helgi Þórsson skrifar
15. september 2026 | kl. 20:00

Björgunarþyrla á Akureyri – staða máls

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
13. september 2026 | kl. 19:30

Það dugir skammt að breyta bókstöfum í tölustafi

Hlín Bolladóttir skrifar
12. september 2026 | kl. 09:30

Píeta – mikilvægt úrræði í sjálfsvígsforvörnum

Oddný Jónsdóttir skrifar
12. september 2026 | kl. 06:00

Námaskarð, öryggismál

Þorkell Ásgeir Jóhannsson skrifar
11. september 2026 | kl. 16:00

Ferðaþjónustunni hent fyrir rútu hallalausra fjárlaga

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
09. september 2026 | kl. 10:50