Fara í efni
Umræðan

Sex umsóknir bárust í hús BSO

Leigubílstjórar af BSO keyra nú undir merkjum Hreyfils og húsnæði þeirra til áratuga verður horfið af lóðinni í miðbænum í síðasta lagi 15. júní; verður annað hvort flutt á annan stað eða rifið. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Sex umsóknir frá fimm aðilum bárust í hús BSO, sem Akureyrarbær bauð nýlega áhugasömum til eignar án endurgjalds. Það skilyrði er þó sett að viðkomandi þarf að flytja húsið af lóðinni við Strandgötu á sinn kostnað og sína ábyrgð og þeim flutningi þarf að vera lokið fyrir 15. júní.

Umsóknirnar verða nú metnar og að mati loknu verður tillaga að ráðstöfun hússins lögð fyrir næsta fund umhverfis- og mannvirkjaráðs. Í umsóknum þeirra sem áhuga hafa á húsinu þurfti að koma fram í hvað hugmyndin væri að nota húsið, hvort það yrði nýtt til almenningsnota og hvar ætlunin væri að staðsetja það. Við mat á tilboðum verður horft til þess hvort húsnæðið verði nýtt til almenningsnota (80%) og fyrirhugaðrar staðsetningar (lóðar) (20%).

Skógræktarfélagið sendi ekki inn umsókn

Eins og akureyri.net greindi frá fyrr í vikunni var sú hugmynd rædd í herbúðum Skógræktarfélags Eyfirðinga að falast eftir húsinu og láta flytja það í Kjarnaskóg. Nokkrar hugmyndir um nýtingu hússins þar höfðu skotið upp kollinum í umræðunni. Ingólfur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélagsins, sagði hins vegar í samtali við akureyri.net í dag að á fundi í gærkvöld hafi verið afráðið að senda ekki inn umsókn. Eftir ítarlega skoðun var það mat félagsins að það hefði ekki bolmagn til að standa að flutningi hússins í Kjarnaskóg.

Játningar nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Sagan, umhverfið og sundlaugin á Kristnesi ómetanleg lífsgæði!

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Erum við ráðalaus gegn einmanaleika?

Sóley Björk Stefánsdóttir skrifar
29. október 2026 | kl. 15:15

Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm

Björn Snæbjörnsson skrifar
27. október 2026 | kl. 10:00

Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?

Þóroddur Bjarnason skrifar
26. október 2026 | kl. 17:30

Loftbrúin má ekki missa flugið

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. október 2026 | kl. 17:15