Fara í efni
Umræðan

Biðsvæði leigubíla verður við Túngötu

Fjögur fremstu stæðin á myndinni verða biðsvæði fyrir leigubíla. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Skipulagsráð Akureyrarbæjar samþykkti á fundi sínum í vikunni að fjögur bílastæðanna við Túngötu verði nýtt sem biðsvæði fyrir leigubíla. Þessi tilhögun verður höfð til reynslu til 1. október nk. en áður hafði skipulagsráð fallið frá hugmyndum um að útbúa biðsvæði syðst í Skipagötu eftir mótmæli hagsmunaaðila við götuna. Bílastæðin sem nú hefur verið samþykkt að nota sem biðsvæði standa nálægt horninu við Strandgötu 3, beint fyrir utan verslun Símans, og í næsta húsi er afgreiðsla Sjóvár og íbúðarhús á nokkrum hæðum.

Hugmynd skipulagsráð um biðsvæði við Túngötu var samþykkt á fundi í lok apríl og í framhaldinu kynnt hagsmunaaðilum á svæðinu. Þrátt fyrir að athugasemdir hefðu borist var tillagan engu að síður samþykkt til reynslu. Meðal annars bárust mótmæli frá tveimur eigendum íbúða við Strandgötu 3, sem stendur við umrætt biðsvæði. Þeir lýsa yfir áhyggjum af staðsetningunni og benda á að reynslan sýni að slík svæði laði að sér hópa fólks sem bíða eftir akstri, oft seint á kvöldin og að næturlagi. „Við slíkar aðstæður myndast gjarnan hávaði, hávær samskipti, köll, rifrildi og annað ónæði,“ segir í athugasemdabréfi og að sérstaklega óheppilegt sé að staðsetja slíkt biðsvæði við eitt stærsta íbúðarhús svæðisins, þar sem svefnherbergisgluggar fjölmargra íbúa snúi beint að svæðinu. Einnig bárust mótmæli frá eiganda atvinnuhúsnæðis við götuna. 

Eftir breytinguna verða tvö almenn bílastæði nyrst við götuna, auk eins sérmerkts stæðis sem ætlað er hreyfihömluðum.

Játningar nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Sagan, umhverfið og sundlaugin á Kristnesi ómetanleg lífsgæði!

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Erum við ráðalaus gegn einmanaleika?

Sóley Björk Stefánsdóttir skrifar
29. október 2026 | kl. 15:15

Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm

Björn Snæbjörnsson skrifar
27. október 2026 | kl. 10:00

Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?

Þóroddur Bjarnason skrifar
26. október 2026 | kl. 17:30

Loftbrúin má ekki missa flugið

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. október 2026 | kl. 17:15